Molar um málfar XLIII

  Betur fór en á horfðist (04.04.), þegar  fiskiskip varð  vélarvana  skammt  frá  landi undan Krísuvíkurbjargi. Bæði Vefvísir og  Stöð tvö   töluðu um að skipið hefði orðið  „aflvana". Ekki kann ég  við það orðalag , þótt  ekki sé það beinlínis  rangt. Á Vefvísi  var  talað um að búið  væri að „koma  afli í  vél skipsins". Það er fáránlegt orðalag um að  tekist hafi að gangsetja  vél  skipsins eða koma vél  skipsins í gang að  nýju. Einhversstaðar var líka  sagt „eftir að slokknaði á  vélinni". Það  finnst mér     klaufalegt orðalag. Frétt RÚV  sjónvarps af þessum hremmingum , sem  lyktaði þá farsællega,  var  best orðuð.

   Í fréttum Stöðvar  tvö (04.04)  var talað um „alla höfuðstóla  húsnæðislána". Þar  hefði   átt að  tala um höfuðstól allra  húsnæðislána. Líka var  þar í texta  talað um „3 eða 4 skilríki". Skilríki er  fleirtöluorð rétt  eins og  verðlaun.  Þessvegna   hefði átt að  tala um þrenn  eða  fern skilríki.

    Hvað  finnst  mönnum um orðatiltækið „að brúa fjárlagagatið" ?  Væntanlega  skilja  allir hvað  átt  er við . Betur  hefði ég kunnað því  að talað  væri  um að loka  fjárlagagatinu.  Við   tölum um að  brúa  bil. Stoppa í gat eða loka  gati. Man  ekki betur  en æviminningar Halldórs E. Sigurðssonar, annað   bindið, heiti „Bilin á að brúa" og  er þar vísað  til byggingar  Borgarfjarðarbrúar.  Gárungarnir  sneru   út úr þessu   og  sögðu „Brúin á  að  bila" ,  en  vonandi  bilar sú  góða brú  og mikla  samgöngubót aldrei

 Bæði  RÚV , Stöð  tvö og  Bylgjan  hafa á að skipa  fólki sem  er   prýðilega góðir þulir,  lesarar í fréttum og fréttatengdum þáttum. Það  skiptir  höfuðmáli  fyrir  áheyrendur  að þetta  fólk hafi  skýran framburð, þægilega rödd  og kunni  að lesa  á  „réttum" hraða. Það á ekki að velja  fólk  til að  lesa  fréttir  eða  fara með  texta  ,sem  er óþægilega  skrækróma  eða  mjóróma. Samt  er það  gert.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Var ekki hér áður fyrr talað um að stoppa í fjárlaga gatið, ég man ekki betur. þá kom auðvitað að því að farið var að snúa út úr því orðalagi. Svona í svipuðum dúr og þegar Geir Hallgrímsson leit eitthvað "mjög alvarlegum augum" og setti í brúnirnar. (eða er það að "setja í brýrnar) sbr. þungur á brún.........hvað veit ég sem kann ekkert í Íslensku.

Sverrir Einarsson, 7.4.2009 kl. 08:46

2 identicon

Hárrétt, Sverrir. Fyrrverandi   formaður   fjárveitinganefndar, sem  nú heitir  fjárlaganefnd, þekkir þetta orðatiltæki    mæta vel. En nú veit  enginn lengur  hvað það merkir að  stoppa í gat , enda allir löngu hættir að  stoppa í sokka, - þeim er bara hent.

Eiður (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 09:52

3 identicon

Ég man ekki betur en fræðingar hafi löngum fundið að orðinu "vélarvana" því vissulega er vélin enn í skipinu þótt biluð sé. Ég hjó því eftir "aflvana" á Stöð tvö og þótti framför. Hitt er rétt athugað að eftir að drepst (ekki slokknar) á vél er hún sett í gang (en ekki "komið afli í" hana). Með góðri kveðju. StV.

Stefán Vilhjálmsson (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 16:18

4 Smámynd: corvus corax

Er ekki nógu fínt að segja að vélin hafi bilað? Að búið sé að gera við vélina? Að tekist hafi að koma vélinni í gang? Allt þetta þótti vel við hæfi í minni sveit og alls ekki fátækleg málnotkun.

corvus corax, 7.4.2009 kl. 18:23

5 identicon

 Auðvitað er  ekkert að því  að segja  að bátur sé  með  bilaða vél.Fínt.Gangsetja  vél   og  koma  vél í gang, líka fínt. 

Eiður (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 21:44

6 identicon

Alltaf þegar sagt er frá því að skip hafi orðið vélarvana er mín fyrsta hugsun: hvert fór vélin?

Kannski er þetta í lagi, hver segir að tungumáli sé skylt að vera rökrétt? En nægir ekki að segja að vélin sé biluð, hafi stöðvast eða eitthvað í þá áttina?

Annaðhvort fer málfar manna versnandi eða maður er farinn að höggva betur eftir ambögunum eftir því sem maður eldist og ergist.

Hvenær skyldu menn til dæmis hætta að kalla skipverja áhafnarmeðlimi (sem er líklega "þýðing" úr Crew members)

Hafliði Vilhelmsson (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband