25.1.2014 | 08:26
Molar um málfar og miðla 1396
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (23.1.2014) var í þingfréttum talað um skattaívilnanir fyrir hátekjuhópum. Hefði átt að vera: Skattaívilnanir fyrir hátekjuhópa.
Fréttabarn á vaktinni á mbl.is (23.01.2014): En fólk sem tók lestina sem sýnd er í þessu myndskeiði var ekki skemmt þegar inn var komið því snjórinn hafði blásið inn í einhverja vagna með tilheyrandi kulda. Fólk var ekki skemmt! Alveg óskemmt. Snjórinn hafði blásið inn í einhverja vagna ! Þetta er með ólíkindum. Enginn les yfir. Enginn metnaður til þess að gera vel. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/01/23/thvilikur_kuldi_i_lestinni/
Meira af mbl.is sama dag: Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er ökumaðurinn komin út úr bílnum og er lítið slösuð. Ekki batnar það!
Gunnar nefnir þetta einnig í tölvubréfi (24.01.2014): Kanínukjöt á boðstólnum á Íslandi fyrir næstu jól er fyrirsögn á vefsíðunni visir.is. Boðstóll er ekki til í eintölu. Fleirtöluorðið er boðstólar svo kjötið verður á boðstólum.
Og á mbl.is er hin kostulega setning: Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er ökumaðurinn komin út úr bílnum og er lítið slösuð. Í tvígang er ökumaður fólksbíls nefndur til sögunnar. Hvernig getur ökumaður verið komin úr bílnum og verið lítið slösuð? Ökumaðurinn er kominn úr bílnum og er lítið slasaður, hvort sem hann er karlmaður eða kvenmaður. (Hann kvenmaðurinn) - Molaskrifari þakkar bréfið.
Enn er spurt, því aldrei hefur verið svarað: Hversvegna eru ekki birt bæja- og borganöfn á veðurkortunum í Ríkissjónvarpinu? Á veðurkortum færeyska sjónvarpsins eru birt borganöfn. Hvað veldur þessu?
Sá ágæti fréttanmaður Stöðvar tvö, Þorbjörn Þórðarson, má til með að læra að bera fram orðið saksóknari. Hætta að segja sífellt saksónari. Þetta var einkar áberandi í fréttum á föstudagskvöld (24.01.2014).
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Athugasemdir
Sæll Eiður.
Er málfarsráðunautur starfandi við Ríkisútvarpið?
Ég spyr því ekki sér þess stað.
Ég fæ reyndar ekki séð að menn hafi nokkurn metnað
fyrir sína hönd í þessum efnum hjá þessari stofnun; hvort
málfarsráðunautur starfar þarna eða ekki skiptir því sennilega
engu máli heldur að vitundarvakning um íslenskt mál
eigi sér stað.
Í Guðs friði,
Húsari. (IP-tala skráð) 25.1.2014 kl. 11:06
Þessari spurningu get ég ekki svarað. En það er rétt hjá þér þess sér ekki mikinn stað að málfarsráðunautur starfi við Ríkisútvapið. Sé hann starfandi virðist hann starfa í kyrrþey og hvorki skipta sér af málfari í féttum né auglýsingum.
Eiður Guðnason (IP-tala skráð) 26.1.2014 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.