Molar um málfar og miđla 481

   Heimildamyndin, sem Ríkissjónvarpiđ sýndi (06.12.2010) um  eldgos á Fimmvörđuhálsi og í Eyjafjallajökli, var um margt ágćt. Skrítiđ var ţó, ađ valiđ skyldi ađ sýna fréttainnslög frá Fox  sjónvarpsstöđinni bandarísku , sem ekki er ţekkt fyrir áreiđanlega fréttaţjónustu. Nokkrir  hnökrar  voru í ţulartexta og jafnvćgi  skorti í hljóđblöndun, - bakgrunnshljóđ  voru stundum nálćgt ţví ađ yfirgnćfa ţulinn.  Ţessi mynd á  ţrátt fyrir ţađ eftir ađ fara víđa.

 Skelfilegt var ađ heyra fulltrúa kjörinn á  stjórnlagaţing, formann stjórnar Útvarps Sögu, líkja íslensku stjórnarfari viđ  stjórnarfariđ í Norđur Kóreu (07.12.2010). Ţađ sýnir, ađ hann veit ekkert í sinn haus um Ísland og enn síđur Norđur Kóreu.

  Ţađ er  dálítiđ einkennilegt, ađ  höfundi forsetasögu Ólafs  Ragnars Grímssonar skuli  greiddar 600 ţúsund krónur úr  sjóđnum  Gjöf  Jóns  Sigurđssonar á  árinu 2010. Löngu er komiđ fram ađ bankabófarnir í Glitni, Kaupţingi og Landsbanka kostuđu útgáfu og ritun bókarinnar. Bókin kom út fyrir tveimur árum. Hún er mikill og gagnrýnislaus lofsöngur um Ólaf Ragnar og  útrásarliđiđ,  ţar sem bankabófarnir fóru fremstir međ sínar Fálkaorđur í barminum. Ekki jók bókin hróđur höfundar sem sagnfrćđings.  Ţetta mál kallar á skýringar.  

 Málvenja er ađ  tala um fallegan fisk,  fallega síld,  eđa fallega lođnu. Ţađ er hinsvegar nokkur nýlunda ađ segja ađ lođna sé  fögur eins og gert var í Morgunblađinu (07.12.2010). Á ţessu er  munur ađ mati Molaskrifara.

   Seinni fréttum Ríkissjónvarps  seinkađi um tćpar tíu mínútur ađ kveldi ţriđjudags (07.12.2010). Sjónvarpsstöđvar, sem kunna sig,  segja  frá slíkri seinkun í skjátexta. Hún er  fyrirsjáanleg og  kemur útsendingarstjórum ekki á óvart. Ţar er áhorfendum  sýnd kurteisi. Líklega ollu íţróttirnar ţessu ,  enn einu sinni. Ţađ tíđkast ekki í Efstaleiti ađ tilkynna  seinkun dagskrárliđa á skjánum. Ţulur bađst ađ  vísu afsökunar á seinkuninni viđ upphaf frétta eftir  býsna  skrautlega  byrjun fréttatímans.

  Eins og  oft  étur hver  fjölmiđillinn eftir öđrum, ţegar tiltekin orđtök komast í tísku. Nú er allt  ađ  bresta á.  Friđur brestur  á og í fréttum Stöđvar tvö (07.12.2010) af Icesave málinu var okkur sagt ađ  samingar vćru ađ bresta á.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband