28.1.2014 | 09:55
Molar um málfar og miðla 1398
Í fréttum Ríkissjónvarps (25.01.2014) var talað um feitan íþróttapakka. Hvað er feitur íþróttapakki? Í sama fréttatíma var sagt frá listviðburðum í Garðinum. Þar var talað um að listamenn héldu vinnustofur. Ekki áttar Molaskrifari sig á því orðalagi.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (26.01.2014) talaði fréttamaður um hærri verð fyrir tapaða orku. Viðmælandi hans talaði um magn tapanna. Þetta þykir sjálfsagt gott og eðlilegt málfar. Molaskrifari kann þó ekki meta að svona sé tekið til orða.
Hversvegna tala íþróttamenn um að opna markareikninginn?
Orðið viðhlítandi var tvívegis rangt skrifað í skjátexta í fréttum Ríkissjónvarps á sunnudagskvöld (26.01.2014). Var enginn á vaktinni sem vissi betur?
Ljót og óþörf þolmyndarnotkun hjá fréttamanni Stöðvar tvö í upphafi frétta á sunnudagskvöld (26.01.2014). Fréttamaður sagði: Telpan var flutt hingað til lands seinnihluta árs 2012 af móðurafa sínum. Betra hefði verið: Móðurafi telpunnar kom með hana hingað til lands á seinni hluta ársins 2012. Germynd er alltaf betri. Ekki mikil máltilfinning til staðar þarna. Þessi þolmyndarnotkun var endurtekin í frétt um sama efni í gærkveldi (27.01.2014)
Hversvegna var lýsi stundum kallað fiskiolía í fréttum Ríkisvarps (26.01.2014)? Var annars ekki verið að tala um það sama?
Handboltaveislunni er lokið , sagði íþróttafréttamaður Ríkissjónvarps (26.01.2014). Molaskrifara fannst þetta nú á stundum fremur plága en veisla. Sök sér að sýna leiki íslenska liðsins og útslitaleikinn,ekkert að því, en ótækt að láta íþróttastjóra komast upp með að riðla dagskránni kvöld eftir kvöld. Þessi skoðun Molaskrifara kallar sjálfsagt á mótmæli! Treysti nýjum útvarpsstjóra til að stöðva yfirgang íþróttastjóra og íþróttadeildar í dagskrá Ríkissjónvarpsins.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Athugasemdir
Sammála,óþarfi að sýna nokkra aðra leiki en þá íslensku. Þá mætti sýna seinna án þess að raska dagskrá RUV.
Helga Kristjánsdóttir, 28.1.2014 kl. 18:31
Það má líka athuga afhverju þeir nota ekki aukarásina þegar svona stór íþróttaveisla er í gangi.
Már Elíson, 28.1.2014 kl. 20:05
Auðvitað eru íþróttapakkar feitir. Það gerir allur mörinn sem þeir borða.
Svo er mjög algengt að listamenn haldi vinnustofur. Ég þekki mann sem heldur kindur. Þær snæða gras. Ekki er mér þó ljóst hvað vinnustofur láta oní sig, né hvernig afurðir fást af þeim.
Svo er eitthvað svo sér-íslenskt við að borga fyrir tapaða orku. Sem sagt, orku sem berst ekki til okkar. Svona svipað eins og kjötbökurnar þarna um daginn, sem innihéldu ekkert kjöt.
Ég held að þetta með markareikningana gildi bara í Þýzka boltanum. En auðvitað eiga þetta að vera evrureikningar.
"Móðurafi telpunnar kom með hana hingað til lands" einnig hefði verið hægt að segja: "langafi telpunnar." Hve gamall var þessi maður?
Ásgrímur Hartmannsson, 28.1.2014 kl. 20:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.