7.7.2010 | 22:32
Skýlaust lögbrot Ríkisútvarpsins
Sá sem ţetta skrifar hefur oft gert athugasemdir viđ ţađ hvernig Ríkissjónvarpiđ hvetur til bjórdrykkju, - auglýsir ölţamb ţrátt fyrir ađ gildandi landslög banni áfengisauglýsingar. Ríkisútvarpiđ hefur skýlt sér á bak viđ ţađ ađ birta orđiđ léttöl örsmáu letri neđst í hćgra skjáhorni í svo sem eina sekúndu í lok bjórauglýsinga. Allir vita ađ ekki er veriđ ađ auglýsa léttöl heldur áfengan bjór. Í kvöld (07.07.2010) brá Ríkisútvarpiđ hinsvegar út af ţessari venju sinni og og auglýst Egils Gull purkunarlaust án ţess ađ sýna orđiđ léttöl í sekúndu eins og gert hefur veriđ til ţessa, ţegar ţessi ríkisstofnun hefur veriđ ađ smeygja sér framhjá lagabókstafnum.
Ţessi ómengađa og ódulbúna áfengisauglýsing var sýnd í lok auglýsingatíma í leikhléi leiks Spánverja og Ţjóđverja um klukkan 1930. Ţá ná bjórauglýsingar líklega best til unga fólksins. Auglýsingin án orđsins léttöl var svo endursýnd í seinkađri dagskrá klukkustund síđar.
Seinna um kvöldiđ birti Ríkissjónvarpiđ svo auglýsingu frá nýjum veitingastađ, - um tvo fyrir einn á léttvíni og bjór. Sem ţýđir líklega ađ sá sem kaupir einn bjór fćr tvo fyrir verđ eins. Önnur bein áfengisauglýsing.
Ţađ er ótćkt ađ ţessi stofnun í ţjóđareigu skuli lkomast upp međ linnulaus lögbrot. Ríkisútvarpinu er skipuđ stjórn sem vafalaust ţiggur laun fyrir störf sín, en stofnunin er greinilega stjórnlaus. Nú er lýst eftir góđum lögmanni til ađ fylgja ţessu máli eftir međ formlegri kćru á hendur Ríkisútvarpinu ohf fyrir lögbrot.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.