22.12.2016 | 17:29
Molar um málfar og miđla 2079
SÍBRJÓTUR
Molavin skrifađi ( 22.12.2016): ,, "Síbrjótur dćmdur fyrir ţjófnađ og árás" segir í fyrirsögn fréttar á vef Ríkisútvarpsins (22.12.). Ţađ er gaman og gleđiefni ţegar tekin eru upp lipur orđ, gagnsć og auđskiljanleg. Ţetta orđ, síbrjótur" er liprara en síbrotamađur en segir ţađ sama. Ágćtis orđ. Ţakka bréfiđ, Molavin
STAFSETNING OG BEYGINGAR
Jt benti á eftirfarandi af mbl.is:
,,Afritađi ţetta af mbl.is - hér vantar eitthvađ á stafsetningarkunnáttu og beygingarkunnáttu (sjá ţađ sem er undirstrikađ)
Tćkni & vísindi | mbl | 21.12.2016 | 12:05
Hyllir undir lok hallćrisins Íbúar á norđurslóđum sem ţrauka nú í gegnum svartasta skammdegiđ geta ţakkađ möndulhalla jarđar fyrir ađ hýrast í myrkri nćr allan sólahringinn. Nú hyllir hins vegar undir lok hallćrisins ţví vetrarsólstöđur voru í morgun og sólin fer ađ staldra lengur viđ á daginn á norđurhvelinu.
200 mílur | mbl | 21.12.2016 | 11:42
Fengu bók um örlög fyrsta Dettifoss Áhöfnin á Dettifossi var afhent bókin Ljósin á Dettifossi eftir Davíđ Loga Sigurđsson sagnfrćđing en í bókinni skráir hann sögu afa síns, Davíđs Gíslasonar stýrimanns, og fjallar bókin um hinstu för skipsins.- Ţakka ábendinguna Jt. Rétt er ađ ţarna skortir nokkuđ upp á kunnáttu í stafsetningum og réttum beygingum. - Enn eitt dćmiđ um ađ enginn les yfir áđur en birt er. Ţađ er ljóđur á ráđi fjölmiđils ,sem mikiđ er lesinn.
FRÉTTAMAT
Einkennilegt fréttamat hjá Ríkisútvarpinu ađ leggja stóran hluta Spegilsins, - ađalfréttatíma og fréttaskýringatíma útvarpsins (21.12.2016) undir viđtal viđ Birgittu Jónsdóttur ţingmann Pírata um bandaríska uppljóstrarann Edward Snowden, sem nú er undir verndarvćng Pútíns í Moskvu.
Hver var fréttin? Birgitta vill ađ Snowden fái íslenskan ríkisborgararétt. Ţađ er gömul frétt. Nokkurra ára gömul. Ţetta var einkennilegt fréttamat. Gat ekki heyrt ađ neitt vćri nýtt í ţessu.
HAMBORGARAHRYGGIR OG FLEIRA
Enn eru auglýstir hamborgarahryggir í Ríkisútvarpinu (22.12.2016), ţegar átt er viđ hamborgarhryggi. Kannski ţessir hryggir gerđir úr hamborgurum? Skrítiđ ađ enginn skuli leiđrétta svo augljósa villu. Ku8nnátta í beygingum og málfrćđi íslenskrar tungu mćtti vera meiri á auglýsingastofu. Sama dag voru auglýstir tónleikar til styrktar Mćđrastyrksnefndar. Til styrkar Mćđrastyrksnefnd , hefđi ţetta átt ađ vera. ( Til styrktar Guđrúnu, - ekki til styrktar Guđrúnar)
HÖFUĐ LÖGREGLU
Dálitiđ ankannaleg fyrirsögn á bls. 8 í Fréttablađinu (21.12.2016): Höfuđ lögreglu í Svíţjóđ víki. Fréttin er um ađ leiđtogi Hćgri flokksins í Svíţjóđ hafi krafist afsagnar ríkislögreglustjórans ţar í landi.
ANDVARI Í PÓLITÍK
Ef marka má nafnlausa Staksteina Morgunblađsins (22,12,2016) er Andvari, rit Hins íslenzka Ţjóđvinafélags komiđ á kaf í pólitík, - ritstjórinn leggst ţar í vörn fyrir fyrrverandi forsćtisráđherra, sem hrökklađist úr embćtti af ástćđum sem ţjóđin öll ţekkir. Ţetta er undarlegt og kemur örugglega mörgum áskrifendum ritsins á óvart.
HVERADALIR
Örnefni skila sér ekki alltaf rétt í fréttum. Í óveđursfréttum Ríkisútvarps á ţriđjudagskvöld (20.12.2016) var sagt frá bíl eđa bílum sem lent höfđu í vandrćđum vegna ófćrđar í Hveradalsbrekku. Átt var viđ brekkuna vestur af Hellisheiđi eđa upp frá Svínahrauni á heiđina, fram hjá Skíđaskálanum. Ţar heita Hveradalir. Viđ tölum um Skíđaskálann í Hveradölum. Stundum er brekkan líka kennd viđ skálann og kölluđ Skíđaskálabrekka. Ţetta hefur áđur boriđ á góma í Molum.
GLEĐILEG JÓL OG GĆFURÍKT ÁR, ÁGĆTU MOLALESENDUR !
Fyrirvari: Athugasemdir frá öđrum á ţessari síđu eru á ţeirra ábyrgđ.
Síđuskrifari áskilur sér rétt til ađ fjarlćgja dónaleg eđa meiđandi ummćli, nafnlausar athugasemdir eđa athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel ţegin. Bréfritarar eru beđnir ađ taka fram hvort birta megi bréf, eđa ábendingar ţeirra, undir nafni, - ESG
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.