17.12.2016 | 12:30
Molar um málfar og miðla 2074
FYRIRHÖFN OG FJÁRMUNIR
Þorvaldur skrifaði Molum (13.12.2016): ,,Sæll Eiður.
Var að horfa á Kastljós þar sem rætt var við lögfræðing Lyfjastofnunar um eftirlit með svokölluðum lækningatækjum. Pilturinn sagði að setja þyrfti frekari "rísorsa" (e. resources) í eftirlitið til að það mætti koma að gagni. Ekki átti hann íslenskt orð yfir hugtakið, en hefur trúlega átt við fyrirhöfn og fjármuni. Þakka bréfið Þorvaldur. Enskusletturnar eru í mikilli sókn, - því miður. Ekki þarf lengi að hlusta á útvarp til að komast að raun um það.
UM BIRGJA
Birgir er fyrirtæki, sem sér öðrum fyrirtækjum aðföngum, segir orðabókin. Það beygist sem hér segir: birgir, birgi, birgi, birgis. Í fleirtölu: birgjar, birgja, birgjum, birgja. http://bin.arnastofnun.is/leit/?id=4528. Þetta vefst fyrir ýmsum. Þetta er af mbl.is (13.12.2014):,, Þórarinn Þórarinnsson (Innskot- svo!) , vörustjóri á Iðnaðarsviði hjá N1, segir þeirra frostlög koma frá birgja í Bretlandi, sem hafi sett svo nefndan bittering agent út í frostlögin.
Okkar birgi á í miklum viðskiptum við Frakkland og þar er þetta skyldað samkvæmt lögum, Þetta er eiginlega tóm vitleysa. Frostlögurinn kemur frá birgi. Okkar birgir á í erfiðleikum. Óþarfi er að nota ensku, bittering agent. Það hefði verið alveg nóg að tala um biturt, bragðvont efni. Enginn les yfir. Eða, að sá sem las yfir er jafn illa að sér og sá sem skrifaði. Svo er maðurinn Þórarinsson, ekki, - Þórarinnsson. Óttaleg hörmung.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/12/13/bitri_frostlogurinn_freistar_ekki/
ÓÞARFA ÞOLMYNDIN
Enn eitt dæmi um óþarfa þolmynd af fréttavefnum mbl.is (12.12.2016) : ,, Síðdegis í gær var síðan ferð ölvaðs ökumanns stöðvuð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Betra hefði verið: Síðdegis í gær stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ferð ölvaðs ökumanns á
Hafnarfjarðarvergi við Arnarnes. Germynd er betri. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/12/12/fjorir_grunadir_um_fjarkugun/
Og hér er annað dæmi um vonda, eiginlega verri, þolmynd, - einnig af mbl.is (13.12.2016) : Nú í kvöld birtust fréttir í sænskum fjölmiðlum þess efnis að grunur léki á gríðarlegum skandal hvað varðar hagræðingu úrslita af leikmönnum í efstu tveimur deildum sænsku knattspyrnunnar. Þetta er eiginlega enn verri texti en dæmið um ferð ölvaðs ökumanns. Hér hefði til dæmis mátt segja: Í kvöld birtust fréttir í sænskum fjölmiðlum um að grunur léki á að leikmenn í tveimur efstu deildum sænsku knattspyrnunnar hefðu hagrætt úrslitum knattspyrnuleikja. Það væri meiriháttar hneyksli ef rétt reynist. Stór skandall skekur Svíþjóð, er fyrirsögnin ! Ekki góð vinnubrögð.
http://www.mbl.is/sport/fotbolti/2016/12/13/stor_skandall_skekur_svithjod/
GÓÐUR!
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (13.12.2016) var sagt frá hópslagsmálum í Arnarfirði ,,Kúlubardaganum mikla fyrir einum 60 árum, sem sennilega hefðu verið síðustu hópslagsmál á Íslandi, en þar gekk greinilega mikið á, þótt mannfall yrði ekki. Að lestri fréttarinnar loknum, sagði Broddi Broddason, þulur: Og víkur nú sögunni að síðari tíma íþróttum og svo fylgdi ný íþróttafrétt. Góður !
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com . Eða einkaskilaboð á fasbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.