13.3.2014 | 21:04
Molar um málfar og miðla 1433
Í vaxandi mæli er Kastljós Ríkissjónvarpsins lítið annað en eitt viðtal. Ekki ber að lasta þau viðtöl sem flutt hafa verið, en Molaskrifara sýnist sem þrengt sé að Kastljósinu bæði hvað mannafla og fé snertir. Þetta er slæmt og gerist á sama tíma og íþróttadeild Ríkissjónvarpsins blæs út í dagskránni virðist ekki fjár vant. Þar er greinilega úr nógu að spila. Þetta er að mati Molaskrifara röng forgangsröðun, sem nýr útvarpsstjóri ætti að breyta.
Annað sem nýr útvarpsstjóri þarf að kippa í liðinn er að taka upp að nýju fréttaflutning á nóttinni. Veit útvarpsstjóri nokkuð hve margt fólk er að vinna að næturlagi vítt og breitt um þjóðfélagið eða yfirleitt hve margir hlusta á útvarp á nóttinni? Okkur er sagt að maður sé á vakt alla nóttina til að flytja tilkynningar, ef vá ber að höndum. Getur það ekki verið fréttamaður? Það er ekki meira en eins manns verk að skrifa stuttar fréttir sem fluttar eru á heila tímanum alla nóttina. Molaskrifari þekkir fréttaskrif svolítið af eigin raun. Það þarf enginn að segja honum að þessu fylgi mikill kostnaður fyrst starfsmaður er á vakt hvort sem er. Það er bara fyrirsláttur. Það er mikill skortur á þjónustulund af Ríkisútvarpsins hálfu að sinna þessu ekki.
Sk.GS benti á eftirfarandi úr DV (12.03.2014): Sæll. Hvað getur maður sagt við þessu? Eitruð gös? DV í stuði.
,,Eitruð gös myndast þegar þú pissar í sundiNý rannsókn bendir til þess að mjög slæmt sé að pissa ofan í klórblandað vatn. Molaskrifari þakkar sendinguna. Eins gott að gæta sín!
Rangt var farið með nafn Sigurðar Inga Jóhannssonar í fréttum Ríkissjónvarps á fimmtudagskvöld (13.04.2014). Hann var sagður Jóhannesson. Slíkt getur alltaf komið fyrir, en þá er bara að leiðrétta. Ekki heyrði Molaskrifari að það væri gert í þessum fréttatíma.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Athugasemdir
"...en Molaskrifara sýnist sem þrengt sé að Kastljósinu bæði hvað mannafla og fé snertir."
Betra væri: "...en Molaskrifara sýnist að Kastljósinu vanti bæði hvað mannafla og fé."
Ásgrímur Hartmannsson, 13.3.2014 kl. 22:22
Ósammála, Ásgrímur.
Eiður Svanberg Guðnason, 13.3.2014 kl. 22:31
Satt er - þurfti að eyða þessu "hvað" líka. Þá hefði þetta verið flott.
Ásgrímur Hartmannsson, 15.3.2014 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.