14.7.2009 | 18:09
Þeir eiga að biðja þjóðina afsökunar
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins koma nú í ræðustól á Alþingi í hverri viku og heimta afsökunarbeiðnir frá þingmönnum úr stjórnarflokkunum vegna einhvers sem skiptir afa rlitlu máli í því ógnarásatandi sem nú ríkir.
Hvernig væri nú að Sjálfstæðisflokkurinn bæði íslensku þjóðina afsökunar á því hvernig staðið var að einkavæðingu ríkisbankanna á sínum tíma. Framsóknarflokkurinn mætti gjarnan standa að þeirri afsökunarbeiðni líka.
Spillingin í kringum einkavæðingu bankanna á ríkan þátt í því hvernig komið er í samfélaginu og hve margir eiga nú um sárt að binda.
Ég minnist þess ekki að þessir tveir flokkar sem einkavæddu bankana með hneykslanlegum hætti hafi beðið nokkurn mann afsökunar á siðspilltum vinnubrögðum..
![]() |
Krefst þess að Árni Þór biðjist afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)