25.1.2008 | 20:08
Fatasaga úr Sjónvarpinu
Umræðan um fatakaup stjórnmálamanna og - sjónvarpsmanna rifjaði upp meira en 30 ára gamla minningu,sem mér þykir alltaf dálítið vænt um.
Þá fórum við sjónvarpsmenn á fimmtudegi (ekkert sjónvarp á fimmtudögum þá) að vorlagi , líklega 1975 eða 1976 og hittum bónda á vesturlandi, sem hafði orðið fyrir búsifjum því vargfugl lagðist á æðarvarpið í landi hans.
Þegar var búið að mynda í varpinu og ræða við bónda var okkur boðið til stofu upp á kaffi og heimabakað brauð volgt úr ofninum.
Talið barst víða og þar kom, að bóndi sneri sér að mér og sagði: - "Mér líkar vel við þig í sjónvarpinu". Þótti mér nú heldur vænkast hagur minn og fann að þetta hlaut að vera skynsamur búhöldur. Svo bætti hann við: " Þú ert alltaf í sama jakkanum !"

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.