4.9.2015 | 09:28
Molar um málfar og miðla 1787
ÍSLANDSVINIR
Molavin skrifaði (03.09.2015): "Íslandsvinkonan Kelis á von á barni." Þessa stórfrétt má lesa á mbl.is (3.9.15). Ekki hafði Molavin haft spurnir af þessari söngkonu fyrr, en samkvæmt mynd sem fylgir, hefur hún komið til Íslands. Það er búið að verðfella rækilega hugtakið "Íslandsvinur" sem gjarnan var notað um erlenda borgara, sem börðust fyrir málstað Íslands heima fyrir, stundum í óþökk landa sinna, eins og ýmsir danskir vinir okkar í handritamálinu. Íslandsvinur var heiðursnafnbót. Nú virðist það gilda um alla, sem til landsins koma. Milljón á hverju ári.- Satt og rétt. Þakka bréfið, Molavin.
ÞJÓÐIN VEIT
Örugglega veit öll þjóðin, að samkvæmt skoðanakönnunum eru Píratar nú stærsta stjórnmálaaflið á Íslandi. Það er nefnilega búið að endurtaka þetta og tyggja í okkur í næstum hverjum einasta fréttatíma undanfarna daga. Þetta er að minnsta kosti komið inn í hausinn á þeim sem þetta skrifar.
GÓÐ BYRJUN
Kastljós Ríkissjónvarpsins fer vel af stað undir ritstjórn þeirra Þóru Arnórsdóttur og Brynju Þorgeirsdóttur. Óhugnanlegar frásagnir af ofsóknum og ofbeldi fyrrum sambýlismanna eða maka gegn konum. Meiriháttar klúður lögreglunnar við meðferð mála. Vönduð umfjöllun. Fremur var fátt um svör hjá æðstu yfirmönnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þættinum á miðvikudagskvöldið (02.09.2015). Molaskrifari játar reyndar að hann skildi ekki öll svörin til hlítar.
Áhugaverð umfjöllun um fjármál Hörpu. Mikið gert úr taprekstri. Fasteignagjöld til Reykjavíkurborgar hafa í raun orðið helmingi hærri en reiknað var með. Hátt í 400 milljónir. Reykjavíkurborg slær ekki vindhöggin í þessum efnum. Minna er talað um það, sem kom fram í máli Halldórs Guðmundssonar framkvæmdastjóra Hörpu, að samkvæmt athugun óháðs fyrirtækis hefur ráðstefnuhald í Hörpu skilað okkur fimm milljörðum í gjaldeyri. Harpan er fallegasta og merkilegasta rósin í hnappagati höfuðborgarinnar. Þessvegna eiga borgaryfirvöld að hlú að henni, ekki skattkreista hana næstum til blóðs.
EINUM OF
Samkvæmt auglýstri dagskrá Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi (03.09.2015) voru tvær og hálf klukkustund lagðar undir fótbolta. Frá klukkan tæplega hálf sjö til klukkan rúmlega níu. Hvor hálfleikur er 45 mínútur og líklega 15 mínútna hlé á milli. Svo kom Kastljós í hálftíma og síðan meiri íþróttir í annan hálftíma, tæpan þó. Þetta er ekki góð dagskrárgerð Sjálfsagt að sýna leikinn, og sigurinn vissulega gleðiefni, en fimbulfambið átti að vera á íþróttarásinni. Til þess er hún, eða hvað?
SNERT SNORTIN
Á mbl.is (0309.2015) segir: Góðvild ykkar og vilji til að hjálpa hefur snert mig djúpt, skrifar Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, á Facebook-síðu sem einmitt ber nafn hennar, - sennilega á ráðherra við að hún sé djúpt snortin, ekki snert.
AÐ LEGGJAST Í GREININGU
Stjórn spítalans ákvað að leggjast í ítarlega greiningu á aðkomu læknanna .. sagði fréttamaður Stöðvar tvö (01.09.2015). Stjórn spítalans ákvað að láta fram ítarlega rannsókn á aðkomu læknanna ... hlut læknanna ... Stjórnin lagðist ekki í greiningu. Það orðalag er út í hött. Sami fréttamaður sagði í sömu frétt:... áttu milligöngu um ... Hefði átti að vera: .. höfðu milligöngu um ...
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)