14.7.2009 | 18:09
Þeir eiga að biðja þjóðina afsökunar
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins koma nú í ræðustól á Alþingi í hverri viku og heimta afsökunarbeiðnir frá þingmönnum úr stjórnarflokkunum vegna einhvers sem skiptir afa rlitlu máli í því ógnarásatandi sem nú ríkir.
Hvernig væri nú að Sjálfstæðisflokkurinn bæði íslensku þjóðina afsökunar á því hvernig staðið var að einkavæðingu ríkisbankanna á sínum tíma. Framsóknarflokkurinn mætti gjarnan standa að þeirri afsökunarbeiðni líka.
Spillingin í kringum einkavæðingu bankanna á ríkan þátt í því hvernig komið er í samfélaginu og hve margir eiga nú um sárt að binda.
Ég minnist þess ekki að þessir tveir flokkar sem einkavæddu bankana með hneykslanlegum hætti hafi beðið nokkurn mann afsökunar á siðspilltum vinnubrögðum..
Krefst þess að Árni Þór biðjist afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég vona bara að íslenskir stjórnmálamenn í landspólitík fari nú að skilja að nærveru þeirra er ekki lengur óskað hér á þessari jörð.
Einar Þór Strand, 14.7.2009 kl. 23:02
Ansi margir stjórnmálamenn (margir, ekki allir) eru með einhvers konar einstefnuloka í heilabúinu; bæði hvað varðar minnið og aðferðir.
Einar Þór, er nú ekki allt í lagi að leyfa þeim að tóra, bara fá sér önnur viðfangsefni kannski?!
Eygló, 15.7.2009 kl. 03:02
Valgerður Sverrisdóttir baðst afsökunar á þeim hluta sem gerðist á vakt Framsóknarflokksins, í ræðu sinni á Flokksþinginu í janúar.
Gestur Guðjónsson, 15.7.2009 kl. 09:46
Stendur ekki til að einkavæða bannkana aftur hverjir verða þá á vakt kannski þeir sem nú eru við völd. Miða við hvernig þau vinna í dag eru þau engu betri enn þau sem deilt hafa verið á. Hvernig er staðann í baunnkunum, það er talað um nýju og gömlu bannkana ég sé engan mun. Það eina sem er verið að gera er að bjarga þeim sem stálu úr þeim.
Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2009 kl. 11:08
Gestur: Geir bað flokkinn sinn afsökunar, ekki þjóðina. Hafi Valgerður Lómatjarnardrottning beðið Framsóknarflokkinn afsökunar (ég hef hvergi séð né heyrt þetta) þá sérðu hverjir koma fyrst í forgangsröðinni þjóðin er sennilega einhverstaðar langt fyrir neðan Flokkana og flokksgæðingana. Þannig að mitt álit á þessum stjórnmálamönnum er það sama hvorum flokknum sem það fylgir = siðlaust pakk og . Þessir flokkar skulda þjóðinni enn afsökunarbeiðni
Sverrir Einarsson, 15.7.2009 kl. 16:43
Góðan dag. Innilega sammála öllu sem þú skrifar um íslenskt mál. Ekki líður sá dagur, að ekki heyrist eða sjáist "ruglu-bullu-sull" hjá annars þaulreyndum fréttamönnum, liggur mér (gamalli kerlingunni) við að segja. Allir hafa verið að "fara erlendis" - eins vitlaust og það nú hljómar þegar þeir sömu kynnu ef til vill einhvern tíma í framtíðinni að " koma hérlendis" Þar fór ég alveg með það. " Reimaðu skónna - skokkaðu yfir brúnna og kysstu frúnna "- og ekki má gleyma " Öggsar við ánna" sennilega bara stutt í "sgjóttum upp fánna...og hvers vegna í ósköpunum þarf fólk að segja bæ-bæ ??
Þórunn S. Ólafsdottir (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 16:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.