20.7.2015 | 10:22
Molar um málfar og miðla 1754
MIKIÐ MAGN FERÐAMANNA!
Í fréttum Ríkissjónvarps (16.07.2015) var sagt: Ferðamenn streyma hingað í áður óþekktu magni. Það var og! Magn ferðamanna er venju fremur mikið í ár!!! Hér hefði farið betur á því að segja til dæmis, að ferðamenn kæmu nú til landsins í áður óþekktum mæli. Eða, - Fleiri ferðamenn koma nú til Íslands en nokkru sinni fyrr. Ekki magn ferðamanna, takk.
ÍSHELLIR OPNAÐI
Í sama fréttatíma var okkur sagt að íshellir hefði opnað í Langjökli í dag. Íshellirinn var opnaður. Hann opnaði hvorki eitt né neitt. Það er kannski vonlaust að berjast gegn þessari notkun sagnarinnar að opna. Molaskrifari mun samt halda áfram að nefna áberandi dæmi af þessu tagi úr fjölmiðlum.
BARMAMERKI
Á Bylgjunni (17.07.2015) voru auglýst barmamerki. Tölum við ekki um barmmerki?
ÓTELJANDI
Molaskrifari er á því að beygingavillurnar í fréttatíma Stöðvar tvö á föstudagskvöld (17.07.2015) hafi verið óteljandi eða því sem næst, - Auknar hjólreiðar leiða til fjölgun ....Eitt dæmi af mýmörgum. Er enginn metnaður hjá fréttastofu Stöðvar tvö til að vanda sig og gera vel?
ÍBÚÐAEININGAR
Hver er munurinn á íbúðum og íbúðaeiningum? Í Morgunútgáfu Ríkisútvarpsins (17.07.2015) talaði bæjarstjórinn í Garðabæ aftur og aftur um íbúðaeininga. Er það ekki bara íbúðir?
GANGA Á EFTIR
Í fréttum Bylgjunnar (17.07.2015) var sagt: ... þar sem gengið er á eftir því að (flugbraut verði lokað) ... Hér hefði átt að sleppa forsetningunni á. Að ganga eftir einhverju er að reka á eftir því að eitthvað verði gert eða ógert látið. Hinsvegar er talað um að ganga á eftir einhverjum með grasið í skónum .. þrábiðja einhvern um eitthvað, leita fast eftir því að ná ástum einhvers ...
GÓÐ FYRIRSÖGN
Góð fyrirsögn á mbl.is: Ferðamenn á flæðiskeri staddir. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/07/16/ferdamenn_a_flaediskeri_staddir/
ÓBRIGÐUL SNILLD
Hún bregst ekki snilldin á Smartlandi mbl.is . Ekki frekar en fyrri daginn (17.07.2015): Landið er fullt af fjallmyndarlegum, gáfuðum og klárum konum í lausagangi. Molaskrifara grunar hvað hér er verið að reyna segja, - að fjölmargar myndarkonur séu ólofaðar. Séu ,,á lausu eins og sagt er á slangurmáli. Vélar eru í lausagangi, þegar þær eru ekki tengdar við drif eða aflúttak. Stundum er talað um hægagang eða tómagang.
ENDURSÝNING?
Prýðilegur var þátturinn um Kristin Hallsson, sem Ríkissjónvarpið sýndi á sunnudagskvöld (19.07.2015). Andrés Indriðason sem annaðist dagskrárgerðina kann sitt fag. Í lok þáttarins kom fram að hann væri frá árinu 2013. Molaskrifari heyrði hinsvegar ekki né sá þess getið að verið væri að endursýna þáttinn. Eru það heiðarleg vinnubrögð? Kannski fór tilkynning um endursýningu bara fram hjá skrifara. Það á að sjálfsögðu að segja okkur, þegar verið er að endursýna efni.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Athugasemdir
Já, það hefði hljómað betur að "Ferðamenn streyma hingað, aldrei sem fyrr" eða eitthvað álíka. En þetta með magnið er gömul gildra sem margir ganga í. Held að þeir sem skrifa fréttir treysti ekki á almenna málnotkun sem fjallar um fjölda/aukningu, nú eða þá "magn" - þetta er áráttan um að nota nafnorð í stað þess að nota orðatiltæki eða annað til að lýsa fjölgun ferðamanna.
En alltaf samkvæmt fréttum, þá fjölgar ferðamönnum, og öðru um ákveðið prósetustig. Ég hef aldrei skilið hvað þetta stig merkir. Prósenta % er prósenta: 20% fjölgun ferðamanna er 20 prósenta fjölgun ferðamanna Sem reiknað í prósentum. Ekki stigum. Af hverju er þá alltaf talað um um prósentustig? Getur þú eða einhver lesandi hér, útskýrt þetta prósentustigsmálfar fjölmiðlamanna?
Ingibjörg Magnúsdóttir, 22.7.2015 kl. 00:21
Ætli þetta sé ekki sama fyrirbæri og á ársgrundvelli, sem er bara á ári. Apar svo hver eftir öðrum.
Eiður (IP-tala skráð) 22.7.2015 kl. 08:53
Já, það er nefnilega hver fjölmiðillinn á fætur öðrum sem hefur tekið upp prósentustigið.
Ingibjörg Magnúsdóttir, 23.7.2015 kl. 00:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.