8.9.2014 | 09:57
Molar um málfar og miðla 1563
Í kynningu á dagskrá Ríkissjónvarpsins í Morgunblaðinu (05.09.2014) segir um breska vísindamenn sem unnu að því að þróa ratsjá í seinni heimsstyrjöld: , Í stærstu leynd vinna þeir að nýrri uppfinningu... Betra orðalag hefði verið: ,, Með mikilli leynd vinna þeir ... Að líkindum er þetta orðalag beint frá sjónvarpinu komið.
Molaskrifari horfir ekki mikið á matreiðsluþætti. En þáttaröð Gísla Arnar Garðarssonar um Nautnir norðursins sem hófst í Ríkissjónvarpinu á fimmtudag (04.09.2014) lofar sannarlega góðu. Góð hugmynd og vel útfærð í fyrsta þættinum. Vonandi verða hinir þættirnir ekki síðri.
Stundum hafa undarlegar myndbirtingar verið nefndar hér í Molum. Á mbl.is (05.09.2014) er sagt frá smábarni sem féll út um glugga á fimmtu hæð húss í Valby utan við Kaupmannahöfn. Með fréttinni er birt mynd úr Nýhöfninni, sem kemur málinu ekkert við. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/09/05/otrulega_heppinn_drengur/
NN sendi Molum eftirfarandi (05.09.2014): ,,Sæll Eiður,
Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson var einn okkar allra besti dægurlagasöngvari. Hann lést langt fyrir aldur fram, eins og flestir vita, en greinilega ekki allir. Þess vegna er ekki hægt að halda upp á sjötugsafmæli söngvarans, eins og auglýst var á RUV. Hér er um að ræða tónleika í tilefni sjötíu ára "fæðingarafmælis" Vilhjálms. Þetta orð virðist vera að gleymast. Þessu er æ oftar ruglað saman!
Tengill á frétt: - http://www.ruv.is/frett/faedingarafmaeli-hannesar-hafstein
------------------------------------
Vefur RÚV: http://www.ruv.is - Sapurinn: www.ruv.is/sarpurinn
Molaskrifari þakkar bréfið. Þetta er réttmæt athugasemd.
Úr frétt á mbl.is (05.09.2014): ,, Morðmálið vakti mikla athygli en talið er að nítján ungar konur og stúlkur hið minnsta hafi verið nauðgað og myrtar í hryllingshúsinu. Hér hefur fréttaskrifari ekki vandað sig. Hann hefði átt að skrifa, til dæmis: ,, Morðmálið vakti mikla athygli en talið er að nítján ungum konum og stúlkum, hið fæsta, hafi verið nauðgað og þær myrtar í hryllingshúsinu.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)