Molar um málfar og miðla 219

   

Bolvíkingur með klúrið jólalag, segir í þriggja dálka fyrirsögn í Fréttablaðinu (10.12.2009).Þetta hafði farið fram hjá molaskrifara,,en málvís vinur vakti athygli á þessu. Æ fleiri hafa samband við Molaskrifara og benda á vont mál og rangt mál. Megi þeim fjölga sem mest, sem slíkar ábendingar senda.

Orðmyndin klúrið er ekki til íslensku.. Þarna hefði átt að standa: Bolvíkingur með klúrt jólalag. Sá sem fréttina skrifar kann reyndar orðið klúrt,sem þýðir klámfenginn, - en ekki sá sem fyrirsögnina samdi.Aðra fyrirsögn úr sama hluta Fréttablaðsins, sama dag, nefnir Molaskrifari: Framhaldsmyndir gera sig líklegar. Óskiljanleg fyrirsögn. Skilst heldur ekki, þótt lesin sé fréttin undir henni.Freistandi er að nefna hér til sögunnar þriðju fyrirsögnina úr Fréttablaðinu þennan sama dag: Milljón mismunandi manns !  Þið getið betur en þetta, Fréttablaðsmenn.

 Endemis heilsíðuauglýsing er í Fréttablaðinu þennan sama dag (10.12.2009) Þar auglýsir: Stærsta Outlet landsins, Merkjaoutlet, Korputorgi . Þar er líka  talað um Taxfree daga og allar vörur séu án VSK  Svona auglýsingar eru  atlaga að tungunni. Kaupmenn og auglýsingamenn vinna markvisst að því að festa orðskrípið outlet í sessi. Er það iðja ófögur. Þó má þetta fyrirtæki eiga , að með örsmáu letri er sagt að ríkissjóður fái virðisaukaskatt af öllum seldum vörum. Afslátturinn sé á kostnað Merkja Outlets. Þetta er rétt, því ekkert fyrirtæki getur afnumið virðisaukaskatt af tilteknum vörum. Fyrirtæki geta hinsvegar veitt afslátt,sem nemur skattlagningunni. Þetta hefur verið sagt svona fimmtíu sinnum í í Molum !!!  

 

 

Meira um Lottóauglýsingar. Ég er að vona að þessi auglýsing sé að gera sig, sagði forstjóri Lottósins í sjónvarpi ( 11.12.2009). Líklega eru ekki gerðar kröfur um íslenskukunnáttu, þegar ráðið er í þessa forstjórastöðu. Í Garðapóstinum (10.12.2009) segir að bæjarfulltrúi hafi fengið Laurel heiðursviðurkenningu. Hversvegna ekki að nota móðurmálið og tala um lárviðar heiðursviðurkenningu ?  

 

 

   Nokkrir íslenskir fjölmiðlar hafa látið mikið með konuna Ásdísi Rán. Lottóið sótti hana, líklega með ærnum tilkostnaði, til Búlgaríu til að leika í frekar hallærislegri auglýsingu. DV birtir þriggja síðna viðtal við Ásdísi Rán (11.12.2009) þar sem hún segir í undirfyrirsögn að búlgörskum fjölmiðlum kvíði deginum sem hún yfirgefur landið.  Betur hefði hún sagt: .. búlgarskir fjölmiðlar kvíða deginum,sem... Haft er eftir búlgörskum blaðamanni í sömu undirfyrirsögn, að þetta sé rangt og konan sé bara  lítillega fræg, eins og það er orðað. Sem sagt ekki mjög fræg. Hún er þó allavega fræg hjá fáeinum íslenskum blaðamönnum og má  það vera henni mikil huggun harmi gegn.
Þennan pistil er einnig að finna á www.eidur.is ásamt nokkrum pólitískum athugasemdum. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bolvíkingur með klúrið jólalag. Framhaldsmyndir gera sig líklegar. Milljón mismunandi manns. Ég er að vona að þessi auglýsing sé að gera sig. Búlgörskum fjölmiðlum kvíði deginum.... 

Hvað er í gangi á skerinu? Það er nóg af góðu fólki sem hefur gott vald á móðurmálinu og hef þann metnað af skrifa og tala gott mál. En skussarnir virðast verða fyrir valinu. Enginn metnaður, engar kröfur, heldur lágkúran. Þetta er farið að minna óþægilega á íslenska stjórnsýslu, þar sem flokksskírteinið ræður ferðinni, en ekki menntun og hæfileikar.

Löngu hættur að verða á hissa á fúskinu á gamla góða skerinu.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 13.12.2009 kl. 16:45

2 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Er nema von, að spurt sé, Haukur.

Eiður Svanberg Guðnason, 13.12.2009 kl. 16:49

3 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Sammála Hauki. Það eru þeir sem ráða málhalta skussa til fréttaskrifa sem bera ábyrgð á þessari daglegu misþyrmingu móðurmálsins. Kærar þakkir Eiður fyrir fyrirsagnirnar. Það væri vert að einhver tæki sig til og safnaði óskiljanlegum fyrirsögnum. Af nógu er að taka. Hvað finnst ykkur um þessa sem stóð fyrir nokkrum dögum í Mogganum:

"Kynþroska við Kolbeinsey".   Aumingja blessað barnið. Hvern langar til að verða kynþroska við Kobeinsey? Ef fréttiner lesin kemur svo í ljós að um er að ræða loðnu!

Sæmundur G. Halldórsson , 13.12.2009 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband