22.5.2014 | 09:16
Molar um málfar og miðla 1475
Þar talar ráðherrann um ,,leiðréttingu á skuldalækkun, sem þýðir væntanlega skuldahækkun! Óskýr texti. Óskýr hugsun. Sama gildir um grein tveggja frambjóðenda sama flokks, Framsóknarflokksins, í Morgunblaðinu (21.05.2014),, Krefjumst raunhæfra hugmynda og leiða svo hægt sé að byggja Reykjavík fyrir venjulegt fólk, ekki innihaldslaus loforð korter fyrir kosningar. Óskýr texti. Óskýr hugsun. Þegar Molaskrifari þekkti best til var fólk í Framsóknarflokknum sem gat hugsað ágætlega skýrt. Því hefur greinilega fækkað mjög.
Af mbl.is (19.05.2014): Myndirnar um Guðfaðirinn eru hans þekktasta verk en þá tók hann einnig upp kvikmyndir á borð við Annie Hall, Interiors, Manhattan og Stardust Memories. Einu sinni var kennt í barnaskólum og seinna í grunnskólum hvernig beygja ætti orðið faðir. Sú kennsla hefur ekki náð til þess sem þetta skrifaði á mbl.is.
Þeir sem ráða dagsskrá Ríkissjónvarpsins virðast trúa því að íslenska þjóðin hafi ótakmarkaðan áhuga á slökkviliðsmönnum og bráðaliðum í Chicago. Er ekkert betra efni í í boði? Er ekki komið nóg?
Rafn benti Molaskrifara á nýsamþykkt lög frá Alþingi, sem heita, - Lög um framkvæmdarvald ríkisins í héraði Hann spyr: ,,Er þetta eðlileg eintala á framkvæmdarvaldi? Ég hefði notað fleirtöluna, en þetta er komið í lög. Molaskrifari hefði reyndar gert það líka. En þetta mun ekki vera nýtt og íslensk orðabók hefur að geyma bæði orðin framkvæmdavald og framkvæmdarvald.
Er útilokað að Ríkissjónvarpið geti fundið dagskrárkynni,sem talar með eðlilegum áherslum og eðlilegri hrynjandi? Svona eins og venjulegt fólk?
Á annað hundrað manns gengu með Guðný, sagði fréttamaður Stöðvar tvö , Magnús Hlynur Hreiðarsson. (21.05.2014). Tvisvar tókst honum að beygja þetta algenga nafn rangt í stuttri frétt. Fréttastjóri ætti að segja honum til.
Það er röng ákvörðun hjá stjórnendum í Ríkisútvarpinu að fylla fréttatímana í útvarpi og sjónvarpi af umræðum og framboðsræðum um sveitarstjórnarmál. Sú umfjöllun á ekki heima í fréttum, heldur í sérstökum þáttum utan fréttatímans. Hversvegna er svæðisútvarp ekki endurvakið? Svona efni á heima þar.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Athugasemdir
Mikið hrikalega geturðu verið smásmugulegur og þá um leið hundleiðinlegur! Hefurðu ekkert annað fyrir stafni?
Vænti þess að þú hendir þessu bara út skv. skilyrðum þínum og ritskoðun.
Hilmar Sigurðsson (IP-tala skráð) 22.5.2014 kl. 18:37
Hversvegna ertu þá að lesa það sem ég skrifa? Það biður þig enginn um það. Lifðu í friði með öll þín leiðindi.
Eiður Guðnason (IP-tala skráð) 22.5.2014 kl. 22:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.