Merkileg umræða

Hún er merkileg umræðan um mynt fyrir okkur Íslendinga. Hver ágætismaðurinn  af öðrum  hefur  sagt að  við eigum að taka  upp  evru án inngöngu í ESB. Hver leiðtoginn á vettvangi  ESB  af öðrum hefur  sagt við okkur að það sé ekki mögulegt.  Samt  er haldið áfram að  tala um að  taka upp Evru án þess að ganga í ESB

Nú  er  talað um að taka upp norska  krónu. Norðmenn  segja  það ekki kost í stöðunni.  Samt halda menn áfram að tala um að  við  eigum að taka upp norska krónu.

Er ekki staðreyndin sú ,að  við verðum með krónuna um  langt skeið enn ,nema  við sækjum um  aðild  að ESB ?  Þá  getur  evra orðið gjaldmiðill á Íslandi einhverntíma í  framtíðinni.


mbl.is Norsk króna ekki í umræðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband