Molar um málfar og miðla 1610

  

Sú spurning, by the way , reyndist krökkunum mjög auðveld, ... sagði íslenskur embættismaður (deildarstjóri innlendra prófa hjá Námsmatsstofnun) úr skólakerfinu í hádegisfréttum Ríkisútvarps (06.11.2014). Hann var að verja illa samið íslenskupróf ,sem lagt var fyrir nemendur á samræmdum prófum í grunnskólum.

 

Aftur og aftur talaði fréttamaður Stöðvar tvö um vissaukaskatt í fréttum (06.11.2014) Er þetta ný skattur? Ef til vill var hann að reyna að segja virðisaukaskattur. Talþjálfun gæti komið að góðu gagni.

 

Í Samfélaginu á Rás eitt (06.11.2014) var vitnað í ummæli á fréttavef BBC. Lyfjaiðnaðurinn hátt uppi af bólgnum gróða. Á vef BBC mun hafa verið sagt: The pharmaceutical industry gets high on fat profits. Kannski hefði mátt segja, að lyfjaiðnaðurinn væri í vímu vegna ofsagróða.

 

Það var hálf dapurlegt að heyra íslenskan dagskrárgerðarmann Ríkissjónvarpsins babla ensku við Færeyinga í þætti á fimmtudagskvöld.  Heimsóknin til Péturs Nólsö, Péturs Noll, eins og Færeyingar segja, var það bitastæða í þættinum , enda ekki hægt að gera vont sjónvarpsefni úr Pétri eða heimsókn til hans. Jafnvel mesti klaufi gæti það ekki.

 

Undarlega eru stundum dagskrárkynningar Ríkissjónvarps. Á miðvikudagskvöld (05.11.2014) var tönnlast á því að annað kvöld yrði sýndur þáttur með Edduverðlaunahafanum Andra Frey á flandri um Færeyjar. Molaskrifari man ekki betur en margir Edduverðlaunahafar séu þáttagerðarmenn í Ríkissjónvarpi. Án þess að það sé útmálað aftur og aftur í hvert skipti sem þeir koma fram. Hafa ekki Sigmar og Kastljós fengið Edduverðlaun? Og fleiri. Og fleiri. Ekki er tönnlast á því í dagskrárkynningum. Kannski er þetta bara kjánagangur og hégómagirnd. Ef einhver velkist í vafa um merkingu orðsins hégómagirnd, þá er bara að fletta upp í orðabók: ,,Þrá eftir fáfengilegum hlutum sem snúast um eigin persónu”

 

Í þættinum, sem nefndur er hér að ofan var okkur sagt, að höfuðstaður Færeyja, Þórshöfn, væri staðsettur á stærstu eyjunni Straumey ... Allt er nú staðsett. Þórshöfn er á Straumey, sem er stærst Færeyja.

 

 Það er í góðu lagi að hlusta á vel fluttar auglýsingar/tilkynningar í Ríkisútvarpi. Þar er stundum eitthvað fréttnæmt. Leiknu auglýsingarnar, þar sem stundum er gargað á okkur af einstakri ósmekkvísi, eru hinsvegar skemmdarverk á Rás eitt.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, ég tók eftir þessu í fréttunum, sem þú segir frá hér fyrst, Eiður, og þótti sem þér afar ankannalegt af íslenzkukennara, sem var að ræða um misheppnað próf í íslenzku máli!

Og svo er eins og unglingsbragur sé kominn á framburðinn hjá sumum fréttamönnum ljósvakamiðla, eins og þú nefnir í 2. atriðinu.

Jón Valur Jensson, 10.11.2014 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband