19.2.2014 | 09:34
Molar um málfar og miðla 1417
Viðskiptajöfnuðurinn hefur aldrei verið meiri en hann nam 133,9 milljörðum danskra króna 2013 sem er 24,7 milljörðum meira en árið áður. Sjá: http://www.pressan.is/Vidskipti/Lesavidskiptafrettir/danmork-vidskiptajofnudurinn-slo-oll-met-2013
Rafn segir: ,,Er þessi frétt ekki dæmi um ójöfnuð fremur en jöfnuð?? Fréttin er af vef Pressunnar.
Þetta minnir mig á þegar fyrrverandi ráðherra tók til marks um fullan jöfnuð kynja í nýrri ríkisstjórn Íslands, að það voru sendar 3 konur og 1 karl til að kynna hina þá nýju ríkisstjórn. Slíkt hefði seint verið talið fullur jöfnuður í minni sveit.
Í mínum huga getur misvægi aldrei orðið jafnvægi, þótt það sé á þann veg sem er viðkomandi þóknanlegur. Molaskrifari þakkar bréfið.
KÞ vakti athygli Molaskrifara á meiri snilld á vefnum pressan.is (17.02.2014): Það kemur væntanlega ekki mörgum á óvart að mannréttindabrot eru algeng í einræðisríkinu Norður-Kóreu en umfang þeirra og hryllilegar aðferðir stjórnvalda við að kúga almenning virðast ekki eiga sér engin takmörk. Enginn yfirlestur eða gæðaeftirlit með því sem birt er. http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/02/17/ny-skyrsla-sth-hryllileg-mannrettindabrot-i-nordur-koreu/
Fréttabarn hefur verið á vaktinni á mbl.is síðdegis mánudag (17.02.2014). Þar var svohljóðandi fyrirsögn: Hótaði að klessa vélinni. Fréttin var um flugmann sem hótaði að brotlenda farþegaflugvél. Fyrirsögnin var lagfærð um kvöldið.
Molalesandi, HH, vakti athygli á auglýsingu frá ProOptik á vefsíðunni http://www.hun.is/. Þar segir: 18 ára og yngri eiga rétt á endurgreiðslu vegna gleraugnakaupa , við útbúum gleraugu sem nemur upphæð endurgreiðslunnar. Það er svo sannarlega ekki fyrir alla að skilja hvað hér er átt við.
Í fyrirsögn á forsíðu DV (18.-20.02.2104) stendur: Óbreyttir starfsmenn voru sendir í sprengjuhættu. Hversvegna þarf að taka fram að þetta hafi verið óbreyttir starfsmenn? Molaskrifari hefði notað orðið sprengihætta ekki talað um sprengjuhættu. Heldur ekki að senda menn í hættu.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Athugasemdir
Helstu rök þeirra sem tala um nöldur þegar bent er á ranga málnotkun og orðafar eru þau, að tungumálið verði að fá að þróast í fullkomnu frelsi þeirra sem nota það.
Þá vill það gleymast að mjög oft er um að ræða hreina rökleysu og bull á borð við tilvitnaðar setningarnar um hinn vaxandi viðskiptajöfnuð, sem vaxi þeim mun meira sem meiri munur er á útflutningi og innflutningi.
Þegar rökleysur vaða uppi eru röng notkun málsins beinlínis skaðleg í öllu tilliti.
Ómar Ragnarsson, 19.2.2014 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.