Molar um málfar og miđla 498

    Molaskrifari velti  svolítiđ  fyrir sér  orđunum fjölnota íţróttahús og  komst ađ ţeirri niđurstöđu  ađ nóg vćri   ađ tala um íţróttahús. Sleppa mćtti orđinu  fjölnota. Ekki er ţetta   stórmál. En Molaskrifara fannst taka í hnúkana, ţegar hann í hádegisútvarpi Ríkisútvarpsins heyrđi fréttamann  segja: Yfirbyggđ fjölnota íţróttahús hafa risiđ í nokkrum sveitarfélögum á undanförnum árum.?  Yfirbyggđ fjölnota íţróttahús ? Eru til óyfirbyggđ hús ?  Er ţađ ekki  ţakiđ, sem gerir fjóra veggi ađ húsi?  Eru ţá  íţróttavellir óyfirbyggđ íţróttahús?  Ţarna skortir eitthvađ á skýra hugsun, ađ ekki sé  meira sagt.

  „Viđ tókum mikla áhćttur og ţeir borguđu sig,“segir Seang Chau, (mbl.is 11.01.2011). Mogginn bregst ekki. Svolítiđ meira um Moggann. Í   Morgunblađinu sama dag er  frétt um  ađ síđustu endurskođun  Alţjóđagjaldeyrissjóđsins á efnahagsstöđu Íslands  sé lokiđ. Flestum ţykir  ţetta líklega áfangi og  talsverđ frétt. Eindálkur inn viđ kjöl á annarri síđu er fréttamat Moggans. Moggi bregst  heldur ekki í ţví ađ gera lítiđ úr ţví sem  gengur  vel eđa sćmilega hjá núverandi stjórn, ţegar flórinn er mokađur eftir ástmegi  blađsins.   Á fjórđu síđu er  frétt  um deilur innan  VG. Ţar er enn hlúđ ađ  ţví sem  Moggi kallar „órólegu deildina" og notar gćsalappir til ađ gefa  kynna ađ kannski sé ţetta alls ekki réttnefni. 

   Í fréttum Stöđvar tvö  var (09.01.2011) ítrekađ  talađ um öryrkjabótakerfiđ. Til ţessa  hefur ţetta veriđ kallađ örorkubótakerfiđ og er ástćđulaust ađ breyta ţví.  

  Enskuslettur vađa nú uppi í  auglýsingum í Ríkissjónvarpinu. Ţar er (09.01.2011) talađ um ađ smćla framan í heiminn og    spurt: Ertu  dídjei (dj) ? Ţetta dídjei er ensk skammstöfun (disc jockey), plötusnúđur ( fínt orđ). Skammstöfunin  dj...   á íslensku ţýđir hinsvegar allt annađ (djöfull). Ţegar  auglýsingapeningar eru annarsvegar lćtur  Ríkisútvarpiđ okkar málvöndun lönd og leiđ. Ţađ er miđur.

  Í ágćtu rabbi um daglegt  mál á  Rás eitt (10.01.2011)  var nefndur til sögunnar  Sigurjón á  Álafossi í tengslum viđ  orđiđ vćrđarvođ ( frábćrt orđ) sem hann notađi um ullarteppin ágćtu  frá Álafossi.  Bćđi umsjónarmađur og  Ađalsteinn Davíđsson cand. mag.  sögđu  Sigurjón í Álafossi og áttu ţá  viđ  verslunina, sem lengst af  var á horni Ţingholtstrćtis og Bankastrćtis. Sigurjón á Álafossi finnst Molaskrifara betra. Hann var alltaf  fremur kenndur viđ stađinn en  verslunina. Sigurjón var snjall auglýsingamađur. Veit ekki betur en hann hafi smíđađ slagorđiđ: Kaupirđu  góđan hlut , ţá mundu hvar ţú fékkst hann.  Ţegar honum gekk illa ađ selja ađgang ađ  danspalli á útiskemmtun á Álafossi er  sagt ađ hann hafi kallađ: Nćsti hálftími verđur ţrjú kortér.  Snjall sölumađur Sigurjón.

 Íţróttadeild  Ríkissjónvarpsins er ótrúlegt apparat. Nú er  byrjađ ađ sýna   frá  amerískum  fótboltaleikjum í  fréttum. Sú íţrótt er ekki iđkuđ á Íslandi og  ţeir eru örugglega ekki margir sem kunna leikreglurnar til hlítar í ţessari íţrótt. Ólíklegt er ađ nokkur áhugi sé  hér á landi  fyrir ţessu efni.  Ákvörđun hefur  greinilega veriđ  tekin í Efstaleiti um ađ  trođa  ţessu ofan í kok áhorfenda og skapa  spurn eftir nýrri íţróttagrein, nýju efni.

 Í Molum hefur áđur veriđ  vikiđ ađ óţolandi óstundvísi í dagskrá Ríkissjónvarpsins. Hinn prýđilegi ţáttur um  Diddú, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur  (09.01.2011) byrjađi fimm mínútum seinna en  auglýst var. Ţetta óţarfi. Ţetta er óvirđing viđ áhorfendur og subbuskapur. Ţađ er enginn vandi  fyrir ţá sem stjórna dagskránni ađ  virđa  tímamörk. Ţađ er til dćmis gert á Rás eitt. En til ţess ţarf vönduđ vinnubrögđ og metnađ til ađ gera vel.     Til samanburđar skal  nefnt ađ listaţáttur  ţáttur  NRK2  Hovedscenen ţetta sama kvöld var auglýstur klukkan 2010. Hann hófst á mínútunni klukkan 2010.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hafđu ţökk fyrir ađ standa vaktina, gamli vinur, ţótt nú virđist viđ ofurefli ađ etja, ţví ađ málkennd hér hrakar hratt ţveröfugt viđ ţađ sem gerist hjá hliđstćđum fjölmiđlum nágrannaţjóđanna.

Var nú rétt í ţessu ađ leggja ţér örlítiđ liđ međ bloggi um tískuorđin "í beit", sem vađa uppi gersamlega ađ ástćđulausu. 

En síđan ćtla ég ađ leyfa mér ađ vera ţér ósammála ţér um eitt atriđi. Mér fannst 60 metra spretturinn sem einn af leikmönnunum í bandaríska fótboltanum tók međ boltann aldeilis magnađ sjónarspil ţví honum tókst honum á undraverđan og snilldarlegan hátt ađ standa af sér áhlaup fjölda mótherja, sem allir reyndu ađ fella hann, en án árangurs.

Ţegar svona gerist og er atvik eru ţar auki útskýrđ eins og ţegar boltanum var síđan spyrnt af 50 metra fćri í gegnum endamarkiđ finnst mér bara allt í lagi ađ gera undantekningar frá reglunni. 

Ómar Ragnarsson, 12.1.2011 kl. 21:39

2 identicon

   Góđi vin, Ómar. Ţakka ţér orđin. Ţú hefur nú meiri áhuga á íţróttum en  gengur og gerist. Ţađ getur vel  veriđ ađ ţessi atburđur hafi  veriđ svo sérstakur ađ rétt vćri ađ sýna hann hér  ţar sem  ţessi íţrótt er ekki iđkuđ. En líklega  gerist svona ekki oft á ári.  Ég man  enn tröllin í fórboltaliđi skólans  ţar sem  ég stundađi nám í Bandaríkjunum, - kannski einkum vegna ţess ađ sumir skólabrćđur  höfđu  aukatekjur af ţví ađ kenna ţeim í einkatímum. Ţeir  höfđu nefnilega ekki  komist inn í  skólann vegna námshćfileika !  En ég  ţykist skynja ađ   íţróttaađallinn í Efstaleiti sé ađ markađssetja  amerískan fótbolta á Íslandi.

Eiđur (IP-tala skráđ) 13.1.2011 kl. 08:44

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband