18.8.2010 | 06:18
Molar um málfar og miđla 381
Ţađ er ekki eitt, sem er ađ ţessari frétt á dv.is (16.08.2010), heldur allt: http://www.dv.is/frettir/2010/8/16/bjorn-grunadur-um-fimmtiu-innbrot/ Reynir, ritstjóri: Svona fólki á ekki ađ sleppa lausu í nánd viđ nettengdar tölvur.
Vaxandi tilhneigingar gćtir til ađ bera ţf.et. ýmissa orđa međ ákveđnum greini , eins og brúin, frúin, fram eins og ţau séu skrifuđ brúnna, frúnna. Ţetta er rangt. Heyrđist međal annars skýrt og greinilega í morgunfréttum Ríkisútvarpsins (16.08.2010).
Visir.is (16.08.2010): Verkjalyfinu magnýl er ekki dreift hérlendis ţessa dagana,- Er verkjalyfjum dreift ? Líklega er átt viđ hér, ađ verkjalyfiđ magnýl sé ekki á bođstólum, ekki fáanlegt í lyfjabúđum um ţessar mundir.
Í fréttum Ríkissjónvarps (16.08.2010) var sagt: ... og ţví ţurftu ţeir ađ há ţriggja holu umspil (innsk. einvígi?) um sigurinn.... Nú má vera ađ kunnáttuleysi hái Molaskrifara , - en ekki fannst honum ţetta eđlilegt orđalag. Ekki fremur en ţegar ţennan sama dag, ţegar sagt var í fréttum Stöđvar tvö, ţegar skoriđ var upp í dag, - veriđ var ađ segja frá ţví ađ börn í skólagörđum voru ađ taka upp kartöflur og grćnmeti. Ţau voru viđ uppskerustörf. Ankannalegt orđalag , en líkast til ekki rangt.
Vinstri grćnir bregđast ekki fremur en fyrri daginn. Ţegar talađ er um ađ veita lögreglu hér á landi svipađar heimildir til rannsókna og löggćsluyfirvöld í grannlöndum okkar hafa, stökkva talsmenn ţeirra fram á fjölmiđlasviđiđ og byrja ađ tala um mannréttindi. Mannréttindi skipulagđra glćpagengja eru líklega mikilvćgari en mannréttindi almennra borgara ađ ţeirra mati. Ţađ ber ađ vernda glćpamenn sem koma hingađ í hópum í skjóli Schengen til ađ brjótast inn á heimili okkar og íslensk fyrirtćki og stela úr verslunum. Heyr á endemi, segir Molaskrifari.
Tillaga Rögnu dómsmálaráđherra er fín. Hana ber ađ samţykkja.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)