Molar um málfar og miðla 1806

VERÐA AÐ KRÖFUM

Af mbl.is (28.09.20159: ,,Verði ríkið að launakröf­um lög­reglu­manna fá þeir tölu­vert meiri hækk­un en samn­inga­nefnd rík­is­ins hef­ur boðið hingað til í kjara­deil­unni, eða ell­efu pró­sent­um meira.” Þarna ætti að standa, - til dæmis - Gangi ríkið að launakröfum lögreglumanna, samþykki ríkið launakröfur lögreglumanna, verði ríkið við launakröfum lögreglumanna.

 

ÞRÁTT FYRIR ?

Úr frétt á mbl.is (29.09.2015): ,,Rún­ar Friðgeirs­son var um borð í vél­inni en lend­ing­in gekk að ósk­um”. Var það þrátt fyrir eða vegna veru Rúnars um borð?

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/09/29/naudlenti_a_gardermoen/

 

SLEGIN ELDINGU!

Fréttaflutningur dv.is  er stundum einkennilegur. Í fyrirsögnum á forsíðu á netinu er oft illmögulegt að greina milli þess sem er innlent og þess sem er erlent. Þessi fyrirsögn var á vef dv.is (29.01.2015): ,, Við erum öll sem slegin eldingu”, segir Jim Carrey um dauða fyrrverandi unnustu.

Sá sem skrifaði þetta hefur sennileg aldrei heyrt orðtakið að vera þrumu lostinn, vera mjög undrandi , höggdofa. http://www.dv.is/frettir/2015/9/29/vid-erum-oll-sem-slegin-eldingu-segir-jim-carrey-um-dauda-fyrrverandi-unnustu/

 

AÐ ÁVARPA VIÐBURÐ

Af mbl.is (29.09.2015): ,,Gunn­ar Bragi Sveins­son ávarpaði í morg­un viðburð í höfuðstöðvum SÞ, um jafn­ari framtíð fyr­ir alla og bar­átt­una gegn ójafn­rétti og mis­mun­un.”

Hvernig ávarpa menn viðburð? Seint verður sagt að þetta orðalag sé til fyrirmyndar. Flutti ráðherrann ekki ræðu á fundi eða málþingi, ráðstefnu?

 

 

 

 

 

HLAUPIÐ NÁI BYGGÐ!

Undarleg fyrirsögn á vef Ríkisútvarpsins: Hlaupið nái byggð á fimmtudagskvöld. Eins og verið sé að hvetja hlaupið! Er ekki líka dálítið undarlegt að tala um að hlaupið ,,komi til byggða”? Hvað segir málfarsráðunautur?
http://www.ruv.is/frett/hlaupid-nai-byggd-a-fimmtudagskvold

 

SELJA OG VERSLA

Seljandi snjallsíma, sem þetta er haft eftir á mbl.is (29.09.2015)  gerir ekki greinarmun á sögnunum að kaupa og að versla. Þetta er því miður of algengt að heyra: „Við versl­um bara af síma­fyr­ir­tækj­un­um þegar þetta er komið til lands­ins en þangað til meg­um við sprella svona án þess að ein­hver sé að skipta sér af því.“ Við kaupum bara af símafyrirtækjum, hefði hann betur sagt.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/09/29/seldu_15_sima_a_190_thusund_kronur/

 

TIL LESENDA

Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.

 

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 

 

 


Bloggfærslur 1. október 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband