27.8.2010 | 08:08
Molar um málfar og miđla 389
Ekki ólíklegt, ađ hún hafi rekiđ á land..... sagđi viđmćlandi fréttastofu,sem rćtt var viđ um hvalreka norđur á Skaga. Ţessi villa verđur ć algengari. Hér hefđi veriđ rétt ađ segja: Ekki er ólíklegt ađ hana (steypireyđina) hafi rekiđ á land ...
Ađ vanda blakti fáni menningar og málvöndunar viđ hún í morgunţćtti Rásar tvö í Ríkisútvarpinu í morgun, föstudag (27.08.2010). Ţá rćddu stjórnendur viđ hana Gróu sína á Leiti,sem flytur vikulegt slúđur (ađ ţeirra eigin sögn) frá Hollywood. Ţarna var hlustendum sagt frá konu ,sem hafđi orđiđ ólétt međ ágćtum dreng og einhverjum sem hafđi gengiđ í gegnum efnameđferđ. Ţar fyrir utan sagđi konan hédddna ,hédddna og náttlega oftar en tölu verđur á komiđ. Umsjónarmenn Rásar tvö hafa greinilega ekki fengiđ í hendur bćklinginn um málstefnu Ríkisútvarpsins, né heldur hefur hann borist vestur ađ Kyrrahafi. Og svo voru hlustendur kvaddir međ : Bć !
Hádegisfréttatími Bylgjunnar einkum ţó fyrrihlutinn,(24.08.2010) var hafsjór af ambögum. Nokkur dćmi: .. og óskorđađur foringi jafnaldra sinna í prestastétt. Ţarna hefđi fréttamađur átt ađ segja.. óskorađur foringi. Ţađ er ekkert til sem heitir óskorđađur foringi. Ţađ er bara rugl. ... hafi átt rćtur sínar í vina- og kunningjahóp Ólafs. Hér hefđi átt ađ segja ... í vina- og kunningjahópi Ólafs. ...barst alţjóđadeild lögreglunnar hér á landi upplýsingar.. Hefđi átt ađ ađ vera: ... bárust alţjóđadeild lögreglunnar hér á landi upplýsingar... Lögregla hefur ekki viljađ svara ţví til hvort tengsl séu milli.. Í ţessu setningarbroti er orđinu til ofaukiđ. Lögregla hefur ekki viljađ svara ţví.... Talsvert af upplýsingum og ábendingum frá almenningi hafa borist... Ćtti ađ vera : Talsvert af upplýsingum og ábendingum hefur borist frá almenningi.
Morđinginn ófundinn í níu daga, sagđi í undarlegri fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (25.08.2010)
Móđir barns eđa barna í Vesturbćjarskóla ,sem rćtt var viđ í fréttum Ríkissjónvarps (26.08.2010) sagđi um skúra, sem settir hafa veriđ niđur á skólalóđinni, ađ ţeir vćru morknir. Morkinn ţýđir úldinn, rotinn eđa maltur. Myndirnar sem sýndar voru međ fréttinni báru međ sér ađ ţađ sem sást af undirstöđum skúranna var grautfúiđ eđa feyskiđ. Viđur fúnar, en berg getur morknađ af völdum jarđhita og handrit geta morknađ í hillum, segir íslensk orđabók.
Úr mbl.is (26.08.2010): Í gćrkvöldi var greint frá ţví á mbl.is ađ talsverđ seinkun varđ á flugi flugfélagsins Astraeus til og frá Bretlandi í júnímánuđi, samkvćmt nýrri skýrslu frá flugmálastjórn ţar í landi, CAA. Astreus rekur flugvélarnar sem fljúga undir merki Iceland Express. Ţetta stađfestir ţađ sem hér hefur áđur veriđ sagt. Iceland Express er ekki flugfélag heldur ferđaskrifstofa. Ţađ er ţví rangt, ţegar fjölmiđlar tala um flugfélagiđ Iceland Express.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)