27.6.2014 | 08:10
Molar um málfar og miðla 1503
Í fréttinni er talað um ís sem var að detta í sölu í Danmörku ... Æ algengara að sjá þetta orðalag að eitthvað sé að detta inn. Ný frétt var að detta inn. , - ný frétt var að berast. Ísinn var að detta í sölu. Sala var að hefjast á ísnum.
Hversvegna eru ekki allir fréttatímar Ríkisútvarpsins aðgengilegir á netinu? Fylgir því einhver aukakostnaður ?
Úr auglýsingu í Bakarameistaranum: ,, Irish coffie (svo!) frómas með brownies botn ...
Molaskrifari hnaut um orðalag í frétt Morgunblaðinu á fimmtudag (26.06.2014). Á forsíðu segir um útflutning Sælgætisgerðarinnar Freyju, að sælgætið sé selt undir öðru nafni í Noregi því til sé norsk Freia.,,Hún var stofnuð rétt fyrir rétt fyrir aldamótin 1900, en hin íslenska Freyja nokkrum árum síðar, eða 1918. Þetta er nú ekki mjög nákvæmt. Hin norska Freia var stofnuð 1889. Þremur árum síðar, 1892 eignaðist Johan Trone Holst fyrirækið. Það er því út í hött að segja að hin íslenska Freyja hafi verið stofnuð nokkrum árum síðar. Það voru næstum þrír áratugir. Hann gerði það að stórveldi í súkkulaðiframleiðlsu og eins konar þjóðartákni. Mjólkursúkkulaðið frá Freiu og seinna ,,Kvikk lunsj súkkulaðikexið varð gríðarlega vinsælt, eiginlega þjóðarréttur eins og prins póló á Íslandi. Trone Holst stofnaði súkkulaði- og sælgætisgerðina Marabou í Svíþjóð. Þegar bandarískt stórfyrirtæki keypti Freia 1993 þótt mörgum Norðmanninum sem verið væri að selja þjóðarfjársjóð, fjölskyldusilfrið, eins og þeir sögðu. Það var mörgum mikið áfall. Freia var norskari en flest sem norskt var. Johan Trone Holst byggði vandað íbúðarhús upp úr 1910 að Langviksveien 6 á Bygdöy í Osló. Húsið kallaði hann Ekhaugen. Það er nú í eigu íslenska ríkisins. Ekkja hans seldi íslenska ríkinu húsuð með hagkvæmum kjörum. Vildi gjarnan að það yrði sendiherrabústaður. Það er nú embættisbústaður sendiherra Íslands í Noregi. Throne Holst var merkilegur maður á margan hátt. Verkalýðsfélögunum í Noregi var ekkert sérlega vel við hann, því hann gerði svo vel við starfsfólk sitt! Heilsugæsla var til fyrirmyndar og hann byggði sérstaka starfsmannabústaði. Í matsal fyrirtækisins (byggður 1934) voru 12 stór málverk eftir Edvard Munch. Salurinn var einnig notaður til tónleikahalds. Fyrir tilkomu hans voru þrír matsalir, einn fyrir konur, einn fyrir karla og sá þriðji fyrir yfirmenn. Throne Holst vildi stefna að sex stunda vinnudegi fyrir starfsfólk sitt. Hann var íhaldsmaður, en framsýnn umbótamaður. Throne Holst lést 1946. Hann skrifaði æviminningar, Erindringer og refleksjoner, sem komu út árið 1941.Seinna 1989 kom út ævisaga hans, Sjokoladekongen. Hana skrifaði Erik Rudeng sagnfræðingur, seinna forstöðumaður byggðasafnsins á Bygdöy.
Fyrst ausa fótaboltasérfræðingar Ríkissjónvarpsins yfir okkur úr viskubrunnum sínum áður en leikirnir hefjast. Eftir leikina segja þeir hvað okkur eigi að finnast um leikina. Hve margar milljónir skyldi Ríkissjónvarpið borga fyrir þetta tuð? Fróðlegt væri að vita það, en sennilega er það ríkisleyndarmál. Við bara borgum. Spyrjum ekki.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2014 | 08:24
Molar um málfar og miðla 1502
Molaskrifari þakkar bréfið, - rétt er það, hægt er að læra mikið af því að lesa góða texta.
Gamall starfsfélagi Molaskrifara vitnar í mbl.is (24.06.2014): Þjóðin sem sigrar Heimsmeistaramótið í knattspyrnu ... Það ískyggilega við þetta, Eiður, er að fréttabarnið sem skrifar þetta gæti hæglega verið með fjórar háskólagráður. Það er meira að segja sennilegt. Rétt er það. Fréttabörnin valsa víða um lyklaborðin og ruglið sem frá þeim rennur er birt athugasemdalaust. Sjá: <<<http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2014/06/24/skammvinn_sigurgledi_a_hm/
Í gærkveldi (25.06.2014) var tilkynnt í lok frétta í Ríkisútvarpi kl. 22 00 að sjónvarpsfréttir hæfust klukkan 22 15. Þær hófust klukkan 22 20 eða rúmlega það. Íþróttafréttamenn virða engin tímamörk eða kunna ekki á klukku. Nema hvort tveggja sé. Fréttaþulur Ríkissjónvarps sagði enn einu sinni að fréttir væru seint á ferð vegna leiks á HM. Það var ekki rétt. Leiknum lauk fyrir klukkan 22 00. Fréttirnar voru seint á ferð vegna þess að fjasa þurfti um fótboltaleikinn sem lokið var. Það var þáttur sem hét HM stofa eða eitthvað í þá veru og er á dagskrá oft á dag. - Nú nennir Molaskrifari ekki, - að sinni, - að ræða meira um ofbeldi íþróttadeildar í dagskránni og fremur subbuleg vinnubrögð. en þess verður sjálfsagt ekki langt að bíða að honum verði enn einu sinni misboðið.
Af visir.is (23.06.2014) http://www.visir.is/samviskufongum-faekkar-i-nordur-koreu/article/2014140629635 :
,,Amnesty sagði þvert á móti í desember síðastliðnum að fjöldi þeirra væri að aukast eftir að greining á gervihnattamyndum sýndi fram á fjölda nýrra íbúðarbragga í grennd við eina af stærri fangabúðum landsins. Frámunalega illa skrifuð frétt. Bara ein málsgrein: Fjöldi að aukast , eina af stærri fangabúðum. Þetta er úr kynningu á fréttinni: ,, Ný rannsókn hefur leitt í ljós að fjöldi þeirra sem situr nú í fangabúðum í landinu hafi fækkað umtalsvert á síðustu árum. Ekki batnar það. Fjöldi hafi fækkað! Hvar er gæðaeftirlitið? Fleira hefði mátt tína til.
Í fótboltafjasi í Ríkissjónvarpinu (23.06.2014) var talað um kamerúnska staffið starfslið kamerúnska liðsins og að fagna var að sýna hluttekningu! Tekið var sérstaklega fram að knattspyrnuliði væri hrósað fyrir að vera mannlegt! Nema hvað? Hlustaði Molaskrifari þó ekki lengi.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2014 | 09:06
Molar um málfar og miðla 1501
Ingólfur Arnarson benti Molaskrifara á fréttabarnsfrétt á mbl.is (21.06.2014). Hann segir: Svona til gamans, fréttabörn að störfum.
Hraðskreiður eltingaleikur við lögreglu?? Klesst á??
Fyrirsögn: 17 ára ökuþór handsamaður Úr fréttinni:
,,Audi - Hin stolna bifreið var af Audi gerð og olli gríðarlegum skarkala (undir mynd)
Eftir hraðskreiðan eltingaleik við lögreglu var 17 ára ökuþór, sem stal bíl í Genf og olli fjölmörgum umferðarslysum, handsamaður á miðvikudag.
Bílstjórinn sem um ræðir er búsettur í Frakklandi en er færeyskur að uppruna. Lögregluyfirvöld voru fyrst látin vita af glæpnum þegar Audi bíll sást aka á móti umferð nálægt borginni Saint-Prex í Sviss.
Eftirför lögreglu náði þegar mest lét 200 kílómetra hraða og Audi bíllinn umræddi klessti á fimm aðrar bifreiðar áður en loksins tókst að stöðva hann. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/06/21/17_ara_okuthor_handsamadur/
Um helgar leika fréttabörnin víða lausum hala.
Það er eitt og annað við þessa frétt af vef Ríkisútvarpsis (21.06.2014) að athuga: http://www.ruv.is/frett/astum-tonleikagesti-vikid-ut-af-messiasi
Í fyrsta lagi er það fyrirsögnin: Æstum tónleikagesti vikið út af Messíasi. Hann var rekinn út af tónleikum. Í fréttinni segir: Bandarískum efnafræðingi var vikið út af flutningi á óratoríunni Messíasi... Þar segir ennfremur: David Glowacki, sérfræðingur í sameindaefnafræði við Stanford-háskóla, virðist þó hafa tekið hvatninguna lengra en tónleikahaldarar áttu von á.
-Tekið hvatninguna lengra? Við hvað er átt?
Í fréttum Stöðvar tvö (23.06.2014) var sagt frá fréttamönnum sjónvarpsstöðvarinnar Al Jazeera sem hlutu fangelsisdóma fyrir að flytja falskar fréttir eins og það var orðað. Ekki finnst Molaskrifara það vel orðað. Í fréttum Ríkissjónvarps var talað um þeir hefðu verið dæmdir fyrir rangfærslur og hlutdrægni. Skýrara og betra orðalag.
Undarlegt þótti Molaskrifara hinsvegar hve lítið bandaríska stöðin CNBC hefur gert með þennan dóm í þeim fréttum hennar sem hér er hægt að sjá.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2014 | 07:49
Molar um málfar og miðla 1500
https://www.dv.is/lifsstill/2014/6/20/gunnhildur-tekst-vid-mannskaedan-e-bolufaraldur-R4FLUF/
Og segir: ,,Þetta er athyglisverður ritháttur á erlendu heiti smitsjúkdóms. - Veiran sem veldur þessum sjúkdómi heitir ebola-veira. Ekki sjálfgefið að það beygist eins og íslenska orðið bóla. - Þakka bréfið.
Kjarninn (44. útgáfa) sagði frá komu SDG á Austurvöll 17. júní: ,, .... og flýtti sér inn um þegar lokaðar dyrnar. Það hefði Molaskrifari viljað sjá!
Seinni fréttir Ríkissjónvarps hófust ekki á venjulegum, auglýstum, tíma í gærkveldi (23.06.2016). Knattspyrnuleik sem sendur var út beint lauk vel fyrir klukkan 22 00. Þessvegna hefði verið hægt að hefja fréttir stundvíslega á auglýstum tíma í prentaðri dagskrá. Það þurfti hinsvegar að koma að tuttugu mínútna fótboltafjasi. Þeir sem vildu heyra fréttir urðu bara að bíða. Á netinu var búið að seinka fréttum til klukkan 22 15, en það var ekki einu sinni hægt að standa við það. Fréttaþulur tók fram, loks er fréttir hófust, að þær væru með seinni skipunum vegna knattspyrnuleiks. Það var rangt. Leiknum lauk fyrir klukkan 2200. Ekki sá Molaskrifari seinkunina tilkynnta með skjáborða. Kannski ráða menn ekki við þá tækni. Það gera þær sjónvarpsstöðvar, sem sýna viðskiptavinum sínum sæmilega kurteisi. Þetta var venjubundinn yfirgangur íþróttadeildar. Fótbolti hefur forgang í fótboltasjónvarpi ríkisins. Hversvegna mátti ekki senda þetta innihaldslitla fjas um nánast ekki neitt út á íþróttarásinni og láta auglýsta dagskrá halda sér ?
Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins á sunnudag (22.06.2014) var skrifað af skilningi um þann vágest sem Alzheimer-sjúkdómurinn er. Margir þakka þau skrif. Molaskrifari er einn þeirra.
