Einkennileg gagnrýni og vanheilagt bandalag

 

  Undanfarið hefur  ekki linnt  gagnrýni á íslensku utanríkisþjónustuna. Margir hafa sagt að nýta bera nútímasamskiptatækni betur og megi að skaðlausu leggja  niður mörg, ef ekki öll, sendiráð lýðveldisins. Svo bregður svo við þegar forsætisráðherra okkar sendir  forsætisráðherra Noregs  tölvupóst, þar sem sá síðarnefndi er í miðjum  stjórnarmyndunarviðræðum, til að spyrja  einfaldra  spurninga um ómerkilegt áróðursupphlaup íslenskra  Framsóknarmanna  og norskra  kollega þeirra að allt ætlar af göflum að ganga hjá Framsókn og íhaldi. Yfir því að notuð er  nútímasamskiptatækni. Fjölmiðlamenn fara silkihönskum um formann Framsóknarflokksins ,sem uppvís er að því að fara með ósannindi. Enginn spyr um eða kannar  þá miklu umfjöllun sem hann segir  ferð þeirra  félaga með  vinnumönnum útrásarvíkinga hafa fengið í Noregi. Enda  yrði fátt um svör ef grannt væri skoðað. Eitt af  fáu sem sést hefur  er röng  tilvísun ABC nyheter í fréttavef Norska  ríkisútvarpsins.

   Morgunblaðið skrifar heilan leiðara um  tölvupóst,sem  útgefandi blaðsins er ekki alveg ókunnur. Framsóknarmenn ryðjast ærðir fram á fjölmiðlavöllinn yfir  því að forsætisráðherra skuli nota  nútíma  tækni í samskiptum við norskan kollega sinn. Hvað í ósköpunum er það því ?  Það er ekki samtímis hægt að gagnrýna  fólk  fyrir að  nýta sér  ekki tæknina og  úthúða því svo þegar tæknin er nýtt. Hvað átti forsætisráðherra okkar að gera? Senda flöskuskeyti? Það  væri líklega í takti við  forneskjulegan  þankaganginn á ritstjórn Mogga og í Framsókn. Kannski  vantar eitthvað upp á  tölvulæsið í yfirstjórn blaðsins?    Líkast til er þetta þó  gert til að beina athyglinni frá óhróðri og ósannindum í frásögnum  Framsóknarmanna  af Noregsferðinni?  En eitt er víst. Nú hefur  myndast  vanheilagt bandalag milli Moggans og  forystu Framsóknar. Ekki reyndar í fyrsta skipti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Bendi á grein eftir Sigurð Líndal.  Trúi honum frekar.

Færi til nokkur rök mínu máli til stuðnings.

Jóhanna hefur ekkert breyst síðan hún neytti allra bragða til að koma ,,Félagslegum íbúðum" í öll sveitafélög og brúkaði útsendara sína óspart, menn á borð við Sigfús síðar Nýsisforstjóra.

Allt kom fyrir ekki, þó henni væri send hver skýrslan og útreikningur á fætur öðrum um,a ð þetta bara gengi ekki upp, harkan var enn meiri og virtist sem tvö höfuð kæmu fyrir hvert sem höggið væri af, líkt og í gömlum sögum af ófreskjum.

Flest sveitafélög sem létu undan fóru nánast á hausinn en hin sem stóðust þrýstinginn og fagurgalann, sluppu.  Þau voru sárlega fá en í hítina hefur farið fé sem fékkst fyrir  Orkubú Vestfjarða og nú eru á fjárlögum ár hvert, nokkuð stór upphæð til að bjarga sveitasjóðunum frá hreinu gjaldþroti.

Þess vegna trúi ég ekki orði sem kemur frá Jóhönnu ef við liggur sérleg áhugama´l hennar og keppikefli, svo sem að koma okkur undir fyrrum Nýlenduveldi í formi ESB og láta föl náttúruvé okkar í leiðinni. (EES/ESB krefst þess, að útlendir geti keypt lönd og lausa aura hjá hverju aðildarríki sem er í formi ,,fjórfrelsisins, sem er aðalorsök þess, að við erum nú í þeirri stöðu og við erum nú.

ÞEtta er ein aðal ástæðan að ég treysti Jóhönnu ekki fet.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 13.10.2009 kl. 11:39

2 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Af hverju  að drepa þessu máli á dreif með því að tala um  félagslegar íbúðir frá því fyrir margt löngu ?

Eiður Svanberg Guðnason, 13.10.2009 kl. 11:47

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eiður, hann segir það í niðurlaginu. Lestu maður. Lestu svo líka grein Sigurðar Líndal, sem hann bendir á í upphafi. Hann er að tala um undirferli og óheiðarleika ykkar. Er það of erfitt að skilja? 

Jón Steinar Ragnarsson, 13.10.2009 kl. 11:55

4 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Það er líklega rétt að þið  beinið spurningum um ábyrgð á Icesave klúðrinu  til: Geirs H.Haarde  fv. forsætisráðherra og Árna Mathiesen fv.  fjármálaráðherra. Í leiðinni mætti spyrja  Davíð  Oddsson  og Halldór  Ásgrímsson  um það hvernig  þeir báru sig að  þegar þeir skiptu ríkisbönkunum milli einkavina sinna?

En þegar ykkur skortir  rök þá er farið í útúrsnúninga. Það er einföld leið, þegar málstaðurinn er ekki alveg upp á það besta !

Eiður Svanberg Guðnason, 13.10.2009 kl. 12:18

5 Smámynd: Brattur

Af hverju réru Framsóknarmennirnir tveir ekki á árabáti til Noregs í stað þess að fara í flugvél ?

Brattur, 13.10.2009 kl. 20:26

6 identicon

Margir höfðu gert sér vissa von um Nýju Framsókn. En sú von brást.

Framsókn CAPITAL heitir afstyrmið.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 13.10.2009 kl. 22:49

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Flöskuskeyti !

Góð hugmynd ef svo illa fer að Icesave gjaldfellur.  Þá höfum við kannski ekki aðrar leiðir til samskipta við útlönd.

Nú finnst mér...... þegar Icesave er orðið jafnstórt og gjaldþrot Seðlabanka Íslands, að við ættum að fá kannski einhverjar skýringar á hvernig það bar að ?  Eru fordæmi fyrir því að Seðlabankar hafi farið lóðbeint á höfuðið.... og þá hvar ?

Já...... því meira sem maður veit...... því betur veit maður hversu lítið maður veit.

Anna Einarsdóttir, 13.10.2009 kl. 23:46

8 Smámynd: Kristinn Pétursson

EF við fengjum 1000 milljarða lánalínu í Noregi - mætti semja í leiðinni um "Norræn" sendiráð - þar sem  Norðurlöndin rækju sameiginlega sendiráðsþjónustu - sami sími og ymis rekstur.... en sér skrifstofur... ódýrara - er það ekki??

Kristinn Pétursson, 14.10.2009 kl. 00:19

9 Smámynd: Eygló

Hefði ekki verið ódýrara fyrir litlu smalana að senda tölvupóst, eða fax.

Eygló, 14.10.2009 kl. 01:15

10 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Eiður hafir þú ekki fylgst með á Íslandi undanfarna mánuði má benda þér á að það var Ríkisstjórn S og VG sem gerði IceSave samningin.   Þar liggur klúðrið sem við eru að fást við þessa daganna í vonlausum samningi gerðum af fáránlegri samninganefnd á ábyrgð Steingríms J og Jóhönnu.

G. Valdimar Valdemarsson, 14.10.2009 kl. 08:38

11 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Valdimar, mér sýnist þú ekki hafa fylgst vel  ,með því  upphaf Icesave klúðursins  felst í því hvernig  bankarnir  voru einkavinavæddir og aðkomu  þáverandi  forsætisráðherra og  fjármálaráðherra fyrir ári. Lestu hvað  fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins skrifaði undir  sl.  haust. Heppilegast  hefði  verið að formaður  samninganefndar okkar hefði verið   erlendur , þrautreyndur bankamaður með langa alþjóðlega reynslu.

Eiður Svanberg Guðnason, 14.10.2009 kl. 08:49

12 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Var Samfylkingin ekki með í ríkisstjórn fyrir ári síðan?   Það er merkilegt hvernig endalaust á að endurskrifa söguna til að fyrra Samfylkinguna ábyrgð á hruninu.    En það er gott að þú sérð að ríkisstjórnin klúðraði málinu strax þegar samninganefndin var skipuð.

G. Valdimar Valdemarsson, 14.10.2009 kl. 09:22

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Horfðir þú ekki á þáttinn "Hrunið" í gær, Valdimar ? 

Hann var ágætis upprifjun á leynimakki Sjálfstæðisflokksins.

Anna Einarsdóttir, 14.10.2009 kl. 09:43

14 Smámynd: Þorsteinn Briem

16.11.2008: (Forsætisráðherra Geir H. Haarde, fjármálaráðherra Árni M. Mathiesen, Sjálfstæðisflokki, seðlabankastjóri Davíð Oddsson.)

„Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. [...]

Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis.
Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna.“

Forsætisráðuneytið: Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum (IMF)

Þorsteinn Briem, 14.10.2009 kl. 13:46

15 Smámynd: Eygló

G. Valdimar, það kemur bara eitthvað svo skringilega út að amast út í slökkviliðið, eins og stundum hefur verið notað í líkingar.

Eygló, 14.10.2009 kl. 14:09

16 Smámynd: Þorsteinn Briem

Forsætisráðuneytið: Annáll efnahagsmála árið 2008:

„Nóvember

Þ. 6. nóvember tilkynnti Seðlabankinn að stýrivextir yrðu óbreyttir [18%, þeir eru nú 12%].

Þ. 16. nóvember tilkynnti forsætisráðuneytið að samkomulag hefði náðst með milligöngu Evrópusambandsins við Hollendinga og Breta um innistæðutryggingar vegna innlána í íslenskum bankaútibúum á evrópska efnahagssvæðinu. Nánar ...

Þ. 17. nóvember var birt áætlun Íslands um efnahagsstöðugleika í tengslum við lántöku hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Texta áætlunarinnar má nálgast hér.

Í tengslum við lánafyrirgreiðslu Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum 19. nóvember sl. hafa eftirfarandi skýrslur verið birtar á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og má nálgast þær hér.

Þ. 20. nóvember samþykkti framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) áætlun um að koma á efnahagsstöðugleika á Íslandi, sem samin var í síðasta mánuði af íslenskum sérfræðingum í samstarfi við sendinefnd IMF. Um leið var lán til Íslands, 2,1 milljarður dala, samþykkt.

Sama dag
var tilkynnt að Seðlabankar Íslands, Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur hafi ákveðið að framlengja gildandi gjaldeyrisskiptasamninga til loka árs 2009. Samningarnir voru upphaflega gerðir 16. maí sl. Hver samningur um sig veitir Seðlabanka Íslands aðgang að allt að 500 milljónum evra gegn íslenskum krónum eða samtals 1.500 milljónum evra. Fréttatilkynningar frá þeim seðlabönkum sem hlut eiga að máli er að finna á heimasíðum þeirra:

Danmarks Nationalbank
(http://www.nationalbanken.dk)
Norges Bank (http://www.norges-bank.no)
Sveriges Riksbank (http://www.riksbank.se)
“

Forsætisráðuneytið: Annáll efnahagsmála 2008

Þorsteinn Briem, 14.10.2009 kl. 14:32

17 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fjármálaráðuneytið: Annáll efnahagsmála 2008:

11. október
:
„Sama dag var birt svohljóðandi yfirlýsing íslenskra og hollenskra stjórnvalda: "Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans. Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta. Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu.

Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst. Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.
“

Fjármálaráðuneytið: Annáll efnahagsmála 2008

Þorsteinn Briem, 14.10.2009 kl. 15:13

18 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Þú ert metfé, Steini Briem.

Eiður Svanberg Guðnason, 14.10.2009 kl. 15:20

19 Smámynd: Þorsteinn Briem

13.3.2009:

Norska fjármálaráðuneytið:

Islands avtale om stabiliseringsprogram med IMF


St.prp. nr. 47 (2008-2009) Om fullmakt til å stille statsgaranti for lån fra Norges Bank til Seðlabanki Islands


„Tilråding fra Finansdepartementet av 13. mars 2009, godkjent i statsråd samme dag. (Regjeringen Stoltenberg II)“

Dokumentet i pdf-format (135 kb)


1.7.2009
:

„Loan agreements have today been signed between Iceland and Denmark, Finland and Sweden respectively, and between Seðlabanki Íslands, guaranteed by Iceland and Norges Bank, guaranteed by Norway. Under the agreements the Nordic lenders stand ready to provide Iceland with total credits of 1.775 billion euro.

The loans will be provided in relation to and as a support of Iceland’s economic stabilisation and reform programme with the International Monetary Fund (IMF)
. The loans are intended to strengthen Iceland’s foreign exchange reserves. The Nordic creditors – Denmark, Finland, Norway and Sweden – are with these loans making an important contribution to international crisis management.“

Sameiginleg fréttatilkynning Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands 1. júlí 2009


Fréttatilkynning Seðlabanka Noregs sama dag, 1. júlí 2009
:

„Norges andel av lånet utgjør 480 millioner euro, motsvarende om lag 4,3 milliarder kroner. Den norske låneavtalen er organisert som et lån fra Norges Bank til Seðlabanki Islands med garanti fra den islandske og den norske stat. Lånet har en løpetid på 12 år med fem års avdragsfrihet. Lånebeløpet vil bli gjort tilgjengelig for Island i fire omganger, knyttet til IMFs kvartalsvise gjennomganger av landets økonomiske program.“

Norges Bank har undertegnet låneavtale med Seðlabanki Islands

Þorsteinn Briem, 14.10.2009 kl. 16:18

20 Smámynd: Þorsteinn Briem

„Fra norsk side har en lagt stor vekt på et tett nordisk samarbeid om støtte til Island. I forbindelse med IMF-styrets behandling av Islands stabiliseringsprogram 19. november 2008, gikk Norge derfor sammen med Danmark, Finland og Sverige om å love at de fire landene samlet ville gi et mellomlangsiktig lån på 2,5 mrd. USD.“

Norska fjármálaráðuneytið 13. mars 2009

Þorsteinn Briem, 14.10.2009 kl. 16:44

21 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Steini, - það  má eiginlega segja að nú standi ekki steinn yfir  steini hjá sumum ! Gaman að þessu.

Eiður Svanberg Guðnason, 14.10.2009 kl. 18:06

22 Smámynd: Þorsteinn Briem

„Þann 7. október 2008 kom Davíð [Oddsson] fram í viðtali í Kastljósi RÚV. Þar kom fram að hann teldi íslensku krónuna eiga góða möguleika á að rétta úr kútnum í þeim ólgusjó sem hún væri í um þær mundir. Hann talaði um þá sem hann kallaði "óreiðumenn" sem íslenska ríkið gæti ekki borgað skuldir fyrir.

Davíð sagði það gott að eiga góða vini í Rússlandi og sá enga meinbugi á því að taka risalán hjá Rússum til að styrkja gjaldeyrisforðann. Hann hélt því skýrt fram að íslenska þjóðin myndi ekki borga erlendar skuldir bankanna.“

Davíð Oddsson - Wikipedia


Fjórum dögum síðar, 11. október 2008
:

„Sama dag var birt svohljóðandi yfirlýsing íslenskra og hollenskra stjórnvalda: "Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans. Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta. Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu.

Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst. Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.
“

Fjármálaráðuneytið: Annáll efnahagsmála 2008


„On February 26, 2009, following changes to the laws concerning the Central Bank, Davíð [Oddsson] was ousted from the bank and replaced by Norwegian economist Svein Harald Øygard.“

Davíð Oddsson - Wikipedia


Svein Harald Øygard - Wikipedia


Fréttaskýring: Norski seðlabankastjórinn beið átekta hér á hóteli


Hálfum mánuði síðar,
13. mars 2009:

„Fra norsk side har en lagt stor vekt på et tett nordisk samarbeid om støtte til Island. I forbindelse med IMF-styrets behandling av Islands stabiliseringsprogram 19. november 2008, gikk Norge derfor sammen med Danmark, Finland og Sverige om å love at de fire landene samlet ville gi et mellomlangsiktig lån på 2,5 mrd. USD.“

Norska fjármálaráðuneytið 13. mars 2009

Þorsteinn Briem, 14.10.2009 kl. 20:07

23 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Þetta hefur verið skemmtileg umræða og Steini Briem er búinn að setja fram rökssemdir sem Framsókn og íhald geta ekki svarað. Flott.

Eiður Svanberg Guðnason, 15.10.2009 kl. 00:57

24 Smámynd: Þorsteinn Briem

RÍKISSTJÓRN SVÍÞJÓÐAR 2. júlí 2009:

Í NÓVEMBER 2008
STAÐFESTI ÍSLAND að landið ætlaði að standa við skuldbindingar sínar hvað snertir bankainnistæður að 20.887 evrum, samkvæmt tilskipun sem gildir á Evrópska efnahagssvæðinu (94/19/EG) .

"I november 2008 bekräftade Island att landet kommer att leva upp till sina åtaganden enligt insättningsgarantidirektivet, det vill säga att ärsätta insättare i isändska bankers utländska filialer upp till det högsta möjliga beloppet enligt den isländska insättningsgarantin, 20.887 euro."

Sjá bls. 11-12:


Sænska ríkisstjórnin 2.7.2009: Lán til Íslands - IceSave og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn


Forsætisráðuneytið 16. NÓVEMBER 2008: Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum (IMF)


Sameiginleg fréttatilkynning Íslands, Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands 1. júlí 2009


Sameiginleg fréttatilkynning fjármálaráðuneyta Póllands og Íslands 4.10.2009

Þorsteinn Briem, 15.10.2009 kl. 04:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband