3.2.2009 | 22:25
Líkir Sjálfstæðisflokknum við Nasjonal Samling
Var að lesa netfærslu eftir norska konu , Heidi Strand,sem búsett er á Íslandi. Hún líkir Sjálfstæðisflokknum við flokk Vidkuns Quislings, Nasjonal Samling. Flokkurinn var bannaður í Noregi í stríðslok og Vidkun Quisling tekinn af lífi, skotinn af aftökusveit við Akershus kastala í Noregi.
Þetta er afar ógeðfelld samlíking. Hvað svo sem mönnum finnst um Sjálfstæðisflokkinn.
Netfærsla þessarar norsku konu er svohljóðandi, en hún er að gera athugasemd við frétt um að fylgi Sjálfstæðisflokksins hafi aukist skv. nýrri skoðanakönnun. :
Ég neita að trúa þessu. Ef þetta er rétt hef ég misst alla trú á íslenskum kjósendum og þá fær fólk ekkert annað en það sem það á skilið.
Flokkur sem er búinn að setja heila þjóð á hausinn og neitar að bera ábyrgð ætti ekki að fá að bjóða fram aftur, að minna kosti ekki strax.
Eftir seinna stríð var heill stjórnmálaflokkur bannaður í Noregi vegna landráða
Athugasemdir
Þau tíðkast nú hin breiðu spjót.
Ragnhildur Kolka, 3.2.2009 kl. 23:11
03.02.2009
Vanhæf þjóð
Nýjasta skoðanakönnunin um fylgi flokka sýnir Sjálfstæðisflokkinn stærstan. Engin ástæða er til að efast um, að það er rétt. Tæplega 30% kjósenda styðja flokkinn, ef óákveðnir skiptast hlutfallslega jafnt á flokkana. Auðvitað er þetta skelfilegt. Kjósendur styðja flokk, sem er alfa og ómega hrunsins. Allt frá upphafi frjálshyggjunnar til klúðurs í björgunarstörfum. Könnunin segir allt, sem segja þarf um þjóð, sem ekki kann fótum sínum forráð. Um vanhæfa þjóð.
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 3.2.2009 kl. 23:38
Við skulum sjá hvað hvort vinstri stjórn geti gert hlutina betur. Spurning hvort þeir taki upp á því að brenna nornir á austurvelli, nornaveiðitímabilið er a.m.k. byrjað.
Jóhann (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 14:01
Það eru kannski meiri líkindi milli Sjálfstæðisflokksins og Kommúnistaflokks gömlu Sovétríkjanna
Bobbi (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 18:25
Kannski var bara aldrei þverskurður þjóðarinnar á Austurvelli ef að sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur að heitir það lýðræði og ekkert annað það er nefnilega fyrir alla óháð litarhætti og kynferði það næst með því að kjósaþ Lýðræði er ekki bara fyrir vinstrimenn og lista elituna sem að mestu leiti sá um mótmælin á Ausurvelli
Jón Aðalsteinn Jónsson, 4.2.2009 kl. 20:11
Þessir aðilar sem aðhyllast öfga vinstristefnu virðast vilja kenna sjálfstæðisflokkinum um hagfræðistefnu vesturveldanna síðustu 15 árin m.a. og bíður maður nú bara eftir því að sjálfstæðismenn skuli ganga með borða á handleggnum og óttast brennur á austurvelli. Vinstri menn verða bara að sætta sig við að hægri mönnum er alveg jafn illa við skoðanir þeirra og skilja þá alveg jafn illa. Spyrjum að leikslokum en ég tel að mun fleiri aðhyllist í raun hægri miðju og hægri en vinstri hliðina. Ekki þarf annað en skoða hvað vesturveldunum gekk betur en austurblokkinni síðustu áratugina þrátt fyrir þessa ákeyrslu í haust.
Adda Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 20:27
Ég tek undir með Heidi Strand. Sjálfstæðisflokkurinn á að sitja hjá í eina umferð. Þeir ásamt Framsóknarflokknum sáu um landráðin.
Í Noregi voru landráðamenn undir þýsku hersetunni kallaðir Quislingar. Ég veit ekki hvort hægt er að finna einhvern einn Quisling hér eða hvort þeir eru margir.
Ekki quislingur (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 22:37
"Ekki Quislingur" tekur undir með Heidi Strand, sem hann veit engin deili á ? Veit hann ekki, að Vikun Quisling komst til valda í Noregi í skjóli hervalds Adolfs Hitlers og Gestapo í Seinni Heimstyrjöldinni ?
Ég velti því fyrir mér, hver er greindarvísitala fólks (I.Q.) eins og Heidi Strand og "Ekki Quisling" ?!
Með kveðju frá Siglufirði, KPG.
Kristján P. Gudmundsson, 6.2.2009 kl. 13:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.