Molar um málfar og miđla 461

   Fćđingardagur Jónasar Hallgrímssonar , 16. nóvember , hefur veriđ valinn   Dagur íslenskrar tungu. Fer  vel á ţví. Vitnađ er til orđa Helga Hálfdanarsonar í tilefni dagsins:

 „Í vitund Íslendinga er nafniđ Jónas Hallgrímsson samgróiđ öllu sem íslenzkt er, landinu, sögunni, tungunni, eđli og einkennum íslenzkrar náttúru, heitum grasa og dýra. Hraundrangi, Hekla,Kolbeinsey, Réttarvatn, jökull, berjalaut, brekkusóley, ţröstur; nafniđ Jónas Hallgrímsson er samnefnari ţessa alls. Og nafn Jónasar bergmálar í örnefninu Gunnarshólmi rödd ţeirrar ćttjarđarástar,sem međ alúđ og stađfestu verndar íslenskt ţjóđlíf, íslenzka  tungu og menningu, ţótt öfl eyđingar fari hamförum.

  Slíkum Íslendingi sem Jónasi Hallgrímssyni var óhćtt ađ ganga á vit erlendrar menningar í ţví skyni ađ tileinka sér ţađ bezta og nytsamasta sem hún hafđi ađ veita. Lítil hćtta var á ađ hann yrđi ţar sjálfur bergnuminn."

   Tilvitnunin er úr bók Helga , Molduxi, Rabb um  skáldskap og fleira, Mál og menning 1998. Greinin ber heitiđ Heilsađi hún mér drottningin ( Á fundi međ nokkrum stúdentum). Hún birtist í tímariti Máls og menningar 1978:1 Hún  er ađ meginefni um ţýđingar Jónasar á ljóđum Heines.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband