Molar um málfar og miðla 372

 

 Í fréttum Stöðvar tvö (06.08.2010) var sagt frá fyrirhuguðu flugi bandaríska flugfélagsins  Delta milli Bandaríkjanna og Íslands. Sá sem skrifaði  fréttina var heldur illa upplýstur. Í fyrsta lagi sagði hann, að  til flugsins yrðu notaðar breiðþotur af gerðinni Boeing 757-200, sem gætu flutt um 180 farþega. Þotur af gerðinni Boeing 757 eru ekki breiðþotur. Það eru samskonar þotur og Icelandair notar.  Traustar og fínar vélar,sem hafa reynst afburða vel,  en eru ekki breiðþotur. Breiðþotur eru  með  þrískiptar sætaraðir, tvö eða þrjú sæti við glugga,  síðan gang, og þrjú eða  fjögur miðjusæti og síðan gang og aftur tvö eða þrjú gluggasæti.  Í öðru lagi sagði fréttamaðurinn ,að Delta Airlines  væri eitt af stærstu flugfélögum heims og  það allra stærsta ef miðað væri við flugflota. Þetta skildi Molaskrifari ekki. Delta Airlines hlýtur þá að vera stærsta flugfélag í heimi, -  eða hvað?

Lilja Bolladóttir sendi Molum eftirfarandi: „Fyrir nokkru var Blóðbankinn líka með auglýsingarherferð, þar sem hann var að hvetja fólk til að koma og gefa blóð.... og þá sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar: "BANKANUM VANTAR BLÓÐ"!!!! ......Maður hikstar nú sko yfir minna..... Þágufallssýkin virðist vera orðin viðurkennd í okkar orðalagi, enginn kippir sér lengur upp við hana, en pirrar mig allavega alltaf jafn mikið. Mér finnst algjörlega óskiljanlegt, að fólk sem kann ekki eða getur ekki, talað rétt mál, sé að flytja okkur fréttir.... það getur farið óendanlega í taugarnar á mér þótt ég vinni ekki í þessum geira. Mér finnst ég eiga kröfu á vel talandi og skrifandi fréttamönnum, allavega frá Ríkisfréttastofunni. Þeim ber skylda til að halda uppi vönduðum og hlutlausum fréttaflutningi.... en eru alveg að bregðast, finnst mér." Kærar þakkir fyrir þetta , Lilja.

 Halda þeir sem setja saman dagskrá Ríkissjónvarpsins í alvöru, að fjölskyldur setjist við skjáinn á  besta tíma á  föstudagskvöldum til að horfa á bandarísku dellumyndirnar sem Ríkissjónvarpið kallar fjölskyldumyndir?

 Það var dapurlegt að hlusta og horfa á frétt Ríkissjónvarpsins (06.08.2010) um fullorðið fólk sem stelur grænmeti frá börnum í skólagörðum. Það var líka dapurlegt að heyra fréttamanninn,sem flutti okkur þessa frétt segja: ... var búið að stela mikið af grænmeti... Fáið piltinum önnur verkefni ,Efstaleitismenn.

 Í þessum sama fréttatíma Ríkissjónvarpsins var sagt frá  ... ólögmætum samráðshringjum... Hefði átt að vera ... ólögmætum samráðshringum. En þessi athugasemd sannar líklega  skort Molaskrifara á umburðarlyndi. 

   Í fréttum Stöðvar tvö  (06.08.2010) var talað um ... ólögmæti gengistryggingu lána.  Hefði átt að vera... ólögmæti gengistryggingar lána.  Og svo  talaði þingmaðurinn, sem rætt var við  um að stjórnsýslan sé  brotin !

   Í morgun kaus  Molaskrifari með buddunni. Hann spurði um verð á innanlærisvöðva  úr lambi í Nóatúni ,  verðið var rúmlega  fjögur þúsund krónur  kílóið.  Hryggvöðvi  úr lambi  með girnilegu fitulagi ( en líklega ekki mjög hollu) , kostaði tæplega fjögur þúsund krónur  Molaskrifari keypti úrvals  svínahnakka  fyrir minna en helming af þessu verði. Nú vill landbúnaðarráðherra framsóknarvinstrigrænna ná  tökum á svínakjötsframleiðslunni svo hægt sé að hafa meira fé af okkur neytendum.  Það er aldeilis ótækt, að við skulum eiga kost á ljúffengu svínakjöti á  viðráðanlegu verði. Því verður að breyta.

 Þegar svokölluð Hagsmunasamtök heimilanna (06.08.2010) segja á visir.is: Nokkur fjöldi fólks hefur haft samband við Hagsmunasamtök heimilanna og lýst yfir áhyggjum sínum vegna ráðningar Ástu Sigrúnar Helgadóttur í embætti umboðsmanns skuldara.-  Þá er það dæmigerð dylgjufrétt. Hvað er nokkur fjöldi fólks margir einstaklingar ? Hversvegna kemur þetta fólk ekki fram undir nafni ? Af hverju er þetta ekki rökstutt? Molaskrifari þekkir ekkert til þeirrar konu sem hér um ræðir, en svokölluð Hagsmunasamtök heimilanna eru ekki sérstaklega trúverðug samtök. Enda urðu þau til sem einskonar útibú Framsóknarflokksins á sínum tíma.


Molar um málfar og miðla 371

 

 Í fréttum Ríkisútvarpsins (04.08.2010) um áhrif eldgossins úr Eyjafjallajökli á heilsu fólks í grennd við eldfjallið var  hvað eftir annað  talað  um þá sem  voru með sögu um  astma. Ekki fellir  Molaskrifari  sig við þetta orðalag. Betra hefði verið að tala um fólk sem glímt hefði við astma eða sjúkdóma í öndunarfærum eða átt við slíka sjúkdóma að stríða.  

Lilja Bolladóttir sendi Molum eftirfarandi: „í aðalfréttatíma RÚV um daginn(27.07.2010), í sjónvarpinu kl. 19, og í fyrstu frétt þar að auki..... sem taldist ansi stór frétt um kaup Magma á HS orku osfrv..... þar birtist "vélrituð" tafla yfir hvernig Magma ætlaði að fjármagna kaup sín og þar var "reiðufé" skrifað REYÐUFÉ!! Maður hefði nú búist við meiru af Ríkismiðlinum sjálfum Eigum við afnotagjaldsgreiðendur ekki kröfu og heimtingu á öðru og betra??'
Hvað finnst þér?"  Jú, við eigum heimtingu á öðru og betra. Um það er ég hjartanlega sammála þér. En er þetta ekki  ein af afleiðingum þess að  reynsluboltar eru látnir fjúka og reynslulaus ungmenni ráðin í þeirra stað ?

 Umræðan um einkarétt íþróttafélaganna, ungmennafélaganna og ÖBÍ á Lottói er komin á nýtt stig eftir  fund   fulltrúa Bandalags íslenskra listamanna og dómsmálaráðaherra sem Ríkisútvarpið greindi ítarlega frá  4. ágúst. Takk fyrir það. Hef ekki séð að aðrir fjölmiðlar hafi sýnt þessu  áhuga. Nú mun forysta íþróttahreyfingarinnar væntanlega  ganga af göflunum að nýju eins og hún gerði þegar  sá sem þetta ritar skrifaði smágrein í Fréttablaðið um að endurskoða ætti Lottókerfið og  hleypa fleiri aðilum að gnægtaborðinu. Þá ætlaði allt vitlaust að verða. Forystumenn úr íþróttahreyfingunni  ruddust fram á ritvöllinn hver um annan þveran og vörðu meðal annars vínveitingar í golfskálum þar sem golf  var kynnt unglingum.

  Það á endurskoða allt þetta kerfi  og meðal þeirra sem hljóta  að koma til álita  í  endurskoðuðu eða nýju lóttókerfi eru UNICEF á Íslandi,  félög sem styðja langveik börn,Bandalag íslenskra skáta og Bandalag íslenskra listamanna.   Það þarf að lina um  einokunartök núverandi rekstraðila Lottósins á  þessari miklu peningavél og leyfa fleiri  almannasamtökum að  njóta góðs af. Það á ekki að nota Lottóið til að niðurgreiða golf eða  borga ofurlaun forystumanna ÍSÍ, KSÍ og innlendra sem erlendra atvinnumanna í íþróttum. Breytum kerfinu sem búið var  til að næturlagi í reykfylltum bakherbergjum Alþingishússins á sínum tíma.


Bloggfærslur 7. ágúst 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband