6.6.2009 | 08:04
Hálfvitar með gullfiskaminni
Eftir umræðunum á Alþingi í gær að dæma mætti halda að stjórnarandstaðan teldi okkur kjósendur vera hálfvita með gullfiskaminni. Raunar efast ég um að uppákoma eins og Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkur stóðu að á Alþingi í gær gæti átt sér stað á löggjafarsamkomunni í nokkru grannlandi okkar.
Verið er að reyna að fá botn í Icesave málið. Það er liður í því að hreinsa upp eftir langa óstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það er líka liður í því að lappa upp á skaddað álit okkar í samfélagi þjóðanna, - gleymum því ekki. Það er verið að moka flórinn eftir Framsókn og íhald. Hversvegna segi ég það? Ég segi það vegna þess að Icesave er bein og óbein afleiðing af subbulegri sölu ríkisbankanna sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkur skiptu milli vina sinna með einstaklega ógeðfelldum hætti.
Ég minnist þess ekki að hafa í umræðum á Alþingi heyrt viðlíka orðbragð og viðhaft var í þinginu í gær. Fóru þar fremstir þingmenn Framsóknar með Eygló Harðardóttur í broddi fylkingar. Stjórnarþingmenn sem tóku þátt í umræðunum fengu ekki hljóð fyrir hávaða stjórnarandstæðinga. Þegar stjórnarandstæðingar nota orð eins og landráð og lygarar, þá er tímabært að staldra við.
Kannski mundi ólátum og uppákomum fækka í þingsölum, ef hætt yrði að sjónvarpa úr þinginu. Ég held það væri athugandi.
Athugasemdir
Ég er sammála því að orð eins og “landráð og lygarar” og fleiri álíka lýsingarorð eigi ekki heima í þingsal, nema óhyggjandi rök fylgi í kjölfarið.
En að hætt væri að senda út beint frá þingsalnum, það væri ekki gott og alls ekki lýðræðislegt ef fréttamönnum yrði í sjálfsvald sett, hvað segja skal og sýna það sem fólkið fær að vita um það sem sagt er og gert í þingsalnum, nógu takmarkaðar upplýsingar fáum við frá ráðamönnum nú sem fyrr frá þeim bæ.
Svo mætti bæta við, að starfsmenn þinghússins mættu gjarnan þurrka rykið af linsu tökuvélarinnar í þingsalnum svo við sem nokkuð reglulega horfum á útsendingarnar, sjáum sal og þingmenn ekki í mósku, það er óskýra mynd á skjánum okkar.
Steingrímur Kristinsson (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 09:04
Á linsu hún sem ló,
límdist þar Eygló,
spýtti bæði og spjó,
sparkaði og sló.
Þorsteinn Briem, 6.6.2009 kl. 11:53
Eiður, má ekki hafa uppi svipaða tölu um viðhorf þingmanna Vg til kjósenda en þeir höfðu uppi stór orð um Icesave, AGS og heiðarlega stjórnmálamenn sem starfa fyrir opnum tjöldum.
Sigurjón Þórðarson, 6.6.2009 kl. 21:32
þé ættir nú að þekkja stjórnmálamenn og þeirra málflutning , er það ekki??? Það er ekkert frekar að marka þennan fjölmiðlafars sem framsókn og sjálfstæðisflokkurinn eru með í gangi núna. Þeir vita alveg uppá sig sökina en ljúga ,svíkja og blekkja samt alveg eins og þeim hefur verið innrætt í áratugi af öllum hinum lygurunum!!!
Ragnar Örn Eiríksson (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 00:15
Það var ekkert subbulegt við bankasöluna eins og þú vilt gera skóna að. Við gerum ekkert annað en að skítkastast á milli flokka í stað þess að persónugera þessa gjörninga við þær persónur sem eiga hlut að máli. Þeir sem stjórnuðu bankakerfinu og þeim sem stjórnuðu bönkunum ásamt öllum millistjórnendum sem voru þar. Ef eitthver dugur hefði verið í því fólki við að tilkynna misrétti og misgjörðir stjórnanda hefði þetta alldrei farið svona langt. Það var enginn sem snéri upp í vindinn og tók afstöðu á móti gróðærinu. Það voru allir eða fyrirgefðu flest allir með lokaðan munn en opna vasa því miður. Ég hafði vonað að þeir sem myndu taka við yrðu eitthvað betri og þyrðu að taka miklu fastar á málunum og yrðu þá kannski óvinsælar aðgerðir fyrir valinu. Myndu gera það og standa við þær eins og Göran Pettersson ráðlagði okkur að gera. Það er engin festa í ákvörðunum hingað til aðeins skuldbindingar um að við eigum að borga fyrir þetta óreglufólk. Hafðu góðan dag :-)
Guðmundur H Halldórsson (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 00:43
Hún Eygló, nafna mín, er annað hvort kjáni sem heldur að eitthvað ávinnist með fúkyrðum og ókurteisi, eða hún er kjáni sem vantar hæfileika til rökfærslna. Nei, sennilega er hún enginn kjáni, en hún sannarlega hegðar sér kjánalega.
Eygló, 7.6.2009 kl. 03:38
Ég hef aldrei stutt hægriflokkana og tók ekki þátt í að bylta stjórn tveggja þeirra með valdi til þess eins að horfa upp á VG framkvæma nákvæmlega sömu hlutina. Nú er síðasti séns fyrir okkur vinstrisinnana í VG að bjarga þeim flokki eða að öðrum kosti stofna raunverulegan vinstriflokk.
Héðinn Björnsson, 7.6.2009 kl. 12:30
Tek undir hvert orð hjá þér Eiður.
Haraldur Bjarnason, 7.6.2009 kl. 13:25
Það er nú bara þannig Eiður, að sum börn brúka kjaft meðan verið er að draga þau úr drullugallanum, eftir að þau hafa farið sjálfum sér og öðrum á voða með glannaskap í drullupollum, sem reyndust dýpri, en þau væntu.
Pjetur Hafstein Lárusson, 8.6.2009 kl. 09:51
Ekki veit ég hvort sú aðferð sem nú skal beitt, að knésetja og festa undir líma okurs og lygamála, verði börnum mínum blessun, býst samt ekki við því.
Því mun ég berjast gegn þesskonar ráðslagi á meðan enn er önd í kroppi mínum.
Ég barðist gegn Verðtryggingu bæði fyrir og eftir að vinstri menn höfðu sett lögin á og líka þá þeir tóku úr sambandi kaupgjaldsvísitöluna.
Ég barðist gegn Kvótakerfinu sem ég tel hafa verið gróðrarstíu spillingar og bókhaldsbrellna og æfingabúðir fyrir það sem kom eftir inngöngu í EES.
Það var og barist gegn EES af mér og líkt þenkjandi mönnum innan Flokksins míns elskaða. Þar voru vopnabræður frómir þjóðelskir menn sem sáu , líkt og ég, fingraför græðginnar, sem ætíð hefur lygina sem háseta og hrokann sem kennimark.
Það voruð þið vinstri menn sme komuð þessum kerfum á með aðstoð Framsóknar og í einu Sjálfstæðisflokkinn minn, (EES)
Nú hefur fyrrum formaður Alþýðubadalagsins og núverandi samningamaður um upplognar skuldir, sagt það eina aðal ástæðu þessa hruns vera.
,,Það voru bankar hér á Íslandi sem voru orðnir tíu sinnum stærri en hagkerfið, samt störfuðu þeir samkvæmt tilskipunum Evrópusambandsins. Það er ekki hægt að segja að þeir hafi brotið þær tilskipanir í sjálfu sér. Hvernig áttum við að taka á þessu? Áttum við að gera það með betra Fjármálaeftirliti? Já. Áttum við að gera það með betri Seðlabanka? Já, en hversu gott hefði eftirlitið þurft að vera og hversu góður hefði Seðlabankinn þurft að vera til að stöðva þetta? Höfðu þessar stofnanir úrræði til að stöðva þennan vöxt bankanna? Átti að segja að enginn banki mætti vera stærri en þjóðarframleiðslan? Það hefði ekki verið samkvæmt EES-samningnum.
Veruleikinn er sá að það viðskiptafrelsi sem fólst í EES-samningnum var of mikið fyrir þetta land nema því hefði fylgt öflugri eftirlitsaðgerðir. Það þýðir einfaldlega að ESB þarf að endurskoða sínar reglur,“ segir Svavar í nokkuð athygliverðu viðtali´sem birtist á vefsvæðinu mbl.is
Mér hleypur kapp í kinn, að þurfa að standa undis svífyrðingum um minn kæra Flokk, þar sem þeir sóðu oftar en ekki frammi fyri rorðnum hlut, þó svo að veiðurkenna beri, að þeir hafi verið ódrjúgir til þeirra þjóðþrifaverka að afnema Kratatilskipanir og kerfi sem fólu í sér dauðann í stað grósku þa´sem ætíð fylgir hreinustu tónum Sjálfstæðisstefnunnar, um jafna stöðu hvers einstaklings gagnvart frelsinu og að frelsi eins megi aldrey verða helsi annars.
Þjóðlegri og fegurri stefnu er ekki hægt að finna, nema ef væri í Kringlu Heimsins.
Með virktum og þökk fyrir góðar ádrepur um málfar og meðferð tungu okkar sem er eitt fegursta djásn okkar og jafn mikilvægt og aðrar auðlindir þessa lands, sem eru í tærri skilgreiningu Flokksins (fyrir nýfrjálshyggju bröltið í Hannesi og fl.) ævarandi eign þjóðarinnar og ekki til útlendinga gæf.
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 8.6.2009 kl. 11:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.