Í Morgunblaðinu á laugardag (21.06.2014) var skemmtilegur pistill , Málið: Fallegt mál, eftir Evu S. Ólafsdóttur. Hún ræðir meðal annars um þýðingar á heitum sjónvarpsþátta og nefnir Aðþrengdar eiginkonur, Desperate Housewives. Molaskrifari nefnir að betri þýðingu lagði Sigurður Hreiðar, sem lengi var blaðamaður, til fyrir nokkuð löngu. Hann vildi kalla þáttinn Hamslausar húsmæður. Það er raunar miklu betri þýðing en Aðþrengdar húsmæður. Réttilega nefnir Eva vond þáttanöfn, sem Molaskrifari hefur reyndar einnig nefnt, oft meira að segja- Ísland got talent og The Biggest Loser Ísland. Þessi þáttaheiti erum öllum hlutaðeigandi til skammar. Á einhverri norrænu stöðinni er nú verið að endursýna fyrstu svarthvítu þættina af Upstairs, Downstairs (1971- 1975) sem nutu fádæma vinsælda. Á íslensku voru þeir kallaðir Húsbændur og hjú, sem er fínt nafn. Danska heitið er líka gott. Herskab og tjenestefolk.
Nú er löngu hætt að þýða kvikmyndaheiti eins og ævinlega var gert í gamla daga. Góð þýðing á kvikmyndaheiti var til dæmis nafn myndarinnar On the Waterfront, sem var áttföld Óskarsverðlaunamynd með Marlon Brando í aðalhlutverki og var sýnd í Stjörnubíói. Á íslensku hét myndin Á eyrinni. Mig hefur alltaf grunað að Árni Böðvarsson, orðabókarhöfundur og seinna málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins hafi gefið myndinni þetta nafn. Mig minnir að Árni hafi gert það í hjáverkum að þýða ,,prógrömmin efnisútdrættina sem voru seldir sem tvíblöðungar á öllum bíósýningum í gamla daga. Nær allir keyptu ,,prógramm. Ágústa kona Árna var náskyld Hjalta Lýðssyni sem átti Stjörnubíó. Þau voru systkinabörn, muni Molaskrifari rétt, en nú er hann líklega kominn út fyrir efni þessar fimmtán hundruðasta Molapistils!
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.6.2014 | 08:00
Molar um málfar og miðla 1499
Svona til að undirstrika þetta, sagði landbúnaðarráðherra í fréttum Stöðvar tvö í gærkveldi (22.06.2014): ,, Ég fékk það hlutverk að klippa á borðann og vígja þessa styrkingu innviðanna í sauðfjárrækt ... Verið var ljúka endurbyggingu réttar. Þarna var ekkert vígt. Sagt var að séra Hjálmar Jónsson hefði blessað réttina. Það er annar handleggur. Landbúnaðarráðherra er ekki vígður maður. Hann getur ekkert og engan vígt. Orðalagið var út í hött.
Það er orðið svo algengt að heyra beygingarvillur, innbyrðis málfræðilegt misræmi í setningum, í fréttum margra fjölmiðla að það mundi æra óstöðugan að telja það allt upp.
Ríkisútvarpið er eini fjölmiðillinn þar sem starfar sérstakur málfarsráðunautur, en starfa hans sér því miður ekki mikinn stað. Hinir nýju stjórnendur Ríkisútvarpsins, útvarpsstjóri og fréttastjóri eiga að hafa metnað til að gera betur.
Auglýsingastofur ráða málfari í auglýsingum. Enskuslettum í auglýsingum fer fjölgandi. Hrært er saman íslensku og ensku. Í Fréttablaðinu (20.06.2014) er heilsíðuauglýsing frá fyrirtæki sem kallar sig Culiacan. Þar segir: Hættu í megrun vertu fit. Orðið fit er ekki íslenska. Það er enska. Keep fit, vertu í góðri þjálfun , í góðu formi.
Í myndatexta í DV (20.-23.06.2014) segir, að skip sem var selt hafi skipt um hendur. Molaskrifari vissi ekki að skip hefðu hendur og enn síður að skip gætu skipt um hendur!
Í fréttum Stöðvar tvö (19.06.2014) var sagt: ,, ... kvað innanríkisráðherra sér hljóðs ... Ráðherrann kvað sér ekki hljóðs. Ráðherrann kvaddi sér hljóðs.
Í kynningu á dagskrá Ríkisútvarpsins (20.06.2014) var aftur og aftur talað um að gera tónlist. Er það að flytja tónlist eða semja tónlist?
