20.9.2010 | 09:09
Molar um málfar og miđla 408
Fyrir stundu lyftu knattspyrnukonur Vals 100. titli félagsins. Svona tekur rithöfundur til orđa á bloggsíđu sinni. Molaskrifari hefur aldrei heyrt ţetta orđalag, en giskar á ađ rithöfundurinn eigi viđ ađ knattspyrnukonurnar hafi fćrt félagi sínu hundrađasta titilinn.
Ţess ber ađ geta sem vel er gert. Heimildamyndin um Sesselju Sigmundsdóttur á Síóheimum ,sem Ríkissjónvarpiđ sýndi 19.09.2010 var vönduđ og vel gerđ. Merk kona , merkur stađur, Sólheimasamfélagiđ er einstakt og hefur stađiđ af sér allar árásir misviturra stjórnmálamanna.
Ađ sögn Fréttablađsins (20.09.2010)er útvarpsstjóri Útvarps Sögu búinn ađ reka Sigurđ G. Tómasson. Og gerđi ţađ međ ţví ađ senda honum smáskilabođ í farsíma! Einkar smekklegt. Molaskrifari er ekki alltaf sammála Sigurđi ,en hann er fyrsta flokks útvarpsmađur,sem afgreiđir ţá sem í beinni útsendingu eru međ dónaskap međ festu og fullri kurteisi. Vonandi verđur einhver önnur stöđ til ţess ađ tryggja sér starfskrafta Sigurđar .G og ná til sín ţeim stóra hópi hlustenda,sem kann ađ meta hann.
Molavin, sendi Molum eftirfarandi: "reynslan af samstarfi viđ ríkisstjórnina sé slíkt..." sagđi fréttamanneskja Stöđvar 2 í kvöld. Reynslan sé slík. Frumlag - umsögn - andlag.
Ţađ líđur ekki sá fréttatími ađ mistökum af ţessu tagi sé ekki útvarpađ. Ég leyfi mér ađ ganga út frá ţví ađ ekki sé ráđiđ fólk til starfa nema ţađ kunni undirstöđu málfrćđinnar, svo ţetta hlýtur ađ mega rekja til almennar óvandvirkni; ţegar fréttafólk skrifar fréttir međ hrađi og les ekki texta sinn yfir áđur en hann er sendur áfram. í öllu daglegu hjali um ráđherraábyrgđ vćri kannski ekki úr vegi ađ fara ađ rćđa ritstjóraábyrgđ á fjölmiđlum.
Íslensk orđabók á ađ vera til á vinnuborđi hvers fréttamanns og gott safn uppsláttarrita um málnotkun á hverri ritstjórn. Ţađ vćri líka brýnt ađ kenna notkun viđtengingarháttar. Hann virđist horfinn úr fréttamáli. "
Nýlega sýndu margar sjónvarpsstöđvar óperuna Rígólettó í beinni útsendingu frá Mantova á Ítalíu. Ţetta var eiginlega ekki venjuleg óperuuppfćrsla heldur kvikmynd í beinni útsendingu ţar sem notađar voru 35 myndavélar. Sagt var ađ 148 lönd ćttu ađild ađ útsendingunni. Ekki bólar á ţessu meistaraverki í Ríkissjónvarpinu en ţar fóru ţau Placido Domingo og Julia Novikova á kostum undir stjórn Zubin Mehta. Í kvöld (19.09.2010) er fyrsta sinfónía Mahlers á dagskrá NRK2. Hversvegna sinnir Ríkissjónvarpiđ okkar ekki sígildri tónlist? Rígólettó verđur hinsvegar frumsýnd í Íslensku óperunni í nćsta mánuđi. Ţađ er tilhlökkunarefni.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.