Að æra óstöðugan

Að telja upp allar ambögurnar í þessari frétt mundi líklega æra óstöðugan.  Hvernig á að vera  hægt að taka mark á  fjölmiði  þar sem  slíkir  bögubósar  böðlast   óbeislaðir um ritvöllinn og misþyrma tungunni ?
mbl.is Heimilar landnemabyggðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sá sem skrifar þessa frétt virðist ekkert vita um það sem hann er að reyna að þýða.

Hjálmtýr V Heiðdal, 20.7.2009 kl. 13:16

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

„Bílvelta varð á Þórsmerkurvegi og var einn maður í bifreiðinni.“

Brennisteinslykt af Jökulsá á Sólheimasandi

Þorsteinn Briem, 20.7.2009 kl. 16:04

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ansi graður, óbeislaður,
er þó staður blaðamaður,
er með þvaður, ei elskaður,
óheflaður hann ruglaður.

Þorsteinn Briem, 20.7.2009 kl. 16:40

4 identicon

úr 22:00 fréttum sjónvarps þar sem fjallað var um Ísafjarðarhöfn:

Sú höfn er sú höfn sem næst er Grænlandi!

hefði ekki bara; sú höfn er næst Grænlandi,  sagt það sem reynt var að segja?

Hvað er hægt að segja um svona? RUGLUDALLABULL dettur mér fyrst í hug.

Sigurjón Pálsson (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 02:21

5 identicon

Sækja slasaðan mann loftleiðis, stendur í mbl.is. Er þetta góð íslenska? Slasaði maðurinn, sem er vonandi ekki alvarlega meiddur, verður sóttur með flugvél og fluttur með henni loftleiðis til Reykjavíkur. Þetta er kannski ekki rétt hjá mér, en einhver rauð ljós kveiknuðu þegar ég las fyrirsögnina. Það væri fróðlegt að læra hið rétta í málinu.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 18:55

6 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

   Haukur , þetta með að  flugvélin fari loftleiðis er bara  til  fyrirbyggja  misskilning ,ef einhver skyldi  hald að  flugvélin  færi annaðhvort landleið  eða  sjóleiðis !

Eiður Svanberg Guðnason, 21.7.2009 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband