Molar um málfar og miðla 1457

  GLEÐILEGT SUMAR!

 

Fréttamenn verða að skilja orðatiltæki sem þeir nota í fréttum. Hvalveiðar Íslendinga hafa verið mikið í deiglunni síðustu misseri, sagði fréttamaður í fréttum Stöðvar tvö á annan í páskum (21.04.2014). Þegar sagt er að eitthvað sé í ídeiglunni, þá er verið að tala um eitthvað, sem er í undirbúningi eða í mótun. Fréttamaður hefur greinilega haldið að þetta þýddi að hvalveiðarnar hefðu verið mikið í umræðunni, mikið til umræðu. Enn og aftur kemur í ljós að gæðaeftirlit með fréttaskrifum er að mestu úr sögunni. Til starfa er komið of mikið af fólki sem ekki hefur nægilega góð tök á móðurmálinu.

 

Rússneskar herflugvélar nærri Íslandi , var villandi fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (23.04.2014) Sjá: http://www.ruv.is/frett/russneskar-herflugvelar-naerri-islandi

Þegar fréttin er lesin, kemur í ljós að vélarnar voru hreint ekkert  nálægt Íslandi. Þær voru skammt norðaustur af  Skotlandi.

 

Villur eru nokkuð algengar í auglýsingum. Í Fréttablaðinu laugardaginn fyrir páska (19.04.22014) auglýsir Hagkaup eftir öryggisvörðum. Í auglýsingunni segir að leitað sé að einstaklingum sem séu ,,... og útsjónasamir”. Á að vera útsjónarsamir. Í auglýsingu frá Faxaflóahöfnum segir:,,Þeir aðilar sem hafa áhuga á að nýta sér þetta og hafa tilskilin rekstrarleyfi er boðið að senda inn umsókn ...” Hér ætti að segja: ,,Þeim aðilum sem .... er boðið að senda inn umsókn”. Enn eitt dæmi um beygingafælni, eða þá trú að upphafsorð setningar verði ævinlega að vera í nefnifalli. Í fasteignaauglýsingu segir:,,Veglegar innréttingar skarta íbúðirnar og stórir gluggar til að njóta útsýnisins”. Hér hefur textahöfundi brugðist bogalistin. Of margar auglýsingastofur láta frá sér fara lélegan texta. Íbúðirnar skarta veglegum innréttingum, hefði verið ögn skárra; þó slæmt.

 

Á fésbókinni fær fréttastofa Ríkisútvarpsins verðskuldað hrós frá Árna Gunnarssyni fv. alþingismanni og fréttamanni (23.04.2014) fyrir umfjöllun um skýrslu rannsóknarnefndarinn sem kannað hrun sparisjóðanna. https://www.facebook.com/arni.gunnarsson.52?fref=nf

Vel mælt.

 

G.G. Benti á þessa frétt á vefnum visir.is (23.04.2014) http://www.visir.is/article/20091219/LIFID01/874263568

Og þessa frétt sama dag á mbl.is og segir: ,,Sennilega hefur Cox rétt fyrir sér ef marka má þessa frétt af mbl.is 23.04.2014. Þar "klikkar" meira en góðu hófi gegnir”,http://www.mbl.is/folk/frettir/2014/04/23/thad_er_ekki_ad_fara_gerast/ . Þessi skrif eru með ólíkindum. Hvar er gæðaeftirlitið? Enginn prófarkalestur.

 

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Já, bagalegastar eru enn og aftur ambögur þar sem orðavalið er byggt á blöndu af vanþekkingu og misskilningi og útkoman verður rökleysa, öðru nafni bull.

Þörfin á starfi málfarsráðunautar hjá Ríkisútvarpinu er mjög mikilvægt og gagnlegt en kannski eru einhverjir sem telja það vera merki um "bruðl" í ríkisrekstrinum, úr því að hinir fjölmiðlarnir spara sér slikt.  

Ómar Ragnarsson, 24.4.2014 kl. 13:17

2 identicon

Þess sér því miður ekki mikinn stað að málfarsráðunautur starfi við Ríkisútvarpið. Við komumst ekki upp með neitt múður eða málvillur hjá okkar góða séra, Ómar minn.

Eiður Guðnason (IP-tala skráð) 24.4.2014 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband