30.1.2011 | 12:04
Molar um málfar og miđla 517
Hinum berfćttu í Afríku vantar ekki háhćlađa skó. (blog.is 29.01.2011). Ţágufallssýkin er ţrálát.
Fagmennska björgunarsveitarmanna, sem fundu Ţjóđverjann á Eyjafjallajökli , vekur ađdáun. Ţar var svo sannarlega vel ađ verki stađiđ. Vaskir menn og vel útbúnir. Mikil ţjálfun og góđur búnađur voru forsenda ţessa góđa árangurs. Ţetta minnir okkur á ađ standa ţétt viđ bakiđ á björgunarsveitunum, ţegar ţćr afla fjár til starfsemi sinnar, til dćmis međ flugeldasölu um áramót. Ekki kom fram í fréttum ađ neinir flugeldasalar frá íţróttafélögunum hefđu tekiđ ţátt í leitinni.
Í sexfréttum Ríkisútvarpsins (28.01.2011) var tvívegis talađ um Tónlistarskóla Reykjavíkur. Ekki heyrđi Molaskrifari ađ ţetta vćri leiđrétt. Tónlistarskóli Reykjavíkur er ekki til. Skólinn, sem um rćđir heitir Tónlistarskólinn í Reykjavík. Hann er elsti tónlistarskóli landsins, var stofnađur fyrir áttatíu árum. Hann hefur um árabil veriđ ađal tónlistarskóli landsins. Nú ćtlar borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík ađ ganga af ţessum skóla dauđum. Líklega hafa ţeir, sem vissu betur, ekki haft nennu til ađ leiđrétta ţessa missögn fréttastofu ríkisins. Sumum kann ađ finnast ţetta smáatriđi. Ţađ er ţađ ekki. Í fréttum skipta smáatriđin máli.
Ţessi villa rifjađi upp fyrir Molaskrifara ađ haustiđ 1955 spurđi Ţórhallur Vilmundarson, sem ţá kenndi sögu í M.R., busabekk hvađ skólinn héti. Einhver sagđi Menntaskóli Reykjavíkur, en ekki Menntaskólinn í Reykjavík,sem er hiđ rétta nafn skólans. Ţórhallur brást ţannig viđ, ađ Molaskrifari gerir ráđ fyrir, ađ sá sem í hlut átti muni til ćviloka hiđ rétta nafn ţessarar öldnu og virđulegu menntastofnunar. Ţađ verđur hinsvegar ađ gera ţá kröfu til fréttamanna Ríkisútvarpsins ađ ţeir kunni skil á nöfnum helstu skóla landsins. Og , -- ađ ţeir leiđrétti, ţegar rangt er fariđ međ. Stundum finnst Molaskrifara, ađ Bogi Ágústsson sé nćstum eini fréttamađurinn , sem leiđréttir rangfćrslur, enda reyndur og fróđur.
Prýđileg umfjöllun var um fyrirhugađan niđurskurđ á framlögum Reykjavíkurborgar til tónlistarkennslu í morgunútvarpi Rásar eitt (28.01.2011). Misvitur borgarstjórnarmeirihluti klikkađa flokksins og Samfylkingarinnar ćtlar ađ kippa stođunum undan tónlistarkennslu í Reykjavík. Réttilega hefur veriđ bent á hiđ hlálega misrćmi sem felst í ţví ađ byggja milljarđa tónlistarhús og skera tónlistarmenntun samtímis niđur viđ trog.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.