14.10.2010 | 17:48
Molar um málfar og miđla 431
Gaman var ađ hlusta Árna Ţórarinsson í Kiljunni (13.10.2010). Hann er einstaklega vel máli farinn. Fáđu fleiri slíka til ţín, Egill.
Fékk hún og dóttir hennar... sagđi fréttamađur Stöđvar tvö (13.10.2010). Molaskrifari hefđi hér taliđ eđlilegra ađ segja: Fengu hún og dóttir hennar... Í sama fréttatíma var sagt: Í hverju lífeyrissjóđir mega fjárfesta í.. Ţarna var einu í ofaukiđ. Nćgt hefđi ađ tala um hverju lífeyrissjóđir mćttu fjárfesta. Bjórdrykkja fréttamanns Stöđvar í fréttatímanum orkađi tvímćlis, ađ ekki sé meira sagt.
Í skjáauglýsingu í Ríkissjónvarpinu (13.10.2010) var talađ um góđ verđ, en ţulur sagđi hinsvegar réttilega gott verđ. Óalgengt er ađ leikmenn gefi ekki kost á sér í viđtöl , sagđi íţróttafréttamađur Ríkissjónvarps. Ekki er hćgt ađ segja ađ ţetta sé lipurlega orđađ.
Hallćrisleg samtöl fréttamanna í fréttatímum eru gervileg, enda eru ţau sviđsett. Til hvers?
Visir.is (13.10.2010): Skrifstofa umbođsmanns skuldara opnar aftur í fyrramáliđ. Hvađ skyldi skrifstofan opna í fyrramáliđ. Enn ein ambagan.
Úr mbl.is (13.10.2010): Ţađ ţarf varla ađ taka fram fólkiđ var ölvađ og viđkomandi kúreki utanbćjarmađur," segir á heimasíđu lögreglunnar á Sauđárkróki. Allsstađar eru ţessir utanbćjarmenn til ama og óţurftar !
...mun áfram sitja í gćsluvarđhaldi samkvćmt úrskurđi hérađsdóms frá í dag til 22. októbers. (Fréttavefur Ríkisútvarpsins 13.10.2010)Á vefnum Beygingarlýsing íslensks nútímamáls, segir ađ eignarfallsmyndin októbers komi fyrir í 19. aldar textum, en í nútíamáli sé hefđ fyrir ţví ađ hafa eignarfalliđ endingarlaust, ţ.e. október.
Seint sćttir Molaskrifari sig viđ ađ heyra íţróttafréttamenn tala um ađ annađ liđiđ steli sigrinum frá hinu eins og gert var í íţróttafréttum Ríkissjónvarps (13.10.2010).
Athugasemdir
Til viđbótar um íţróttafréttir. "FH hefur unniđ alla ţrjá leiki sína til ţessa" Svona sagđi íţróttafréttamađur Ríkisútvarpsins frá í dag.
Ţetta er ankannalegt orđalag og heyrist oft í íţróttafréttatímum"Til ţessa"óţarft og út í bláinn og gerir setninguna svolítiđ undarlega, finnst mér.
Er ţetta rangt ályktađ ?
Emil Ragnar Hjartarson (IP-tala skráđ) 15.10.2010 kl. 16:32
Sammála ţér, Emil Ragnar.
Eiđur Svanberg Guđnason, 16.10.2010 kl. 23:49
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.