10.9.2010 | 08:13
Molar um málfar og miđla 401
Bankar eru ekki til sölu. Ţeir eru í söluferli, eins og sagt var í sexfréttum Ríkisútvarpsins (08.09.2010). Fréttamenn skrifa stundum kansellístíl. Kannski óviljandi. Í sama fréttatíma var sagt: ... og er taliđ ađ sem svarar 4.9 milljónum tunna hafi lekiđ í sjóinn. Ekki er Molaskrifari sáttur viđ ţetta orđalag. Hefđi taliđ betra ađ segja: ... og er taliđ ađ um 4.9 milljónir tunna hafi lekiđ í sjóinn. Kannski sérviska.
Ríkissjónvarpiđ gengur of langt (08.09.2010) í viđtölum viđ fjölmiđlafíkna lögmenn í málum (oft viđkvćmum), sem eru hjá dómstólum. Ţegar Molaskrifari byrjađi ađ skrifa fréttir fyrir býsna löngu vöruđu eldri og reyndari menn hann viđ lögmönnum,sem sífellt hringdu til ađ útmála sigra sína fyrir dómstólunum. Víđ kölluđum ţá fjölmiđlalögfrćđinga og ţeir voru ekki margir á sjöunda áratug síđustu aldar. Allir vissu hverjir ţeir voru og höfđu varann á ţegar ţeir hringdu til ađ segja frá stórfréttum" varđandi ţá sjálfa.
Hafnsögubát tók niđri, las fréttaţulur Stöđvar tvö (08.09.2010). Rétt hefđi veriđ: Hafnsögubátur tók niđri. Báturinn tók niđri. Bátinn rak upp í fjöru. Önnur beygingarvilla var í fréttum Ríkissjónvarps sama kvöld. Ţá var sagt: Óljóst er hve mikiđ ţađ skilar. Rétta hefđi veriđ ađ segja: Óljóst er hve miklu ţađ skilar.
Fyrirsćta sem hefur veriđ einkar lagin ađ koma sér á framfćri í íslenskum fjölmiđlum veitir lesendum Pressunnar hollráđ (08.09.2010). Ţar er eftirfarandi gullkorn ađ finna: Nokkur auđveld tips, 2 msk eplavinegar og room temperture" og er ţá fátt eitt taliđ. Tips er enska , ábendingar, vinegar er líka enska, edik á íslensku. Í stađ ţess ađ tala um room temperture" á ensku hefđi mátt tala um stofuhita og enska orđiđ yfir hitastig er temperature.
Kristján Már Unnarsson á Stöđ tvö er afbragđs fréttarmađur. Hann er öllum öđrum naskari ađ finna bitastćđar landsbyggđarfréttir. Vonandi hverfur hann ekki af skjánum, ţótt hann gerist fréttastjóri Stöđvar tvö. Honum fylgja heillaóskir til nýrra starfa.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.