Mbl.is sagði okkur á föstudag frá kúm í lausagangi (http://www.mbl.is/sport/frettir/2014/06/20/kyr_i_lausagangi_a_kastsvaedinu_myndband/). Fyrirsögnin var: Kýr í lausagangi á kastsvæðinu, - svæði þar sem verið að keppa í sleggjukasti. Í fréttinni segir: ,, Á meðfylgjandi myndskeiði sem Óðinn Björn tók upp á símann sinn má sjá kýr í lausagangi og ýmislegt fleira áhugavert sem menn eiga ekki að venjast á kastsvæðum frjálsíþróttavalla. Fréttabarnið á mbl.is sem þarna var að verki greinir ekki milli lausagangs , þegar bílvél er í gangi en bíllinn stendur kyrr, og lausagöngu, - þegar gripir ganga á ógirtu landi, utan girðinga! Það léttir lundina að lesa svona !
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.6.2014 | 08:14
Molar um málfar og miðla 1498
Það er með ólíkindum hve HM lýsendur Ríkisútvarpsins eru ófagmannlegir. Þeir eru stöðugt að segja áhorfendum hvað þeir sjá á skjánum í stað þess að vinna eins og fagmenn og koma með stoðupplýsingar sem fylla upp í myndina. Þeir ættu að kanna hvernig þýskir og enskir lýsendur vinna. Eða bara að hlusta á gamlar lýsingar með vini okkar Bjarna Fel. Þessir piltar eru svo þreytandi (undanskil Einar Örn Jónsson) að maður leitar á erlendu stöðvarnar fremur en að hlusta á blaðrið.
PS: Það er eins og þeir séu að lýsa í útvarp, eða fyrir blint fólk.
Samtali lokið!
Molaskrifari játar að hann fylgist illa með fótboltaútsendingum sem Ríkisfjölmiðillinn hefur verið lagður undir nær nótt sem nýtan dag og dagskrá öll sett úr skorðum. Ef Molaskrifari horfir, hneigist hann fremur að breskum stöðvum. Ríkisútvarpið hefur nefnilega tekið sér rétt til að brjóta þann samning sem ég hef gert við Símann til að horfa á norrænu stöðvarnar. Þar er lás á boltanum. Mér skilst að þeir sem verða fyrir barðinu á Ríkisútvarpinu með þessum hætti, geti ekkert sagt, bara verið súrir! Molaskrifari þykist þó vita að mikið sé til í því sem þessi fyrrverandi starfsfélagi segir. Fleiri hafa haft orð á þessu. Kærar þakkir fyrir bréfið.
Góðvinur Molanna skrifaði (18.06.2014) : ,,Má til með að vekja athygli á illskiljanlegri forsíðufyrirsögn Fréttablaðsins í morgun:
,TUGIR ÍSLENDINGA SNÚA ALDREI AFTUR EFTIR VINNUSLYS ÁR HVERT.
Þarna hefði etv. farið betur að skrifa:
Árlega hverfa tugir Íslendinga frá starfi eftir vinnuslys.
(Sama lengd í bókstöfum - eða styttri.) Molaskrifari er sammála og þakkar línurnar.
Lesandi (harri) skrifaði:,, Vef Ríkisútvarpsins tókst að vera með málvillu í fyrirsögn íþróttafréttar í vikunni. Fyrirsögnin var: Bandaríkin aftur komnir yfir gegn Ghana. Molaskrifari þakkar ábendinguna.
http://www.ruv.is/frett/bandarikin-aftur-komnir-yfir-gegn-ghana
Haukur benti Molaskrifari á ótrúlega fyrirsögn á vef dv.is: (18.6.14).
"Schumacher lést mikið - gat kinkað kolli og opnað augun."
http://www.dv.is/frettir/2014/6/18/schumacher-lest-mikid-gat-kinkad-kolli-og-opnad-augun/ - Molaskrifari þakkar ábendinguna.
Í morgunfréttum Ríkisútvarps (20.06.2014) var sagt: Kólombía vann leik Fílabeinsstrandarinnar ??? Hafði ekki Kólombía betur í boltaleik gegn Fílabeinsströndinni. Ekki vandað orðalag.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2014 | 08:14
Molar um málfar og miðla 1497
Hildur Hermóðsdóttir skrifaði (18.06.2014): ,,Sæll Eiður, mig langar bara að þakka fyrir frábær skrif um íslenskt mál. Af nógu er að taka og subbuskapurinn sem ríkir á fjölmiðlunum hreint ótrúlegur. Eitt sem stingur nú sí og æ í eyru (og þú ert trúlega búinn að fjalla um) er að nú setja menn sífellt "fókusinn á" hlutina í stað þess að veita þeim athygli. Heyrði þetta enn og aftur dynja í útvarpinu í morgun og varð að koma ergelsinu frá mér. Einkennilegt er líka að heyra talað um að byssur séu "haldlagðar" og bílar "keðjaðir" - átta mig ekki alveg á þessari breytingu á viðtekinni notkun sagna. Nóg að sinni. Kveðja, Hildur. Molaskrifari þakkar Hildi kærlega fyrir þarfar ábendingar og góð orð um Molaskrif.
Lesið í DV (17.-19.06.2014): Rottan mætti dauðdaga sínum þegar maðurinn lét skóflu reiða til höggs. Maðurinn lét ekki skóflu reiða til höggs. Maðurinn reiddi skóflu til höggs.
K.Þ. benti á þessa frétt á dv.is (17.06.2014) https://www.dv.is/frettir/2014/6/17/ok-nidur-fimm-ara-dreng-skitur-skedur-lifid-heldur-afram/
Í fréttinni segir: Skítur skeður, lífið heldur áfram, sagði Wayne Payne, 31 árs gamall Breti við foreldra fimm ára gamals drengs sem hann ók niður í apríl í fyrra. K.Þ. segir: ,, Óttalega er þetta aulalegt: Það er svo sannarlega rétt.
Lesandi vísar til þessarar fréttar á visir.is (17.06.2014): http://www.visir.is/article/20140617/LIFID01/140619216
Hann spyr og ekki að ástæðulausu: ,,Var barn Bryndísar Heru ekki skírt? Og skírði þessi Ásgeir Kolbeins barn sitt sjálfur? Er hann þá prestur? Réttmætar spurningar.
Einhverra hluta vegna er það æ algengara að heyra útsendingarklúður í fréttatímum Ríkisútvarps. Síðast í morgun (20.06.2014) í áttafréttum. Kæruleysi eða klaufaskapur?
Sem hefur lengi ekki verið skugginn af sjálfum sér, sagði fréttamaður Ríkisútvarps um knattspyrnumann í Speglinum (19.06.2014). Þetta hljómaði ekki rétt. Var ekki rétt. Betra hefði verið að segja: Sem lengi hefur aðeins verið skugginn af sjálfum sér, sem hefur hrakað mjög, sem hefur farið mikið aftur.
Það heyrir til undantekninga í Ríkissjónvarpinu að sagt sé hvenær efni verði endursýnt. Hjá mörgum erlendum stöðvum er þetta regla. Sennilega er skipulagsleysið of ráðandi í dagskárstjórn Ríkissjónvarpsins til þess að unnt sé að tilkynna endursýningar með góðum fyrirvara. Stundum er okkur meira að segja alls ekki sagt að verið sé að bjóða upp á endursýnt efni. Heldur slök vinnubrögð.
Það hefur lengi verið svo, að auglýsingar á Bylgjunni hafa verið lesnar með hvimleiðri hrynjandi. Í eyrum Molaskrifara hefur það hljómað eins og hálfgerður sífurtónn og einkar óíslenskulegur talsmáti. Að undanförnu hefur því miður heyrst samskonar lestur í Ríkisútvarpinu. Þetta ætti að vera hægt að lagfæra með tal- og lestrarþjálfun.
,,Þínar aðstæður. Okkar áskorun,- er hallærisleg skjáauglýsing í sjónvarpi. Gevalia segir í sjónvarpsauglýsingu: ,,Gott kaffi fær fólk til að tala. Eins mætti segja: ,,Gott kaffi fær fólk til að mala!
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.6.2014 | 09:21
Molar um málfar og miðla 1496
Björn skrifaði (17.06.2014): ,,Skelfing er aulalegt að íþróttadeild Stöðvar 2 skuli kynna dagskrá sína á HM á ensku og að Mogginn og Fréttablaðið skuli birta textann óbreyttan á síðum sínum. Dæmi: ,,Stöð 2 Sport 2: 18.30 Brazil and Mexico, 19.00: Russia, Cuiaba and South Korea. Blöðin standa sig illa í að lagfæra þetta ekki. Það er hverju orði sannara. Þakka ábendinguna.
Nú er aðeins sagt: Fréttalestri er lokið í lok miðnæturfrétta Ríkisútvarpsins. Þulur er hættur að segja: Næstu fréttir verða klukkan sjö í fyrramálið. Sennilega skammast menn sín fyrir að leggja áherslu á hve þjónustan við hlustendur er léleg, - engar fréttir frá miðnætti til klukkan sjö að morgni. Sjö klukkutímar án frétta í útvarpi allra landsmanna. Svona hegðar ekkert almannaútvarp, ríkisútvarp sér, - nema íslenska Ríkisútvarpið.
Í stuttum texta heilsíðu auglýsingar í Fréttablaðinu (16.06.2014) frá grískum flugvirkjaskóla eru villur. Þar segir til dæmis: Skólinn er staðsettur á El. Venizelos alþjóðaflugvöll í Aþenu. Ekki vönduð vinnubrögð hjá auglýsingastofunni sem lætur svona frá sér fara.
Í smáauglýsingu í sama blaði er talað um Kóranska bíla. Bílarnir koma Kóraninum ekkert við (varla að maður þori að nefna þetta!). Átt er við bíla frá Kóreu, kóreska bíla.
Af vef Keflavíkurflugvallar (16.06.2014): Við mælum með að farþegar komi til innritunar 2-2,5 klukkustundum fyrir brottför. Innritunarborð opna klukkan 4:30. Einhverjum finnst það kannski smámunasemi, en hvað eru 2,5 klukkustundir? Er það tveir og hálfur tími? Sennilega. Innritunarborð opna hvorki eitt né neitt. Innritun hefst klukkan 4:30. Mikið að ekki var sagt klukkan 4,5 !
Fjármálaráðherra talaði í fréttum Ríkisútvarps (16.06.2014) um að byggja undir lífskjörin í landinu. Hann átti sennilega við að treysta , bæta lífskjörin í landinu. Í fréttum sama miðils sama dag var oftar en einu sinni sagt að leikskólakennarar væru sáttir með nýjan kjarasamning. Formaður Félags leikskólakennara sagðist hinsvegar vera sáttur við samninginn. Það finnst Molaskrifara eðlilegra orðalag.
Af vef Ríkisútvarpsins (16.06.2014): Þyrlan flaug til móts við vélina og flaug með henni til Keflavíkur þar sem hún lenti heil á höldnu. venjulega segjum við ... heilu og höldnu, - hélt Molaskrifari. http://www.ruv.is/frett/tilkynnt-um-velarvana-flugvel
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2014 | 09:03
Molar um málfar og miðla 1495
Molavin skrifaði (15.06.2014): "10 ávanar hamingjusamra para" segir í fyrirsögn þess helgarmogga, sem ber hið þjóðlega nafn Monitor. Málkennd og orðabók segja manni að "ávani" þýði "slæm venja." Í greininni er hins vegar fjallað um 10 hollar lífsvenjur, sem einkenni hamingjusamt fólk í sambúð.- Molaskrifari þakkar ábendinguna.
Hefnt verður fyrir þá sem féllu, var sagt í fréttum Ríkissjónvarps (14.06.2014). Molaskrifari hefði sagt: Þeirra sem féllu verður hefnt ....
Það var gaman að horfa og hlusta á ,,Lýðveldisbörnin rifja upp minningar frá lýðveldisstofnuninni á Þingvöllum 1944 í Ríkissjónvarpinu í gærkveldi (17.06.2014) . Stuttur þulartexti hefði þolað yfirlestur.
K.Þ benti á þessa fréttir á visir.is (15.96.2014) http://www.visir.is/thekktasti-utvarpsmadur-bandarikjanna-latinn/article/2014140619408,
Þar segir meðal annars: Þrátt fyrir að við vitum að hann er á betri stað og þjáist ekki lengur, erum við hjartasorg. Við erum hjartasorg! Það var og. Áður stóð reyndar í fréttinni: Erum við hjartbrotin, - í ensku fréttinni, sem þarna liggur að baki stóð we are heartbroken. K.Þ. spyr réttilega: Spelkur? Getur það verið að fréttabarnið sem þarna var að verki hafi notað Google þýðingavélina? Það hlýtur eiginlega að vera.
Ótrúlegt en satt. Íþróttafréttamenn Ríkissjónvarps halda áfram (16.06.2014) að bulla um gestgjafa Brasilíu ! Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fer fram í Brasilíu. Brasilíumenn eru gestgjafar þátttökuþjóðanna. Gestgjafar Brasilíu er bara bull. Hverjir eru gestgjafar Brasilíu?
Molaskrifari er ekki sáttur við það, þegar sagt er í Ríkisútvarpi eftir síðasta lag fyrir fréttir , að NN hafi sungið, en textinn verið eftir AA. Þetta heyrist ekki hjá reyndum þulum en nýgræðingar, eða lítt vanir, taka stundum svona til orða ( 16.06.2014). Daginn eftir, snemma að morgni þjóðhátíðardags voru að venju leikin og sungin ættjarðarlög. Þá talaði sami þulur um texta eftir Einar Benediktsson, Grím Thomsen og Pál Ólafsson. Sama gilti um um ljóð Stephans G., Steingríms o.fl. Það ætti einhver að benda konunni á að þetta orðalag er vart við hæfi, þegar rætt er um ljóð þjóðskáldanna. Kannski finnst einhverjum þetta sérviska hjá Molaskrifara.
Í fréttum Stöðvar tvö á laugardagskvöld (14.06.2014) var sagt að Icelandair hefði fellt niður sextíu og fimm flug á mánudag. Átt var við 65 flugferðir. Ríkisútvarpið notar ævinlega orðalagið að flugferðir hafi verið felldar niður. Hrós fyrir það.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2014 | 09:35
Molar um málfar og miðla 1494
Hvernig er farið að, þegar bíll er stunginn lífshættulega???Von er að spurt sé. Einhver fullorðinn á vaktinni hefur rekið augun í þetta, því fyrirsögnin var leiðrétt.
Enn kom það skýrt í ljós í gærkveldi (15.06.2014) að fréttirnar mæta afgangi í Ríkissjónvarpinu. Þær skipta ekki máli. Þeim er kastað fram og til baka í samræmi við duttlunga íþróttadeildar, ef boltaleikir eru á hefðbundnum útsendingartíma frétta. Fréttir áttu að hefjast klukkan 18 30. Þær hófust klukkan 18 55 vegna þess að boltaleikur dróst á langinn. Enginn afsökun. Bara sagt að fréttir væru seint á ferð vegna boltaleiks. Er enginn á vakt sem getur skrifað skjáskilti og sagt frá seinkun fréttanna? Maður talar nú ekki um að biðjast afsökunar á næstum hálftíma seinkum frá auglýstri dagskrá. Því verður vart trúað. Eða er þetta bara venjuleg framkoma Ríkissjónvarpsins við klafabundna viðskiptavini? Og ekki var sjónvarpsfréttunum útvarpað að þessu sinni á Rás 2. Það er þó er venja.
Af mbl.is (15.06.2014): Icelandair hefur lofað hverjum þeim sem finnur hundinn, tvo flugmiða hvert sem er í heiminum. Fákunnátta og/eða beygingafælni. Icelandair hefur lofað hverjum þeim .. tveimur flugmiðum. Lofa einhverjum einhverju.
K.Þ. Bendir á eftirfarandi frétt af svokölluðu Smartlandi á mbl. is http://www.mbl.is/smartland/heimili/2014/06/13/honnunarvilla_i_kopavogi/
Hann segir:
Skoðun myndanna leiðir í ljós að fyrirsögnin er rétt!
Meira úr Smartlandi Morgunblaðsins. Nú frá laugardegi (14.06.2014): Þar er fyrirsögnin: Fá góðan stuðning frá hver annarri http://www.mbl.is/smartland/heimili/2014/06/14/fa_godan_studning_fra_hver_annarri/
Ég er í velkomunefndinni, var sagt í neðanmálstexta á Stöð tvö á föstudagskvöld (13.06.2014). Þýðandinn hefur sennilega aldrei heyrt orðið móttökunefnd.
Getur Ríkissjónvarpið okkar ekki fengið fleiri matreiðsluþætti frá danska sjónvarpinu DR ?
Gleðilega þjóðhátíð, ágætu Molalesendur !
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)