11.2.2011 | 11:03
Molar um málfar og miđla 528
Margir fréttaskrifarar eiga í erfiđleikum međ áhrifssagnir. Ţetta dćmi er af pressan.is (10.002.2011) Krabbameinssamtök í Danmörku vilja útrýma međ öllu reykingar á vinnustöđum, ... Samtökin vilja útrýma reykingum, ekki reykingar eins og pressupenninn skrifar.
Villandi myndskreyting var í upphafi frétta Stöđvar tvö (09.02.2011), ţegar birt var mynd af ţotum Icelandair í Keflavík međ frétt um dóm fyrir kynferđislega áreitni, sem kom Icelandair ekkert viđ.
Aldrei er Molaskrifari sáttur viđ orđalag eins og notađ var í fréttum Stöđvar tvö (09.02.2011)... eigi ásakanir viđ engin rök ađ styđjast. betra vćri: Ásakanir eigi ekki viđ rök ađ styđjast.
Enn er vitnađ í fréttir Stöđvar tvö ţetta sama kvöld: Hver hefđi trúađ ţví ađ Elvis yrđi endurfćddur í Hafnarfirđi ? Yrđi endurfćddur ! Endurfćddist.
Allir möguleikar um ađ hćtta sorpbrennslu verđi skođađir, sagđi í fyrirsögn á fréttavef Vísis (09.02.2011). Hér hefđi veriđ betra ađ segja: Allir möguleikar á, eđa allir möguleikar til ... ekki möguleikar um.
Úr mbl.is (09.02.2011) : Ferskar kjötvörur hafa fengiđ tilkynningu frá Sláturhúsi KVH á Hvammstanga um innköllun á nautgripum vegna hugsanlegrar díoxínmengunar í kjöti af ţeim. Ekki verđur sagt, ađ mjög skýr hugsun sé ađ baki ţessum skrifum. Nema auđvitađ ađ nautgripirnir séu seldir á fćti.
Myndatexti á mbl.is (089.02.2011) Taka ţarf stefnuljós ţegar ekiđ er út úr hringtorgi. Taka stefnuljós? Málvenja er tala um ađ gefa stefnuljós. Hér hefđi líka mátt segja: Nota á stefnuljós ţegar ekiđ er út úr hringtorgi.
Höfum ţađ gaman saman , segir í auglýsingu frá Ríkisútvarpinu. Hvađ segir málfarsráđunautur um svona orđalag ? Have fun together , er sagt á ensku.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)