Molar um málfar og miđla 408

 Fyrir stundu lyftu knattspyrnukonur Vals 100. titli félagsins. Svona tekur rithöfundur  til orđa á bloggsíđu sinni. Molaskrifari hefur  aldrei heyrt  ţetta orđalag, en giskar á ađ rithöfundurinn  eigi  viđ ađ knattspyrnukonurnar hafi fćrt  félagi sínu hundrađasta titilinn.

Ţess ber ađ geta  sem vel er gert. Heimildamyndin um Sesselju Sigmundsdóttur  á  Síóheimum ,sem Ríkissjónvarpiđ  sýndi 19.09.2010  var  vönduđ og vel gerđ. Merk kona , merkur stađur, Sólheimasamfélagiđ er einstakt og  hefur stađiđ af  sér  allar árásir misviturra stjórnmálamanna.

 Ađ sögn Fréttablađsins (20.09.2010)er útvarpsstjóri   Útvarps Sögu búinn ađ reka Sigurđ G. Tómasson. Og gerđi ţađ međ ţví ađ senda honum smáskilabođ í farsíma! Einkar smekklegt.  Molaskrifari er ekki alltaf sammála  Sigurđi ,en hann er fyrsta flokks útvarpsmađur,sem  afgreiđir ţá sem  í beinni útsendingu eru međ  dónaskap međ festu og fullri kurteisi.  Vonandi verđur  einhver önnur stöđ til ţess ađ tryggja sér   starfskrafta  Sigurđar .G og  ná til  sín ţeim stóra hópi hlustenda,sem kann ađ meta hann.

Molavin, sendi Molum eftirfarandi: "reynslan af samstarfi viđ ríkisstjórnina sé slíkt..." sagđi fréttamanneskja Stöđvar 2 í kvöld. Reynslan sé slík. Frumlag - umsögn - andlag.

Ţađ líđur ekki sá fréttatími ađ mistökum af ţessu tagi sé ekki útvarpađ. Ég leyfi mér ađ ganga út frá ţví ađ ekki sé ráđiđ fólk til starfa nema ţađ kunni undirstöđu málfrćđinnar, svo ţetta hlýtur ađ mega rekja til almennar óvandvirkni; ţegar fréttafólk skrifar fréttir međ hrađi og les ekki texta sinn yfir áđur en hann er sendur áfram. í öllu daglegu hjali um ráđherraábyrgđ vćri kannski ekki úr vegi ađ fara ađ rćđa ritstjóraábyrgđ á fjölmiđlum.

Íslensk orđabók á ađ vera til á vinnuborđi hvers fréttamanns og gott safn uppsláttarrita um málnotkun á hverri ritstjórn. Ţađ vćri líka brýnt ađ kenna notkun viđtengingarháttar. Hann virđist horfinn úr fréttamáli. "

Nýlega sýndu margar  sjónvarpsstöđvar óperuna Rígólettó í beinni útsendingu  frá Mantova  á Ítalíu. Ţetta  var  eiginlega ekki   venjuleg óperuuppfćrsla  heldur    kvikmynd í beinni útsendingu ţar sem notađar voru 35 myndavélar.  Sagt var ađ  148 lönd  ćttu  ađild ađ  útsendingunni. Ekki bólar  á ţessu meistaraverki  í Ríkissjónvarpinu  en ţar fóru ţau   Placido  Domingo  og Julia Novikova  á kostum undir stjórn  Zubin Mehta. Í kvöld   (19.09.2010) er fyrsta  sinfónía  Mahlers á dagskrá  NRK2. Hversvegna sinnir  Ríkissjónvarpiđ  okkar ekki sígildri tónlist?  Rígólettó verđur  hinsvegar  frumsýnd í Íslensku óperunni í nćsta mánuđi. Ţađ er tilhlökkunarefni.


Bloggfćrslur 20. september 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband