Molar um málfar og miðla 452

 Oft eru hæpnar fullyrðingar í auglýsingum. Í  auglýsingu í Útvarpi Sögu segir, að  niðursoðin þorsklifur lækki  blóðsykur. Hvað segir  landlæknir? Er þetta rétt? Eða  er verið að blekkja fólk ?  Í  þessari útvarpsstöð úir og grúir af hæpnum fullyrðingum um svokölluð  fæðubótarefni, sem stundum reynast mesta ólyfjan.  Í sama  miðli  er talað um hátíðarmat í auglýsingu. Málvenja er að tala um hátíðamat.

 Rýnt í stjórnarskránna, var letrað á skjáinn í fréttatíma Ríkissjónvarpsins (06.11.2010). Átti að vera  stjórnarskrána. Líklega er þetta eðlilegt framhald af því að fréttamenn tala  stundum um ánna, ekki ána, brúnna ekki  brúna.  

  Úr mbl.is (06.11.2010):... upplýsingafulltrú Þjóðfundar, segir gaman að sjá hversu tímanlegt fólk sé. Þetta orðalag er nýtt fyrir Molaskrifara. Gott er að koma  tímanlega,  vera  stundvís, en að  vera  tímanlegur hefur hann ekki heyrt áður. Auðvitað er ekki þar með sagt að þetta sé  rangt, en virðist ekki í samræmi við málvenju.

Molavin í austri er iðinn við að  senda okkur  athyglisverðar ábendingar.  Hann sendi þetta: 

„Morgunblaðið (mbl.is) segir í frétt í gær, föstudag, sem hefur enn ekki verið leiðrétt, að Keith Olbermann, hinn kunni, pólitíski þáttastjórnandi á bandarísku sjónvarpsstöðinni MSNBC hafi verið rekinn. Orðrétt segir í fréttum bandarískra stöðva að hann hafi verið "suspended indefinetely without pay". Það þýðir að honum hafi verið vikið frá tímabundið. Settur í launalaust leyfi. Jafnramt segir New York Times: "On Friday evening, no one at NBC suggested that Mr. Olbermann would be fired."


Trúverðugleiki fjölmiðla er í húfi þegar óvandvirkni er liðin. Fréttaleit án undirbúnings er sömuleiðis hvimleið og skaðar viðkomandi fjölmiðil. Bókmenntaverðlaunahafi Norðurlandaráðs skensaði réttilega þáttargerðarmanneskju Rásar-2 fyrir það að vita ekki um hvað hún væri að spyrja. Útvarpskonan reiddist í viðtalinu og spurði hvort hún þyrfti háskólamenntun í bókmenntum til að geta spurt hana spurninga. Það var dónaskapur og lítilsvirðing við RÚV hlustendur. Ljóst var að útvarpsmanneskjan hafði ekki búið sig undir viðtalið, vissi ekki um þjóðerni skáldsins né söguefni bókarinnar. Fór svo að rífast við viðmælanda sinn, sem benti henni á muninn á skáldskap (fiction) og skáldsögu (novel)."

 Allt er þetta rétt, Molavin. Vond vinnubrögð og hroki  fara ósjaldan saman.

dv.is  segir  líka frá  bandaríska sjónvarpsmanninum (06.11.2010): Keith Olbermann sjónvarpsmaður á MSNBC í Bandaríkjunum hefur verið vikið úr starfi tímabundið...  Hér ætti auðvitað að standa: Keith Olbermann sjónvarpsmanni á ....  hefur verið vikið úr starfi tímabundið. 

  Molalesandi sendi  eftirfarandi um þennan sama sjónvarpsmann: „ Þetta má lesa á ruv.is um bandarískan þáttastjórnanda í sjónvarpi, sem var látinn hætta störfum vegna pólitískra afskipta:

„Nú hefur komið á daginn að hann studdi þrjá frambjóðendur demókrata með háum fjárframlögum í aðdraganda kosninganna og mun það hafa verið kornið sem fyllti mælinn.“Þau orð sem ég feitletra voru ekki í fréttinni þegar hún var flutt í fréttum RÚV klukkan 08.00 að morgni 6. nóvember. Þá var sagt: „ og mun það hafa verið síðasta hálmstráið“ í stað þess sem ég feitletra."

Molaskrifari þakkar sendinguna.  Ríkisútvarpið okkar allra stendur sig illa í þessum efnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér varðandi hæpnar fullyrðingar bæði í auglýsingum og svo fréttum,samanber sjónvarpsfréttum í vikunni þar sem gefið var í skyn að bjórtegund ein,örvaði blóðflæði og magnaði kyngetu karlmanna,hvers vegna er þetta látið óátalið,bæði þessi fréttamennska og svo það,að koma með svona óstaðfestar upplýsingar í fjölmiðla.

Kristján Jón Blöndal (IP-tala skráð) 7.11.2010 kl. 13:19

2 Smámynd: Sigurður Antonsson

Á öld rannsókna á sviði efnafræði þyrfti að ræða betur fæðubótarefni og allskyns íblöndunarefni í drykki og mat. Skil ekki alveg orðið né botna í þeirri fæðubótartrú sem hefur gengið undir merkjum heilsu. Michael Pollan, bandarískur blaðamaður kom inn á þessi mál nýlega í þættinum Silfur Egils og auk þess kom út bókarkilja hans Mataræði. Hann talar um hátíðamat sem það besta sem lífið hefur upp á að bjóða ef menn láta ekki allt eftir sér þess á milli.

Sigurður Antonsson, 7.11.2010 kl. 14:56

3 identicon

  Góður læknir sagði einu sinni við mig. Það er ekki  hvað þú lætur eftir þér einu sinni í mánuði, sem skiptir öllu máli,  heldur  það sem þú lætur ofan í þig á hverjum degi.  Mikið rétt.

Eiður (IP-tala skráð) 7.11.2010 kl. 16:30

4 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Mikið rétt, Eiður Svanberg ! Mér hefur oft blöskrað það auglýsingaskrum, sem berst frá Útvarpi Sögu dag eftir dag, og þetta er látið óátalið af heilbrigðisyfirvöldum ? Eru læknar og lyfjafræðingar, sem vinna í hópum hjá hinu opinbera (t.d. LYFJASTOFNUN og Landlæknisembættið), hræddir við stjórnendur Útvarps Sögu ?

Með góðri kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 10.11.2010 kl. 08:27

5 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Vá góður pistill. Ekki oft sem maður sér svona hárbeitta og réttláta gagnrýni á þjóðfélagið.

Jón Gunnar Bjarkan, 20.11.2010 kl. 02:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband