Molar um málfar og miđla 401

   Bankar eru ekki til sölu. Ţeir eru í söluferli, eins og  sagt var  í sexfréttum Ríkisútvarpsins (08.09.2010). Fréttamenn  skrifa stundum kansellístíl. Kannski óviljandi.  Í sama fréttatíma var sagt: ... og er taliđ ađ sem svarar 4.9 milljónum tunna   hafi lekiđ í sjóinn.  Ekki er Molaskrifari  sáttur  viđ  ţetta orđalag.  Hefđi taliđ betra ađ segja: ...  og er taliđ ađ um 4.9 milljónir tunna  hafi lekiđ í sjóinn.  Kannski sérviska.

 Ríkissjónvarpiđ gengur of langt (08.09.2010)  í viđtölum viđ fjölmiđlafíkna lögmenn í  málum (oft viđkvćmum), sem eru hjá dómstólum. Ţegar Molaskrifari  byrjađi ađ skrifa fréttir  fyrir býsna löngu vöruđu eldri og reyndari menn hann viđ lögmönnum,sem  sífellt hringdu til ađ útmála sigra sína fyrir dómstólunum. Víđ kölluđum ţá fjölmiđlalögfrćđinga og ţeir voru ekki margir á sjöunda áratug síđustu aldar. Allir vissu hverjir ţeir voru og höfđu varann á ţegar ţeir hringdu til ađ segja frá „stórfréttum" varđandi ţá sjálfa.

Hafnsögubát tók niđri, las fréttaţulur Stöđvar tvö (08.09.2010). Rétt hefđi veriđ: Hafnsögubátur  tók niđri. Báturinn tók  niđri. Bátinn rak upp í fjöru. Önnur beygingarvilla var í  fréttum  Ríkissjónvarps sama kvöld. Ţá  var sagt: Óljóst er hve mikiđ ţađ  skilar.  Rétta hefđi veriđ ađ segja: Óljóst er hve miklu ţađ skilar.

 Fyrirsćta sem hefur veriđ einkar lagin ađ koma sér á framfćri í íslenskum fjölmiđlum   veitir lesendum Pressunnar hollráđ (08.09.2010). Ţar er  eftirfarandi  gullkorn ađ finna:  Nokkur auđveld tips, 2 msk eplavinegar og  „room temperture" og  er ţá fátt eitt  taliđ. Tips  er enska , ábendingar,  vinegar  er líka enska,  edik á íslensku. Í stađ ţess ađ  tala  um „room temperture" á ensku  hefđi mátt tala um stofuhita  og  enska orđiđ  yfir  hitastig  er temperature.

  Kristján Már Unnarsson á  Stöđ tvö  er  afbragđs fréttarmađur. Hann er öllum öđrum naskari  ađ finna bitastćđar landsbyggđarfréttir. Vonandi hverfur hann ekki af skjánum, ţótt hann gerist  fréttastjóri Stöđvar tvö. Honum fylgja  heillaóskir  til  nýrra starfa.


Bloggfćrslur 10. september 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband