Molar um málfar og miðla 536

   Óljóst er hvenær Goðafoss verður fluttur af strandstað í Noregi, segir á fréttavef  Ríkisútvarpsins (19.02.2011). Nákvæmlega sama orðalag var reyndar notað í hádegisfréttum.  Það er ekki í samræmi við málvenju að tala um að flytja  skip af strandstað.  Skip  eru ekki flutt af strandstað. Vonandi  verður Goðafoss fljótlega dreginn á  flot af skerinu.

 Undarlegt er  að tala  um Halldór Laxness og Ólínu Andrésdóttur sem „textahöfunda" eins og gert var í  Útsvari   (18.02.2011).  Bæði voru þau  skáld og ortu ljóð.  Og ekki hækkaði  risið á þessari þjóðarstofnun , þegar útvarpsstjórinn  gerði lítið úr  Bandalagi íslenskra listamanna í hádegisfréttum daginn eftir (19.02.2011).  Bandalagið hafi gerst svo  djarft að  gagnrýna íþróttadekrið  í  Efstaleiti.  Það er engu líkara en listamenn eigi ekki upp á pallborðið hjá stjórnendum Ríkisútvarpsins.  

Af mbl.is (19.02.2011): Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður lokað í dag vegna mikils vinds.  Betra hefði verið að segja  að lokað væri vegna hvassviðris. Kannski er þetta bara  sérviska Molaskrifara.

 Í sunnudagsblaði  Moggans  (20.02.2011) er talað um áætlunarskipið Titanic.Áætlunarskip ?  Eðlilegast hefði verið  að  tala um farþegaskipið  Titanic.

  Þeir sem stjórna auglýsingadeild Ríkisútvarpsins eru ekki starfi sínu vaxnir.   Auglýsingadeildin í Efstaleiti  tekur við öllu  sem að henni er rétt athugasemdalaust. Á föstudagskvöld i (18.02.2011) var sagt í auglýsingu, að tiltekin fyrirtæki felldu niður virðisaukaskatt af vörum um helgina.   Þetta eru ósannindi. Fyrirtæki geta ekki fellt niður virðisaukaskatt. Fyrirtæki geta veitt afslátt, sem  nemur virðisaukaskattsprósentunni.   Þetta er því miður  bara enn eitt  dæmið um óvönduð  vinnubrögð í Efstaleitinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband