Molar um málfar og miðla 1389

 Mikill fjöldi pappírs , sagði Jóhann Hlíðar Harðarson í kvöldfréttum Ríkissjónvarps (15.01.2014): ,, Það gefur því auga leið að mikill fjöldi pappírs fer til spillis í þessu ferli.” Mikið magn pappírs, hefði hann fremur átt að segja. http://www.ruv.is/frett/pappirssoun-i-haestaretti Til hvers starfar málfarsráðunautur við Ríkisútvarpið?

 

Er ekki hægt að takmarka endalaust og innihaldslaust fjas um handbolta við íþróttarás Ríkissjónvarpsins. Hvers eiga allir þeir að gjalda sem engan áhuga hafa á þessu rausi sjálfskipaðra sérfræðinga?

 

Það er lofsvert þegar í veðurfréttum Ríkissjónvarps er sagt frá veðri og hitafari í fjarlægum heimshlutum - Ástralíu á miðvikudagskvöldið (15.01.2014), en enn er spurt: Hversvegna er ekki hægt að birta borgaheiti þaðan sem hitatölur eru sýndar eins og gert er í veðurfréttum Stöðvar tvö?

 

Magnús skrifaði (15.01.2014): ,,Mbl.is og dv.is bjuggu til sögnina að hópnauðga í dag: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/01/15/danskri_konu_hopnaudgad/
Ég sendi þeim mbl.is eftirfarandi athugasemd en það hafði engin áhrif:
"Sögnin að hópnauðga er ekki til, ekki frekar en að hóphlaupa, að hópavinna, að hópsyngja eða að hópkaupa. Ef ég fæ hóp af fólki í heimsókn er ég þá hópheimsóttur?". Molaskrifari þakkar Magnúsi sendinguna og réttmæta athugasemd.

 

 

Haukur Örvar Weihe skrifaði (16.01.2014): ,,Sæll Eiður og þakka þér fyrir pistlana þína.

Í mörg ár hefur heyrst auglýsing frá Lyfjum og heilsu á Bylgjunni.
Þar er lesið upp: ,,Vöknum með Lyf og heilsu á morgnana”, í stað þess að segja vöknum með Lyfjum og heilsu.....

Ég hafði samband við starfsmann á Bylgjunni sem hafði með auglýsingalestur að gera og sagði hann að það hljómaði svo asnalega að segja ,,vöknum með Lyfjum og heilsu" . Molaskrifari þakkar Hauki bréfið.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 

 


Bloggfærslur 17. janúar 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband