25.7.2014 | 08:39
Molar um málfar og miðla 1526
Í fréttum Stöðvar tvö (23.07.2014) var sagt að tvær Herkúles herflugvélar hefðu flutt lík látinna frá Úkraínu til Eindhoven í Hollandi. Myndirnar sem sýndar voru með fréttinni báru það með sér að þetta var rangt. Hollenska vélin var af gerðinni Herkúles C-130, fjögurra hreyfla skrúfuþota. Ástralska vélin var fjögurra hreyfla þota af gerðinni Boeing C-17. Óþörf villa.
Í fréttum Ríkissjónvarps (23.07.2014) um berghlaupið eða skriðuna sem hljóp fram í Öskjuvatn var sagt: ... myndin var tekin af landvörðum.
Þurfti að beita afli? Þetta er óþörf og vond þolmyndarnotkun. Germynd er alltaf betri. Landverðir tóku myndina. Í sama fréttatíma var sagt að stjórnvöld í Ísrael hefðu staðfest afhendingu bréfs frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Hefði ekki verið eðlilegra að segja að stjórnvöld hefðu staðfest móttöku bréfsins, staðfest að hafa tekið við bréfinu?
Það er engu líka en blessað Ríkissjónvarpið líti á það sem skyldu sína að bjóða okkur upp á bíómyndir af botni ruslakassans um helgar á þessum árstíma. Molaskrifari skoðaði einkunnir, sem þrjár kvikmyndir fá á IMDb, sem sýndar verða um helgina: Ekki glæsilegt, 5,2, 5,3 og 6,3. Það er hægt að gera miklu betur en þetta, - ef vilji er fyrir hendi.
Þjófurinn fór í gegnum rúðuna, segir í frétt á mbl.is (24.07.2014) af ,,pínulitlum þjófi í Reykholti: ,, Litlar skemmdir urðu á húsnæði verslunarinnar en talið er að þjófurinn hafi verið smávaxinn þar sem hann hefur laumað sér inn í verslunina í gegnum minnstu rúðu hennar. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/07/24/pinulitill_thjofur_i_honnubud/
Þetta er eiginlega ,,pínulítil frétt , eða þannig.
Ekki fór Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóri ÍNN fögrum orðum um framgöngu Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði í sjónvarpi sínu í gærkveldi (24.07.2014). Hann líkti framgöngu Ríkisútvarpsins á þeim vettvangi við framferði Ísraelsmanna gegn Palestínumönnum!
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Athugasemdir
RÚV er duglegt við að grafa sér eigin gröf. Ég græt það ekki - við höfum ekkert við ríkisrekna fjölmiðla að gera. Þeir þjóna hagsmunum einræðisherra eins og Pútíns.
Með þessu áframhaldi þarf ekki lengur alls kyns ræður og kynningar á því hvers vegna ætti að selja RÚV, eða loka fyrirtækinu - RÚV hefur á fáum árum sjálft legt fram rökin sem andstæðingar ríkisfjölmiðla hefðu annars þurft að hrópa á götuhornum.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.7.2014 kl. 16:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.