Molar um málfar og miđla 463

  Fréttamenn ţurfa ađ gćta sín sérstaklega, ţegar ţeir nota forsetningar  međ stađanöfnum. Ţćr lúta ekki  reglum eđa rökum, heldur málvenju. Stundum eru fleiri kostir en einn í stöđunni. Listinn sem   málfarsráđunautur (líklega sómamađurinn Árni Böđvarsson) eitt sinn gerđi, er greinilega ekki lengur í notkun á fréttastofunni. Kannski er hann týndur  og tröllum  gefinn. Vel má  vera, ađ menn hafi taliđ sig kunna svo mikiđ, ađ listans vćri ekki lengur ţörf.

  Í   morgunútvarpi  Rásar  eitt (17.11.2010) var sagt í Hólmavík. Molaskrifari  hefur aldrei  heyrt   ađra  forsetningu notađa  en á  međ   stađarheitinu Hólmavík.  Nú  má  vera ađ  honum skjátlist um ţetta.  Fróđlegt vćri ađ heyra hvađ lesendur segja.

Hvađ skyldi vera langt síđan Ríkissjónvarpiđ bauđ okkur upp á  óperu í dagskránni ?  Ţađ er  líklega svo langt  síđan, ađ  ekki einu sinni elstu menn muna  svo langt  aftur.

 Um áramót ćtti  Ríkissjónvarpiđ ađ gera bragarbót og leyfa okkur  ađ   horfa og  hlýđa á  nýárstónleikana frá  Vínarborg í beinni  útsendingu eins og  tugir milljóna í Evrópu eiga kost á. Hér  eru  Vínartónleikarnir í beinni  útsendingu látnir  víkja  fyrir Ólafi Ragnari sem  flytur   ávarp,sem tekiđ var upp milli hátíđanna.

 Norrćnir  ţjóđhöfđingjar, til dćmis Margrét Danadrottning og Ólafur Noregskonungur ávarpa  ţjóđir sínar  síđdegis á gamlársdag. Hversvegna  getur Ólafur  Ragnar ekki gert ţađ líka? Ávarp hans  á ekki ađ ţurfa ađ spilla ţví ađ ţjóđin sjái frábćra  tónleika  frá  höfuđborg tónlistarinnar í Evrópu í beinni útsendingu. Ţannig fengi líka úrvalsefni forgang í dagskránni.  

 Ritstjóri   sjónvarpsţáttarins Landans ,sem oft er prýđilegur, er  Gísli Einarsson,fréttamađur og frćgur veislustjóri. Í nafnalista  í lokin kemur fram, ađ   framleiđslustjóri ţáttarins sé Óđinn Jónsson . Gaman  vćri ađ vita hvađa  hlutverki  framleiđslustjóri gegnir  í ţessari ţáttagerđ. Ţađ liggur ekki alveg í augum uppi. Nema  búiđ sé ađ breyta  starfsheiti  fréttastjórans og  hann heiti nú framleiđslustjóri  fréttastofu Ríkisútvarpsins.

   Kastljós  Ríkissjónvarpsins hjakkar  í sama farinu (17.11.2010) og hefur breyst  í langan auglýsingaţátt. Bćkur ,sem  ekki ná inn í Kiljuna, geisladiskar og fiđluverkstćđi. Ţađ er miđur.

Morgunblađiđ  fer (17.11.2010) nýjar leiđir í pólitískri blađamennsku. Í nafnlausum Staksteinum er Ţorsteinn Pálsson fyrrverandi formađur Sjálfstćđisflokksins og forsćtisráđherra hćddur sem mest má  verđa. Skođanir  hans á Evrópumálum eru Morgunblađinu ekki ţóknanlegar. Ţorsteinn  er aldrei nafngreindur en hinsvegar er  birt mynd af honum í Staksteinum. Molaskrifari  telur   ţessa  nýjung  Morgunblađsins    ekki vera  til bóta, -  nema síđur sé.

    Nokkrir ţingmenn  Framsóknarflokksins eru  mjög  áberandi í dagskrá Útvarps  Sögu.  Ţađ má svo sem segja ađ ţađ fari ekki illa á ţví.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Ritstjóra Morgunblađsins hefur held ég aldrei líkađ gjörđir Ţorsteins Pálssonar. Ég held ađ fólk búi Á Hólmavík samt ekki vissi frekar en ţú.

Sverrir Einarsson, 18.11.2010 kl. 09:40

2 identicon

Ef dregin er lína frá Hólmavík til Víkur í Mýrdal, ţá er málvenjan ađ nota forsetninguna á međ víkurnöfnum fyrir NA ţessa línu: á Hólmavík, á Dalvík o.s.frv. En SV ţessarar línu er málvenja ađ nota forsetninguna í međ víkurnöfnum: í Grindavík, í Reykjavík, í Helguvík o.s.frv. ţ Hef minnst á ţetta áđur í ţessum pistlum.

Sigurđur Oddgeirsson (IP-tala skráđ) 18.11.2010 kl. 13:15

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband