HISSA?

Einhvernveginn  finnst mér ,að það ætti að  vera sjálfgefið að  kjöt af lömbum sem  alin eru á hvönn hafi hvannarkeim eða hvannarbragð. Tvílemba,sem  afi minn átti  gekk í hvannastóði   við Réttarholt í Garði sumarið 1948. Kjötið varð næstum óætt,  svo megnt  hvannarbragð var að því.

Hélt annars að það væri  bragð mat en ekki af mat.

Bragð af mat þýðir allt annað en  bragð að mat. ekki satt?


mbl.is Hvönn hefur áhrif á bragð af lambakjöti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur P Helgason

Það er talað um að mikil brögð séu að einhverju. En bragðið kemur af matnum ( bragð af mat ), hundar finna lykt af mat. Bragðið af matnum er gott ( ekki bragðið að matnum ). Þetta er alveg afbragðsgott!

Hallgrímur P Helgason, 12.9.2007 kl. 17:55

2 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Bragð er þá barnið finnur, segir gamalt máltæki, sumsé það er mikið bragð. Ég segi samt alltaf bragð af matnum en held að það eigi að vera að 

Svala Erlendsdóttir, 13.9.2007 kl. 15:16

3 identicon

Orðabók  Menningarsjóðs  segir: Bragð af mat, - ögn af mat , nóg til þess að finna bragð. Algengt er að  sagt  sé: Það er  gott bragð að matnum. En orðabókin segir líka: Það er gott bragð  af matnum. Tilbrigði málsins eru mörg.

Eiður (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband