16.5.2014 | 10:37
Molar um málfar og miðla 1470
Merkileg fréttamennska hjá Ríkissjónvarpinu að segja eingöngu frá ræðu forsætisráðherra SDG í seinni fréttum (15.05.2014). Kom svo sem ekkert sérstaklega á óvart. Sami háttur var hafður á í miðnæturfréttum Ríkisútvarps. Skorti fréttastofuna kjark til að segja frá því hvernig Steingrímur J. hrakti rangar yfirlýsinga SDG lið fyrir lið? Engu líkara.
Úr frétt á mbl.is (10.05.2014): ,,Borgarbúar og aðrir góðir gestir koma saman í miðborg Reykjavíkur í dag til að fagna fjölbreytileikanum og þá litríku einstaklinga sem þar búa, ... .... og þeim litríku einstaklingum ..... ætti þetta að vera. Svo er líka til orðið fjölbreytni. Í sömu frétt segir: ,, Í Ráðhúsinu er að finna fjölþjóðlegan markaður í Tjarnarsal ... Þar er að finna fjölþjóðlegan markað. Fréttabarnið sem þetta skrifaði virðist ekki hafa mikla tilfinningu fyrir móðurmálinu. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/05/10/fagna_fjolbreytileikanum
/
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (15.05.2014) var tvívegis farið rangt með nafn Önnu Birnu Jensdóttur, forstjóra hjúkrunarheimilisins Sóltúns. Ekki góð vinnubrögð. Ekki heyrði Molaskrifari að þetta væri leiðrétt. Fréttamenn eiga að gæta þess að fara rétt með nöfn þeirra sem rætt er við eða um fjallað. Grundvallarregla.
Fyrir nokkrum dögum gekk Molaskrifari svokallaða Frelsisslóð (Freedom trail) í Boston þar sem leiðin liggur fram hjá ýmsum sögustöðum í borginni. Meðal annars húsi Pauls Revere, hetjunnar úr ameríska frelsisstríðinu eða byltingunni. Þar var hópur grunnskólabarna að skoða svefnherbergi á annarri hæð. Leiðsögmaður fræddi þau um sögu hússins. Sagði að börnin, strákar og stelpur hefðu á sínum tíma sofið sitt í hvoru herberginu og það hefði verið hlutverk yngsta barnsins að hella úr koppunum (chamber pots). Í lokin spurði hann hvort einhver hefði spurningar fram að færa. Eitt barnið rétti strax upp hendina og spurði: What is a chamber pot? Leiðsögumaðurinn útskýrði það. Einskonar klósett, geymt undir rúmi. Á leiðinni út velti skrifari því fyrir sér hvort íslensk grunnskólabörn væru með það á hreinu hvað koppur væri. Sennilega. En líklega þekkja fæst þeirra orðið næturgagn. Þannig er nú það.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.