27.5.2016 | 09:34
Molar um málfar og miðla 1952
FLAK KAFBÁTAR
Af mbl.is (25.05.2016): Fundu flak bresks kafbátar, segir í fyrirsögn á mbl.is . Sama villan í fréttatextanum. ,,Kafari fann nýverið flak bresks kafbátar frá árum síðari heimsstyrjaldarinnar við strendur ítölsku eyjarinnar Sardiníu. Kafbáturinn HMS P 311 fórst í janúar 1943 með 71 mann um borð. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/05/25/fundu_flak_bresks_kafbatar/
Gömul saga og ný. Enginn les yfir það sem viðvaningar skrifa.
Fleiri sáu þetta: Molavin skrifaði (25.05.2016) "Fundu flak bresks kafbátar" segir í fyrirsögn á Netmogga (25.05.2016) og er endurtekið svo í frétt. Innsláttarvillur má auðveldlega fyrirgefa en að blaðamaður kunni ekki að beygja jafn algengt nafnorð og "bátur" í eignarfalli er neyðarlegt. Í eina tíð voru svona vinnubrögð kölluð "moggafjólur." Væru fréttir viðvaninga lesnar yfir af reyndu fólki mætti draga úr þeirri smán, sem forðum virtir fjölmiðar verða æ oftar að sæta.
Þakka bréfið, Molavin.
Þorvaldur sá þetta líka og segir í bréfi til Mola:,, Í vefmogga í gær er sagt frá ítölskum kafara sem fann flak kafbáts. Margtuggið er í frétt og fyrirsögn "fann flak kafbátar" Enn eitt dæmi um vankunnáttu í fallbeygingu einföldustu orða Þakka bréfið. Þorvaldur.
Um beygingu orðsins bátur:
http://bin.arnastofnun.is/leit/?q=b%C3%A1tur
Önnur beygingarvilla á mbl.is sama dag: ,, Um var að ræða tæplega sex þúsund tonn af kvars, steintegund sem er meðal grunnefna sem notuð eru við kísilmálmvinnsluna. Þarna hefð átt að tala um sex þúsund tonn af kvarsi. Ekki sexþúsund tonn af kvars.
MIKIL GÆÐI
Úr yfirlýsingu frá Íslenskri erfðagreiningu,sem birt var á mbl.is (24.05.2016): ,, Það var hins vegar mat vísindamanna ÍE að rannsóknir Roberts væru ekki af miklum gæðum og að uppkast að vísindagrein sem hann deildi með þeim væri ekki birtingarhæft. Molaskrifari hallast að því að í stað þess að segja að rannsóknir væru ekki af miklum gæðum, hefði verið betra að segja að rannsóknirnar hefðu ekki verið vandaðar.
LANDVEGAMÓTIN
Af forsíðu visir.is (24.05.2016):,, Einn var fluttur alvarlega slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir bílveltu nærri söluskálanum við Landvegamót á Hellu. Landvegamótin eru ekki á Hellu. Enn eitt dæmið um lélega landafræðikunnáttu fréttaskrifara. Landvegamótin eru talsvert vestan við Hellu. Giska á 6-8 km.
AÐ VERA KUNNUGT UM
Af. dv.is (24.05.2016) :,, Hildur starfar sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild og er því vel kunnug um þær hættur sem fylgja rafhlöðum,. Hér hefði fremur átt að standa : ... og er því vel kunnugt um þær hættur,sem fylgja rafhlöðum. Eða: ... vel kunnug þeim hættum, sem fylgja rafhlöðum.
AÐ LIGGJA VIÐ HÖFN
Enn einu sinni hefur ambagan að skip liggi við höfn, ratað inn í fréttaskrif. Í þetta sinn á mbl.is (25.05.2016). Þar segir um sjö karlmenn ,sem reyndu að komast um borð í skip,sem lá við bryggju á lokuðu svæði við Sundahöfn: ,, Lögreglu grunar að mennirnir hafi ætlað sér að reyna að komast um borð í fraktskip sem lá þar við höfn. Skip liggja við bryggju. Skip eru í höfn. Skip geta legið við festar. Skip geta legið við akkeri. Skip liggja ekki við höfn.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/05/25/handteknir_a_lokudu_hafnarsvaedi/
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2016 | 06:58
Molar um málfar og miðla 1951
GALLVASKUR FORMAÐUR
Molalesandi benti á eftirfarandi frétt á dv.is (22.05.2016) https://www.dv.is/frettir/2016/5/22/sigmundur-er-alls-ekki-haettur-stefnir-aftur-forsaetisraduneytid/
Hann skrifar:,,Í fréttapistli á DV.is í dag er haft eftir Sigmundi Davíð, að Framsóknarflokkurinn "fari gallvaskur í næstu kosningar". Akkúrat það. Er verið að tala um gall- svona eins og gall-súran - eða gall-aðan.
Væntanlega er ekki verið að ræða um galvaskan flokk heldur annað hvort gall-aðan eða gall-súran. Nema fréttaskrifari hafi þarna rangt eftir Framsóknarformanninum. Feili á réttrituninni. Sé eins og þú segir "blessað fréttabarn".
Hvernig er þetta? Eru engir prófarkalesarar lengur starfandi á fréttamiðlum? Hver uppfræðir þá fréttabörn, sem bila á íslenskunni? Eru þeir bara látnir vera "bilaðir" áfram? Þakka bréfið. Galvaskur átti þetta auðvitað að vera. Prófarkalesarar eru horfin stétt. Enginn les yfir áður en birt er. Gleymd er gamla reglan: Beur sjá augu en auga.
AÐ VERSLA VEITINGAR
Á fréttavef Ríkisútvarpsins (23.05.2016) var frétt um salernisaðstöðu í Dimmuborgum. Þar segir:,, Rekstur aðstöðunnar er í hö(n)dum Kaffi Borga, en í staðinn fá viðskiptavinir þess aðgang að klósettinu þegar þeir versla veitingar. Rögnvaldur Már Helgason, skrifaði fréttina. Honum, eins og of mörgum öðrum fréttaskrifurum, er ekki ljós munurinn á notkun og merkingu sagnanna að kaupa og að versla. Halda að þær hafi nákvæmlega sömu merkingu. Svo er þó ekki.
Oftsinnis hefur verið vikið að þessu Molum.
EIGENDASKIPTI AÐ EÐA Á
Glöggur maður benti Molaskrifara nýlega á eyðublað frá Samgöngustofu þar sem þrívegis er talað um eigendaskipti að ökutæki. Okkur kom saman um að þarna ætti sennilega frekar að tala um eigendaskipti á ökutæki. Ekki er til dæmis talað um eigendaskipti að hestum, heldur eigendaskipti á hestum. Þetta snýst þó ef til vill fyrst og fremst um málsmekk eða málkennd.
En það er alls ekki nýtt í málinu að tala um eigendaskipti að e-u. Eigendaskipti urðu að Þjóðólfi, Ísafold 1888. Eigendaskipti verða að skipi eða skipshluta , Ægir 1930.
Í Ísafold 1895 er talað um eigendaskipti á fénaði og í Kirkjubl. 1894 eigendaskipti á kirkjustöðum. Í Ægi 1930 er talað um hin tíðu eigendaskipti á skipunum. Algengast virðist fram til 1990 að tala um eigendaskipti á e-u en eftir 200 verður algengara að tala um eigendaskipti að e-u. Svona breytist málið.
Samgöngustofa gæti líka kallað þetta eyðublað tilkynningu um eigendaskipti ökutækis, eða tilkynningu um breytt eignarhald á ökutæki. Þakka góða ábendingu og fróðlegar upplýsingar
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2016 | 09:42
Molar um málfar og miðla 1950
KVENVARA?
Sigurður Sigurðarson skrifaði (22.05.2016): ,, Verslunin sem kallar sig Herralagerinn outlet segir meðal annars í heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu 21. maí 2016:
Mikið úrval af kvenvöru.
Lesandinn velti því fyrir sér hvort mansalið hafi tekið á sig nýjar myndir hér á landi. Karlvörur eru hins vegar ekki auglýstar. Svo má auðvitað gera athugasemdir við að eigendur svo ágætrar verslunar skuli ekki nota íslensku í heiti hennar. Eflaust halda þeir að íslenska nafnið eitt og sér dragi ekki nóg að og enskan hjálpi þar til. Auðvitað er það misskilningur. Kærar þakkir, Sigurður. Í Molum hafa oft verið gerðar athugasemdir við þessa outlet slettu dýrkun íslenskra kaupmanna.
KEYPTI LANDA RÉTTINDALAUS
Rafn benti á þessa fyrirsögn á mbl.is (23.05.2016) og spyr: ,,Hver veitir réttindi til landakaupa? og hvaða skilyrði ætli umsækjandi þurfi að uppfylla??
Fyrirsögnin er út úr kú. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/05/23/keypti_landa_rettindalaus/ Í fréttinni kemur eftirfarandi hins vegar fram:,, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ökumanni bifreiðar og ætluðum landasala rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Ökumaðurinn var að kaupa landa af manni sem stóð við brún gangstéttar við Seljabraut í Breiðholti. Til að bæta gráu ofan á svart reyndist ökumaðurinn aldrei hafa öðlast ökuréttindi.
STELPURNAR
Það var undarlegt að hlusta (Ríkissjónvarpið 21.05.2016) á lögmann ferðaþjónustufyrirtækis í Vestmannaeyjum ítrekað tala um ungar konur, sem slösuðust mjög alvarlega, hryggbrotnuðu, í ferð á vegum fyrirtækisins, sem stelpurnar. Frá sjónarhorni lesanda var næsta líklegt, að þarna hafði verið um óvarkárni að ræða, - farið á sjó í veðri sem ekki var sjóveður fyrir bát af þessu tagi.
KYNNING DAGSKRÁR
Kynning á dagskrá Ríkissjónvarpsins í dagblöðum er oft klisjukennd og stundum skondin. Á laugardag (21.05.2016) var Hraðfréttaþáttur kynntur með þessum orðum: ,, Hraðfrétta, heimildaþáttur um tilurð og feril einhverrar farsælustu og langlífustu fréttastofu íslenskrar sjónvarpssögu. Hvaða bull er þetta eiginlega?
ÞÁTTTAKA
Hér er dæmi af mbl.is (20.05.2016) um það að yfirlestur, gæðaeftirlit, er ekki lengur til staðar á netmiðlum þannig að gagni komi: Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Lilja og Stoltenberg hafi rætt þáttöku Íslands í störfum bandalagsins auk þess sem ráðherra greindi frá þróun mála á Íslandi. Orðið þátttaka er rétt stafsett í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins. Seinna í sömu málsgrein á mbl.is er orðið þátttaka reyndar rétt stafsett. En hér ber allt að sama brunni. Menn treysta sér ekki til að kosta prófarkalestur og leiðbeiningar.
SKÍRNATERTUR
Bakari auglýsir skírnatertur í Ríkissjónvarpi (21.05.2016). Ætti að vera skírnartertur að mati Molaskrifara. Yfirlestri er sennilega ekki fyrir að fara í auglýsingadeildinni og væri þó stundum þörf á.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2016 | 10:28
Molar um málfar og miðla 1949
AÐ VERA STADDUR
Sigurður Sigurðarson, sendir Molum oft athyglisverðar ábendingar um það sem betur mætti fara í málfari í fjölmiðlum. Það þakkar Molaskrifari. Sigurður skrifaði (20.05.2016): ,,Þetta var upphaf fréttar sem skrifuð var á mbl.is:
Björgunarsveitir voru kallaðar út að Naustahvilft á Ísafirði vegna fótbrotins karlmanns sem þar er staddur.
Aumlega saman klúðruð málsgrein. Suma þarf að einatt að staðsetja þegar hægt er að nota sögnina að vera. sem þar er staddur. Þarf að taka það fram fyrst björgunarmenn voru sendir á ákveðinn stað. Og hvar í ósköpunum er Naustahvilft?
Betur hefði farið á að segja þetta og bæta við upplýsingum:
Björgunarsveitir voru kallaðar út vegna manns sem hafði fótbrotnað í Naustahvilft, sem er skál í Kirkjubólsfjalli gegnt Ísafjarðarbæ. Þakka bréfið, Sigurður.
AUGLÝSINGAR Á ENSKU
Ingibjörg skrifaði (20.05.2016):. ,,Þú og fleiri eru stundum - og með réttu - að agnúast út í enskuslettur í auglýsingum eins og Tax free og 'Outlet' f. lagersölu. En mér sýnist allir láta LINDEX í friði, en sú keðja slettir ekki, hún auglýsir BARA á ensku, sem mér finnst miklu verra. Maður spyr sig, hvað gengur fólkinu til? Er þetta ekki sænsk keðja? Þetta er ekki verslun sem höfðar sérstaklega til túrista eða annarra útlendinga.
Ingibjörg bætti svo við:,, Kannski tekur þú ekki eftir auglýsingum um föt fyrir konur og börn. Ég er að tala um auglýsingar, oft heilsíðu, sem birtast í Mbl.+ Fréttabl. með mynd af fólki í fötunum, stuttur texti með, eingöngu á ensku. Slagorðið núna er: "Love your summer", og sama áletrunin er í sjónvarpsauglýsingum, ekkert tal á íslensku.
Mér dettur nú í hug þátturinn "Daglegt mál" í gamla daga, þar sem agnúast var út í vont mál á opinberum vettvangi. Ég fór mjög ung að hlusta á þetta eins og annað í Útvarpinu, og ég man aldrei eftir að neitt hafi verið tekið fyrir sem tilheyrði reynsluheimi kvenna og barna. Þar var samt nóg af slettunum, þá kannski mest úr dönsku. Þakka bréfið, Ingibjörg.
ALLT Í KLESSU
Í þessari stuttu frétt á mbl.is (21.05.2016) er tvisvar sinnum sagt að rúta hafi klesst á hól! Æ algengara er að sjá barnamálfar í fréttaskrifum. Reyndur blaðamaður Jóhannes Reykdal vakti athygli á þessu á fésbókinni. Sjá. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/05/21/37_letu_lifid_i_rutuslysi/
SIGRAÐI FORKOSNINGARNAR!
Af fréttavefnum mbl.is (20.05.2016): Eftir að Trump sigraði forkosningar repúblikana fyrr í mánuðinum viðurkenndi Cameron þó að hann hefði náð góðum árangri. Sigraði forkosningarnar! Það var og ! Að sjálfsögðu sigraði Trump ekki forkosningarnar. Hann vann sigur í forkosningunum. Ótrúlega erfitt að hafa jafn einfalt mál rétt.
Sjá: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/05/20/trump_bodid_til_bretlands/
EFTIR HÆTTI
Það eru víst allir, eða næstum allir,- nema Molaskrifari, hættir að kippa sér upp við það þegar skorið er af fréttum eða Kastljósi vegna boltaleikja. Það var gert sl. fimmtudagskvöld (19.05.2016). Kastljósið stytt og svo kom tveggja tíma bolti. Alveg fram að seinni fréttum klukkan 22 00. Þetta er hin venjulega forgangsröðun í Efstaleiti. Allt eftir hætti.
Til hvers er þessi svokallaða íþróttarás? Upp á punt?
VILLULAUS FRÉTT!
Sigurður Sigurðarson skrifaði (22.005.2016): ,,Til tíðinda bar á dv.is í dag að ég rakst á frétt sem var villulaus. Að vísu er ég ekkert sérstaklega glöggur í prófarkalestri, en það er sama. Þegar svona undur gerast gætir maður ósjálfrátt að því hver skrifar, rétt eins og þegar um villur er að ræða. Og viti menn. Höfundurinn var Kolbrún Bergþórsdóttir, ritstjóri DV. Ekki veit ég í hverju vinna hennar felst en hún mætti að ósekju skrifa fréttir og setja tvö þrjú blaðabörn í önnur störf á ritstjórninni, til dæmi í að sópa og laga til. Þakka bréfið Sigurður. Já, Kolbrún ætti að skrifa fleiri fréttir, - eða lesa barnaskrifin yfir fyrir birtingu!
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2016 | 10:24
Molar um málfar og miðla 1948
TIL SALS !
Sigurður Sigurðarson skrifaði Molum 18.05.2016: Mistök við sölu Ásmundarsals algjört einsdæmi, segir í fyrirsögn á visir.is. Þetta heyrðist svo í fréttum Bylgjunnar í dag. Barnið, sem skrifað er fyrir fréttinni, er Þórhildur Þorkelsdóttir. Enginn lagfæring á beygingarvillunni og leið svo dagurinn.
Þakka bréfið, Sigurður. Þetta er allt eftir hætti. Enginn les yfir. Enginn leiðréttir augljósar villur. Það er eins og sumir fréttamenn viti ekki af vef Árnastofnunar um beygingu orða í íslensku , - eða vilji ekki nota hann. Hvað þá að taka fram orðabók og fletta upp.
Þetta er vefurinn. http://bin.arnastofnun.is/leit/?q=salur
FYRIRSAGNASMÍÐ
Molavin skrifaði (20.05.2016): ,,Það er vandi að semja fyrirsagnir á fréttir. Þær mega ekki vera villandi en þurfa að segja kjarna fréttar í mjög knöppu máli. Fyrir daga Netsins var fyrirsagnasmíð ekki algengt viðfangsefni hjá fréttamönnum útvarps. Nú er öldin önnur. Það er því leiðinlegt að sjá á hverjum degi villandi merkingu í fyrirsögnum frétta á vef RUV þar sem viðtengingarháttur sagna er rangnotaður og merking fréttarinnar röng og fyrirsögn villandi. Þetta mætti málfarsráðunautur ræða við fréttamenn en þó sérstaklega eina úr þeirra hópi.- Rétt. Þakka bréfið,Molavin.
OF LANGT ....
Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins á miðvikudagskvöld (18.05.2016) var fjallað um fjölskyldudeilur afkomenda Ingvars Helgasonar, sem auðgaðist vel á bílainnflutningi. Vissulega var það fréttnæmt, að þarna kom fram nokkur skýring á svonefndum ,,eftirlaunasjóði Júlíusar Vífils Ingvarssonar, sem sagði af sér sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, þegar sjóður hans tengdist skjölunum, sem kennd eru við Panama.
Eðlilegt hefði verið að fjalla um þetta mál í 5-10 mínútna innslagi í Kastljósinu. Það var hinsvegar röng ritstjórnarákvörðun að leggja heilan þátt undir frásögn af þessum fjölskyldudeilum. Engum koma erlendir umboðslaunareikningar lengur á óvart , - því miður. Þeir hafa verið staðreynd í áratugi. Þar á sjálfsagt fleira eftir að koma í ljós. Mest kom á óvart hve ótrúlega stuttan tíma tók að kollkeyra þetta stönduga fyrirtæki, sem um tíma lánaði 130 einstaklingum bíla! Kastljós á ekki að blanda sér í fjölskyldudeilur eins og þarna var gert með afar sérkennilegum og óverjanlegum hætti. Ríkissjónvarpið á að gera betur en þetta.
UM BEYGJUR
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (19.05.2016) var sagt frá egypsku farþegaþotunni,sem hrapaði í Miðjarðarhaf. Þar var sagt: ,, ... beygði hún skyndilega, fyrst um 90 gráður til vinstri, síðan 360 gráður til hægri. Ekki er þetta orðalag að skapi Molaskrifara, - að tala um 360 gráðu beygju. Þetta var öðruvísi orðað í Speglinum um kvöldið, en þar var sagt að þotan hefði : ,, ... síðan snúist heilan hring til hægri.
Þetta var orðað á annan veg á mbl.is, en þar sagði: ... hefði skyndilega beygt í 90 gráður til hægri og síðan í heilan hring í hina áttina og fallið um meira en 6.700 metra áður en hún hvarf af ratsjám í nótt.
Vélin flaug hring og sneri við. Reyndar ber þessum miðlum ekki saman um hvort þotan hafi fyrst beygt til hægri eða til vinstri. Á fréttavef BBC segir að vélin hafi fyrst beygt til vinstri. ( Panos Kammenos said the Airbus A320 had "turned 90 degrees left and then a 360-degree turn to the right".)
Í fyrirsögn á visir.is (19.05.2016) er sagt að vélin hafi brotlent. Það er villandi og rangt. Féttir benda til að annaðhvort hafi sprengja sprungið í vélinn eða henni verið grandað með eldflaug. Ekkert bendir til að flugmaður hafi verið að reyna að lenda vélinni og hún brotlent. http://www.visir.is/brak-fundid-ur-egypsku-flugvelinni-sem-brotlenti-i-nott/article/2016160518707
GRUNUR
Molalesandi skrifaði ((19.05.2016): ,,Ég hef lesið í minnst þremur vefmiðlum: ,,Systkinunum fór að gruna... Í mínu ungdæmi hét það: Systkinin fór að gruna... Hárrétt. Þakka bréfið. Algeng villa nú orðið , - því miður. Máltilfinningu og kunnáttu skortir of víða hjá þeim sem flytja okkur fréttir.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2016 | 06:39
Molar um málfar og miðla 1947
ÞAU BLÓMSTRA
Þau blómstra fréttabörnin á visir.is. Þeim þarf að leiðbeina.
Sigurður Sigurðarson skrifaði (13.05.2016) ,,Sæll,
Auðvitað er þetta ekki boðlegt á visir.is , en þegar börnin fara illa með leikföngin þarf að leiðbeina þeim og hlynna að. Á meðan eiga þau ekki að skrifa í fjölmiðla:
Guðjón Baldvinsson, framherji Stjörnunnar, skoraði í kvöld næst fljótasta markið í sögu efstu deildar á Íslandi þegar hann kom sínum mönnum í 1-0 gegn Þrótti eftir aðeins níu sekúndur. http://www.visir.is/throttur-byrjadi-med-boltann-en-gudjon-skoradi-eftir-niu-sekundur-sjadu-markid/article/2016160519507
Hér er átt við að aðeins einn hafi verið jafn snöggur að skora mark í upphafi leiks og þessi frábæri leikmaður Stjörnunnar.
Þakka bréfið, Sigurður. Þessu má svo bæta við:
Á forsíðu visir.is (18.05.2016) er talað um Umferðarofsa, og þar segir: Kona var kýld þegar hún reyndi að koma á milli í slagsmálum. Konan reyndi ekki að koma á milli. Hún reyngi að ganga á milli, stilla til friðar. Úr sömu frétt (18.05.2016) : Fjórir einstaklingar úr tveimur bílum fóru að rífast sín á milli .. Ekkert sín á milli. Fóru að rífast. Lentu í rifrildi. http://www.visir.is/umferdarofsi-leidir-til-slagsmala-a-hradbraut/article/2016160519072
Úr annarri frétt í sama miðli sama dag: Gríðarleg öryggisgæsla er í Hong Kong þar sem háttsetinn ráðamaður Kína er kominn til borgarinnar. Hér er átt við háttsettan ráðamann, ekki háttsetinn, sem er bull. Þetta er reyndar rétt orðað á forsíðunni. http://www.visir.is/gridarleg-oryggisgaesla-i-hong-kong/article/2016160519114
Í frétt á visir.is (16.05.2016) var fjallað um frumvarp til breytinga á reglum um áfengiskaup ferðamanna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar . Þar vefst fyrir fréttaskrifaranum munur á notkun sagnanna að kaupa og versla. Í fréttinni segi: Frumvarp fjármálarráðherra felur í sér að miðað er við einingar í staðinn, nánar tiltekið að hver ferðamaður megi versla sex einingar. Hér hefði að sjálfsögðu átt að tala um að hver ferðamaður mætti kaupa sex einingar, EKKI versla sex einingar. Þetta hefur ærið oft verið nefnt í Molum.
FJÖLGUN Á STULD!
Úr fréttum Ríkisútvarpsins (13.05.2016): Mikil fjölgun hefur verið á bílstuld á síðust tveimur árum. Bílstuldum hefur fjölgað mjög að undanförnu, hefði verið betra. http://www.ruv.is/frett/badir-bilarnir-fundnir
KEPPNI?
Það hvarflar stundum að Molaskrifara, hvort ríkisstyrkta Lottóið og stóru happdrættin ( sem kannski má líka segja að séu ríkisstyrkt, - sum hver a.m.k.) séu komin í keppni um hver bjóði okkur upp á frekjulegustu, ágengustu, skapi næst að segja ,,plebbalegustu útvarpsauglýsingarnar? Oft er engu líkara, en svo sé.
AÐ VERÐLEIKUM
Margrétar Indriðadóttur fyrrverandi fréttastjóra Ríkisútvarpsins, sem lést í hárri elli 18. maí var minnst að verðleikum í fréttum útvarps og sjónvarps (19.05.2016).
Þær gerðu það smekklega, Margrét E. Jónsdóttir og Sigríður Árnadóttir, sem lengi störfuðu með Margréti, - báðar frábærir fréttamenn. Margrét Indriðadóttir var fagmaður fram í fingurgóma, gerði ríkar kröfur til sjálfrar sín og fréttamanna um vandvirkni og hnökralaust málfar. Margrét var brautryðjandi og fyrirmynd í góðum vinnubrögðum og markaði spor í sögu fjölmiðlunar á Íslandi. Blessuð sé minning hennar. Arnar Páll fréttamaður tók þetta saman og gerði það vel.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2016 | 09:26
Molar um málfar og miðla 1946
Hlé hefur verið á Molaskrifum um skeið. Molaskrifari brá sér af bæ. Tók sér far með ferjunni Norrænu frá Seyðisfirði og heimsótti gamla vini í Færeyjum í fáeina daga. Það var ævintýraferð og góðra vina fundur. Sól og blíða í Færeyjum nær allan tímann, svolítill suddi síðasta daginn, sirm, eins og heimamenn segja.
AÐ VILLA SÉR HEIMILDUM OG FJÁRMÖGNUN ÚTFARAR
Molavin skrifaði (14.05.2016): "Maðurinn villti á sér heimildum..." sagði Geir Gígja Gunnarsson í fyrstu kvöldfrétt RUV (14.05.2016). Skiljanlegt er að mislestur hendi í útvarpi, en svona reyndist þetta þó líka skrifað á heimasíðu. Úr því hvorki vaktstjóri né fréttastjóri lesa yfir fréttatexta er enn brýnna að málfarsráðunautur leiðbeini fréttamönnum. Satt er það, Molavin.
Og hér kemur annað bréf frá Molavin (18.05.2016) ,, Hátíðlegt skal það vera! "Peningasöfnun hefur verið sett af stað til þess að aðstoða móður Codys við að fjármagna jarðarför hans..." Þetta er úr frétt Netmogga 18.05.2016 og þar er ekki látið nægja að tala um að kosta útförina. Þetta er greinilega fjárfestingarkostur, svo notað sé annað ofnotaða hugtakið úr fjármálafréttum. - Kærar þakkir, Molavin. Já. Ekki vantar hátíðlegheitin!
OPINBER HEIMSÓKN
Í fréttum Ríkisútvarps (11.05.2016) var okkur sagt, að Donald Trump forsetaframbjóðandi vestra ætlaði að fara í opinbera heimsókn til Ísraels á næstunni. Það getur hann ekki. Ekki frekar en Davíð, Guðni Th. eða Sturla Jónsson gætu farið í opinbera heimsókn til Danmerkur í næstu viku . Verði Trump, illu heilli, kjörinn forseti getur hann auðvitað farið í opinbera heimsókn til Ísraels. Eftir að hann hefur tekið embætti. Ólíklegt er þó að það verði efst á verkefnaskránni, - þrátt fyrir þá staðreynd að gyðingar eru valdamiklir í stjórnmálum vestra.
ÓKURTEISI
Blaðamenn eru stundum sagðir ókurteisir. Oft er það út í hött. Beinskeyttar spurningar eru ekki ókurteisi. Það má hinsvegar kallla það ókurteisi, ef þeir sem spurðir eru, oftast stjórnmálamenn, víkja sér hvað eftir annað undan því að svara eðlilegum spurningum, eða fylgja spurningum eftir.
Sjaldan eða aldrei hef ég heyrt aðra eins ókurteisi og Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi sýndi Arnari Páli Haukssyni í viðtali í Spegli Ríkisútvarps á þriðjudagskvöld. Ég er ekki viss um , ef ég hefði verið í sporum Arnars Páls, að ég hefði haft geð í mér til að halda samtalinu áfram. En hann þraukaði. Ástþór sagði til dæmis við Arnar Pál: ,, Ég velti því fyrir mér hvort þú værir kannski betur kominn á kassa í Bónus, en að starfa hér. Hvers vegna þarf Ástþór Magnússon að gera lítið úr fréttamanninum og fólkinu sem afgreiðir okkur í Bónus ? Innihald viðtalsins var ekki merkilegt.
http://www.ruv.is/frett/ruv-buid-ad-raena-kosningunum
FÖT OG VEFNAÐUR
Ekki heyrði skrifari betur en sagt væri í auglýsingu í Ríkisútvarpinu (11.05.2016): Barnafötin frá Lin Design eru ofnar úr okkar allra bestu bómull. Ofin úr okkar allra bestu bómull, hefði þetta átt að vera. Nokkrum dögum heyrði skrifari aðra útvarpsauglýsingu frá sama fyrirtæki, villulausa, um ofinn varning.
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2016 | 08:11
Molar um málfar og miðla 1945
SELDUR SELDUR TIL
JT skrifaði Molum og vitnaði í frétt af vef Ríkisútvarpsins um að Ásmundarsalur hefði verið seldur. Fyrirsögnin var: Ásmundarsalur seldur til fjárfesta. Í fréttinni segir: ,,Ásmundarsalur, hús Listasafns Alþýðusambands Íslands við Freyjugötu, hefur verið seldur til Aðalheiðar Magnúsdóttur og Sigurbjörns Þorkelssonar. Sigurbjörn Þorkelsson er fjárfestir og stjórnarformaður Fossa markaða, verðbréfamiðlunar.
JT spyr:,,Af hverju þarf að segja seldur til - af hverju ekki bara seldur.... í þessu tilviki Aðalheiði og Sigurbirni? Þetta er mjög algeng orðnotkun og hvimleið þegar til er algjörlega óþarft. Satt og rétt, JT. Sjá: http://www.ruv.is/frett/asmundarsalur-seldur-til-fjarfesta
Síðan segir JT: ,, Tek undir allar ábendingar þínar um undarlega notkun á viðtengingarhætti í fyrirsögnum. Og um að gera að halda þeim til streitu.- Það verður gert, JT. Kærar þakkir fyrir bréfið.
VOND ÞÝÐING
TH skrifaði (06.06.2016) og benti á þessa frétt á mbl.is: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/05/06/60_metra_eldtungur_loka_flottaleidinni/
"Einu flóttaleiðinni framhjá kanadísku borginni Fort McMurray, þar sem gífurlegir eldar hafa brunnið undanfarna daga, var lokað í dag af ríflega 60 metra háum eldtungum sitthvoru megin vegarins." Ósköp má nú mikið vanda sig betur við þýðinguna:
Eina flóttaleiðin framhjá kanadísku borginni Fort McMurray, þar sem gífurlegir eldar hafa brunnið undanfarna daga, lokaðist í dag af ríflega 60 metra háum eldtungum báðum megin vegarins.
Eða:
Sextíu metra háar eldtungur, báðum megin vegarins, lokuðu í dag einu flóttaleiðinni framhjá kanadísku borginni Fort McMurray, þar sem gífurlegir eldar hafa brunnið undanfarna daga.
Áfram:
"Að sögn fréttavefjar BBC var bílalest 1.500 bíla í fylgd lögreglu ..."
Að sögn fréttavefjar BBC var 1.500 bíla lest í fylgd lögreglu ...
Enn áfram:
"Um 500 bílar lögðu á sig þessa hættulegu ferð ..."
Nei, bílarnir eru hvorki færir um hugsun né ákvarðanatöku, þannig að þeir hafa ekki lagt neitt á sig.
Um 500 ökumenn lögðu á sig þessa hættulegu ferð ...
Fleiru er reyndar klúðrað í þýðingu þessarrar litlu fréttagreinar; þetta eru einungis verstu dæmin. Er enginn fullorðinn að fylgjast með börnunum?. Þakka bréfið, T.H. Allt er á sömu bókina lært. Ekkert eftirlit. Enginn les yfir. Enginn leiðbeinir nýliðum, eða þeim sem þurfa á leiðsögn að halda. Enginn metnaður til að gera vel, - til að vanda sig. Metnaðarleysið ræður ríkjum. Og ekki aðeins á mbl.is.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2016 | 07:59
Molar um málfar og miðla 1944
MÁLFARSÓVITAR
Molavin skrifaði (07.05.2016): ,,Ríkisútvarpið hefur málfarsráðgjafa á launaskrá og Morgunblaðið birtir daglega þátt um það sem betur má fara í málfari fréttamanna. En það er sem þetta nái ekki til þeirra sem ætlað er að læra. Morgunblaðið birtir í dag, 7. maí, forsíðufrétt með fyrirsögninni: Metfé fyrir lúxusíbúðir. Um það hefur verið ítarlega fjallað að orðið "metfé" táknar ekki upphæð, ekki metupphæð. Verðlaunahrútur eða stóðhestur getur hvor tveggja verið metfé. Verið í miklum metum. Óvitar á fréttastofum eru þeir blaðamenn sem takmarkað vita og vilja ekki læra. Þeir eru ekki í miklum metum meðal lesenda og hlustenda. Hverju orði sannara, Molavin. Þakka þér bréfið. Óvitar hlíta ekki leiðsögn. Vita allt best. Of mikið af slíku fólki er á fréttamiðlum. Rétt er að bæta við, að reglulega err fjallað um málfar í Ríkisútvarpinu í Málskoti á Rás 2 á þriðjudagsmorgnum og í þáttunum Orð af orði, sem málfarsráðunautur annast.
HAGKAUP SKRÖKVAR AÐ OKKUR
Í sjónvarpsauglýsingum fyrir helgina skrökvaði Hagkaup að okkur. Aftur og aftur. Fyrirtækið sagðist afnema virðisaukaskatt af snyrtivörum. Það var ósatt.
Hagkaup getur ekki og hefur ekkert vald til að afnema virðisaukaskatt af vörum,sem þar eru á boðstólum..
Um var að ræða tæplega tuttugu prósent afslátt frá áður auglýstu verði. Svo ætti þetta stórfyrirtæki (og fleiri) að hætta að nota í síbylju enskuslettuna TAX FREE í auglýsingum. Það er ekki verið að gefa viðskiptavinum neinn skattaafslátt. Bara venjulegan afslátt. Hvað segir Neytendastofa um svona auglýsingar?
HEIMILISBYGGINGAR
Í fréttum Ríkisútvarps (05.05.2016) var sagt borgarstjóraframbjóðandi í London hefði lofað að byggja 50 þúsund heimili. Borgarstjórar byggja ekki heimili. Fólk stofnar heimili. Frambjóðendur geta lofað að beita sér fyrir byggingu húsnæðis fyrir 50 þúsund fjölskyldur, eða byggingu 50 þúsund íbúða. Þeir geta ekki lofað kjósendum því að þeir muni byggja heimili.
ENN ER RUGLAÐ SAMAN
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (06.05.2016) var fjallað um lífríkisskaða í Mývatni og hvernig úr mætti bæta., - engu megi til spara, var sagt. Fast er í málinu að segja- ekkert var til sparað , en á hinn bóginn segjum við að engu megi til kosta. Sífellt er verið að rugla þessu saman. Hefur nokkrum sinnum verið nefnt í Molum.
MÁLIÐ
Sérstök ástæða er til að þakka Morgunblaðinu og vekja athygli á þremur línum, um móðurmálið, sem birtast daglega undir fyrirsögninni Málið á krossgátu- og Sudokusíðunni. Þetta er stutt og hnitmiðað. Það væri ekki úr vegi að móðurmálskennarar nýttu sér þetta í kennslu , - og auðvitað ættu allir sem skrifa fréttir að lesa þessar þörfu leiðbeiningar. Þakkarvert.
BLÓÐBLETTAÐ LAK
Hvaða tilgangi þjónaði það í fréttum Ríkissjónvarpsins (03.05.2016) að sýna okkur aftur og aftur rúm með blóðblettuðu laki á Landspítalanum?
Blóðflekkurinn í lakinu bætti engu við fréttina. Þetta var dómgreindarleysi hjá fréttastjóra að mati gamals fréttamanns.
FYRIR RANNSÓKN MÁLS
Í morgunfréttum Ríkisútvarps (05.05.2016) var sagt frá tveimur mönnum, sem handteknir höfðu verið um nóttina. Síðan var sagt: Þeir voru vistaðir í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Þetta er andstætt máltilfinningu Molaskrifara og hefur oft verið nefnt hér áður.
Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2016 | 11:18
Molar um málfar og miðla 1943
GÓÐU GESTIRNIR
Molavin skrifaði (03.005.2016):,, "Ég söng og fagnaði góðum gesti og gaf þér hjartað í brjósti mér," segir í ljóði Davíðs Stefánssonar sem oft er sungið sem síðasta lag fyrir fréttir. Þarna lýsir skáldið heitri ást. Og svo hjartkærir virðast allir þeir viðmælendur vera sem koma til viðtals í þætti útvarpsins að aldrei eru núorðið nokkrir viðmælendur kynntir öðru vísi en svo að "til okkar koma góðir gestir." Jafnvel í Spegilinn. Eru virkilega allir viðmælendur riddarar á hvítum hesti - eða er þessi lýsing orðin frásagnarkækur á borð við "Íslandsvinina" sem svo eru kallaðir ef frægt fólk á leið til landsins?
Molaskrifari þakkarbréfið ogvíst er það kurteisi að tala um góða gesti,en þetta er orðin afskaplega hvimleið tugga, eða klisja.
LAUPARNIR
Í Spegli Ríkisútvarpsins (03.05.2016) var fjallað umforsetakosningarnarog forsetaframbjóðendur. Fréttamaðurtalaði um að einhverjir kynnu að gefa upp laupana, - hætta við framboð. Viðmælandi fréttamanns endurtók þettaogtalaði líka um að gefa upp laupana.Báðir fóru rangt meðorðtak sem er fast í málinu.
Við tölum um að leggja upp laupana, hætta, eða gefast upp, deyja eða fara á hausinn..
Laupur er,, kláfur; meis; áburðarkkassi; rimlakassi (t.d. til að bera hey í)
Ágætlega er fjallað umþetta orðtak í bókJóns G. Friðjónssonar, Merg málsins, íslensk orðtiltæki á bls. 524 og 525. Þá ágætu bókættu allir fréttamennað hafa við hendina, - og nota.
FRÉTTALEYSIÐ
Hversvegna eru engar fréttir í Ríkisútvarpinu fráklukkantvö á nóttinnitil klukkan fimmað morgni?Fréttamaður/menn eru á vakt í Efstaleiti alla nóttina. Halda þeir að öll þjóðin sé sofandi?Svo er ekki. Fjöldi fólkser við vinnu á nóttinni og villheyra fréttir.
SJENS
Í Spegli Ríkisútvarpsins (04.05.2016) ræddi fréttamaður við konu, semvill verðaforseti Íslands. Fréttamaðursagði:,,Fylgi við þig hefur mælst undir einu prósenti í könnunum. Heldurðu að þú eigir einhvern sjens?. Við gerum kröfutil þess að fréttamenn Ríkisútvarpsinstali vandað mál.Þetta er ekki vandað mál.Því er við að bæta að viðtalið var óhóflega langt og að sama skapi innihaldsrýrt.
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)