10.1.2011 | 09:17
Molar um málfar og miđla 497
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, er stórkostleg söngkona, - og manneskja. Ţáttur Jónasar Sen um hana í Ríkissjónvarpinu var prýđilegur og lofar góđu um ţá sjö ţćtti í ţessari ţáttaröđ, Átta raddir, sem viđ eigum eftir ađ sjá og heyra. Ţađ var rétt, sem Margrét Bóasdóttir sagđi, ađ Sjónvarpiđ gerđi mikiđ fyrir sönglistina á sínum fyrstu árum. Söngur og sígild tónlist hafa veriđ hornrekur í Efstaleitinu í mörg herrans ár. Ţví ţarf ađ breyta. Vonandi er ţessi ţáttaröđ merki um ađ nú örli á breyttri hugsun ţar efra.
Sjómenn voru í engu hátíđarskapi, sagđi fréttamađur Stöđvar tvö (09.01.2011) og í ţróttafréttamađur Ríkissjónvarpsins réri á sömu miđ og sagđi: Honum urđu á engin mistök. Betra hefđi veriđ: Sjómenn voru ekki í hátíđarskapi og hann gerđi engin mistök, eđa honum urđu ekki á nein mistök.
Skrítiđ ađ fréttamenn ( Stöđ tvö 09.01.2011) skuli kalla ţingmanninn Lilju Mósesdóttur , Lilju Móses. Eiginlega ekki bara skrítiđ, heldur asnalegt.
Viđskiptavinir Ríkissjónvarpsins eru ýmsu vanir, ţegar kemur ađ röđun efnis í dagskrár. Öll ţjóđin horfir á Áramótaskaupiđ. Ţađ er sá ţáttur í Ríkissjónvarpi,sem allra mest er horft á. Svo er Skaupiđ endursýnt, sem er sjálfsagt mál. En ţađ átti ekki ađ gerast á besta tíma á laugardagskvöldi. Ţađ er ekki tíminn fyrir endursýnt efni. Ekki einu sinni Áramótaskaup.
Ţeir sem kaupa erlent efni til sýningar í Ríkissjónvarpinu leggja sig í framkróka um ađ finna rusl og dellumyndir til ađ sýna á besta tíma kvölds á föstudögum og laugardögum. Ţví hefur veriđ haldiđ fram viđ Molaskrifara ađ ţetta efni sé keypt eftir vigt á útsölum vestanhafs. Ţađ er nú varla satt. En ţađ er međ ólíkindum hvađ innkaupastjórar eru naskir á ađ finna lélegar amerískar bíómyndir til sýna okkur um helgar.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.