Ungir píanósnillingar í Texas

  Virtasta tónlistarkeppni  ungra píanóleikara í veröldinni er áreiđanlega  Van Cliburn keppnin, sem fram fer  fjórđa hvert ár  í Fort Worth í Texas. Keppnin er kennd  viđ bandaríska  píanóleikarann Van Cliburn (74) sem bar sigur úr býtum í Tsjćkovskí- einleikarakeppninni í Moskvu 1958.  Ţar  lék hann  píanókonsert Tsjćkovskís nr. eitt  og Rakmaninoff konsert. Hann varđ ţjóđhetja í Bandaríkjunum fyrir vikiđ. Flutningur hans á  Tsjćkovskí konsertinum  var  fyrsta  platan  međ sígildri tónlist ,sem seldist í meira en m illjón eintökum ţar í landi.

   Norska  sjónvarpiđ NRK 2  (Hovedscenen kl. 20 10 á sunnudagskvöldum)  sýndi fyrir viku  einhverja stórkostlegustu tónlistarmynd,sem  sá er ţetta ritar hefur  séđ.  Myndin var frumsýnd í bandarísku PBS  sjónvarpsstöđvunum  haustiđ 2010 en hún  er  um  ţrettándu Van Cliburn keppnina  áriđ 2009. Myndina  gerđi   framleiđandinn og stjórnandinn Peter Rosen, sem  gert hefur meira en hundrađ heimildamyndir og unniđ  til margra verđlauna.

 Ţátttakendur  í síđustu Van Cliburn keppni  í maí 2009  voru upphaflega 29  frá 14 löndum. Ţađ ţarf sannarlega ađ hafa mikiđ til brunns ađ bera til ađ komast í ţann hóp. Keppnin stendur í ţrjár  vikur. Ţátttakendur flytja  einleiksverk, kammerverk (oftast í kvartett eđa kvintett) og síđan konsert međ fullskipađri sinfóníuhljómsveit. Vegleg verđlaun eru veitt og   ţeim sem lengst ná,  gefast  fjölmörg  tćkifćri til ađ koma fram víđsvegar í veröldinni. Nefna má ađ Olga Kern, sem deildi gullverđlaunum í Van Cliburn keppninni  2001 međ Stanislav Laudenitch lék  píanókonsert Rakmaninoffs  nr.2  međ Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói  14. maí 2009.

  Kvikmynd Peters Rosens   fjallar  einkum um ţau sex sem  komust í úrslit í Fort Wort. Athygli vekur og segir sína sögu, ađ  fjögur ţessa sex  eru  frá Asíulöndum. Tvö  frá Kína, einn frá Japan, ein frá  Suđur Kóreu, ein frá Ítalíu og  einn frá Búlgaríu. Kínverski píanósnillingurinn Lang Lang  lét nýlega svo ummćlt ađ í Kína vćru 20 milljónir ungra píanísta, sem  dreymdi um ađ verđa konsertpíanistar. Fyrir ţann ,sem dvalist hefur  fjögur ár í Kína og og sótt marga  píanótónleika er auđvelt ađ trúa ţví.

  Ţađ er ekki oft sem sá er ţetta skrifar fćr  kökk  í hálsinn viđ ađ horfa á  gott efni í sjónvarpi. Ţađ gerđist ţó, er ég horfđi á mynd Peters Rosen. Hún er geymd á hörđum diski og verđur skođuđ aftur og  enn aftur ef ađ líkum lćtur.

 Í keppninni, sem myndin fjallar um, deildu  gullverđlaunum Haochen Zhang (nítján ára) frá Kína og  Nobuyuki Tsuji (tvítugur) frá Japan, en hann er  blindur. Silfurverđlaun hlaut Yeol Eum Son  (tuttugu og ţriggja ára)  frá Suđur Kóreu. Ţau önnur  sem  komust í  lokakeppnina voru:  Evgeni  Bozhanov (25) frá  Búlgaríu, Mariangela Vacatello (27) frá Ítalíu og  Di Wu (24 frá Kína).  Ýmsir  töldu  ađ   hin  síđastnefnda  hefđi  hiklaust átt ađ vera  međal  hinna ţriggja sem  báru sigur úr býtum.

 Ađ  fylgjast međ   blinda  píanóleikaranum Nobuyuki, eđa Nobu, eins og hann var kallađur í myndinni, var  ótrúlegt  ćvintýri. Til dćmis hvernig hann og  hljómsveitarstjórinn   leystu ţann vanda  ađ í einleiksverkum eru ćvinlega augnablik, ţar sem  einleikari og  stjórnandi  ţurfa ađ hafa augnsamband. Ţessi  blindi píanóleikari spilar sig beint inn  í hjarta manns, hvort heldur hann lék einn, í kammerhópi eđa  međ  hljómsveit. Hann var  ótrúlegur.

  NRK2 endursýndi myndina laugardaginn 5.  febrúar undir  heitinu En overraskelse i Texas.

  Vonandi eigum viđ eftir ađ hlusta  á  einhverja ţessara ungu snillinga í Hörpu, ţegar ţar ađ kemur. Óskandi er  ađ ţess verđi   ekki langt ađ bíđa.

 En líklega er ţađ borin von ađ viđ fáum ađ sjá ţessa  mynd í  sjónvarpi íslenska  ríkisins.  Allavega ekki  međan núverandi stjórnendur reka stofnunina  eins og  vídeóleigu og  íţróttarás.  Ţađ er  mikil sorgarsaga. Viđ  förum nefnilega  svo mikils á mis.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband