14.1.2011 | 11:25
Molar um málfar og miđla 501
Ţeir eru engir aukvisar okkar menn í Landhelgisgćslunni. Ţađ sást vel, ţegar gćsluţyrla sótti sjómann um borđ í erlent flutningaskip hálfs annars tíma flug undan Reykjanesi í vondu veđri og stórsjó. Frábćrar myndir í fréttum Ríkissjónvarpsins (13,01.2011) Ţađ er okkur til háborinnar skammar, ađ Landhelgisgćslan skuli ekki geta veriđ međ nćgan ţyrlukost til björgunarstarfa vegna niđurskurđar. Ţađ mćtti alveg hugsa sér ađ skerđa framlög til stjórnmálaflokka svo bćta mćtti einni ţyrlu á vaktina. Ţađ gćti bjargađ mannslífum. Ţađ fara engin mannslíf forgörđum ţótt klipiđ sé ađeins af flokkunum.
Hallgrímur Indriđason fćr hrós fyrir ađ segja í tvöfréttum Ríkisútvarpsins (12.01.2011), ađ fundur hafi veriđ haldinn í Stjórnarráđshúsinu. Of margir fréttamenn segja fundi haldna í stjórnarráđinu, ţegar átt er viđ Stjórnarráđshúsiđ viđ Lćkjartorg. Stjórnarráđiđ er samheiti yfir öll ráđuneytin. Kristján Sigurjónsson leiđrétti rangan texta í fréttalestri klukkan sjö Í Ríkisútvarpinu. (13.01.2011). Hann fćr líka hrós fyrir ţađ. Hann var greinilega bćđi ađ hugsa og hlusta međan hann las. Fínt.
Nćturútvarp Rásar eitt er nú á nýjum brautum. Ţar var áđur útvarpađ sígildri tónlist án kynninga frá miđnćtti til klukkan 06 40 ađ morgni. Fyrst var tónlistin kynnt. Svo var ţví hćtt í sparnađarskyni, ađ sagt var. Líklega ţurfti íţróttadeildin meiri peninga. Ţetta hefur oft veriđ gagnrýnt í Molum, enda algjört virđingarleysi viđ höfunda, flytjendur og hlustendur ađ flytja svona tónlist í síbylju.Eins og ađ selja landakort án örnefna. Nú er breyting orđin á. Endurflutt er menningarefni af ýmsu tagi frá deginum áđur. Ţađ er mjög til bóta. Margt af ţessu efni er prýđilegt og ţolir endurflutning.
Tryggvi M. Ţórđarson kom ađ máli viđ Molaskrifara og sendi síđan eftirfarandi:
Lćt hér fylgja međ textann sem ég minntist á viđ ţig:
Íhugum eftirfarandi setningar og gerum okkur í hugarlund ađ kosningar séu í nánd:
Tökum ţátt og bindum enda á stjórnina
Tökum ţátt í kosningunum og bindum endi á stjórnina.
Báđar eru setningarnar réttar, en ţćr lýsa tveimur ólíkum hlutum.
Fyrri setningin ţýđir:
Tökum ţátt úr reipi/kađli og bindum stjórnina međ honum.
Sú seinni ţýđir:
Međ ţátttöku okkar í kosningunum skulum viđ skipta um stjórn." Kćrar ţakkir fyrir ţetta Tryggvi.
Eins og áđur var vikiđ ađ í Molum var ítrekađ sagt í Ríkisútvarpinu, ađ Kaupţing hefđi veriđ eigandi fćreyska bankans Eik. Ţađ var rangt. Ţetta var aldrei leiđrétt svo Molaskrifari heyrđi, en hinsvegar var ţetta tekiđ úr frétt um bankamál í Fćreyjum. Enn eitt dćmiđ um óvönduđ vinnubrögđ ríkisfréttastofunnar í Efstaleiti. Ţetta var tekiđ út úr fréttinni eftir ađ hringt hafđi veriđ til fréttastofunnar og sagt ađ Kaupţing hefđi aldrei átt Eik banka.
Leiđarar Morgunblađsins eru í vaxandi mćli árásir á nafngreinda einstaklinga (12.01.2011) sem leyfa sér ţá ósvinnu ađ hafa skođanir, sem eru Morgunblađinu ekki ţóknanlegar. Í stjórnmálaskrifum leggur Morgunblađiđ einstaklinga í einelti og gengur stundum lengra en gamli Ţjóđviljinn, málgagn kommúnista, gerđi ţegar ofsóknirnar og eineltiđ gegn Bjarna Benediktssyni og Guđmundi Í. Guđmundssyni gekk hvađ lengst. Ţetta eru sömu ađferđir og íslenskir kommúnistar lćrđu í sérstökum byltingarskólum í Sovétríkjunum eins og segir frá í gagnmerkri nýrri bók Ţórs Whiethead. Ţađ er ekki leiđum ađ líkjast hjá Mogganum.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)