5.7.2010 | 11:43
Molar um mįlfar og mišla 345
Mörg gullkornin hafa hrotiš af vörum ķžróttafréttamanna og žeirra sem lżsa gangi knattspyrnuleikja aš undanförnu. Vinur Molaskrifara rifjaši upp ķ samtali aš į dögunum hefši einum žeirra,sem lżsa leikjum oršiš žaš į aš segja: Hann mundaši hęgri fót og ..... Stundum eru menn brįšskemmtilegir, - alveg óviljandi.
Ķ hįdegisfréttum Rķkisśtvarpsins (03.07.2010) var sagt, aš žyrla Landhelgisgęslunnar vęri į leiš um borš ķ skip. Heldur hefši įtt aš segja aš žyrlan vęri į leiš aš skipi. Ķ sama fréttatķma sagši fréttaritari į Sušurlandi aš gęši heyjanna vęru mjög góš. Gęši eru gęši ,en ekki góš. Hann hefši betur oršaš žetta į annan veg. En žetta hefur svo sem heyrst įšur.
Ķ fréttum hefur veriš sagt frį žvķ aš Reykjavķkurborg ętli ekki aš gera neitt til aš ašstoša fįtęka og snauša mešan hjįlparstofnanir, illu heilli, loka vegna sumarleyfa. Ķ gamla daga var framfęrsla fįtękra ein af höfušskyldum hreppanna. Tķundarlög voru samžykkt į Alžingi 1096/97 og skyldi fjóršungur tķundarinnar renna til fįtękra. Reykjavķkurhreppur getur ekki hlaupist frį framfęrsluskyldu sinni og allra sķst getur hann žaš undir merkjum Samfylkingarinnar.
Annars er synd aš hrepparnir skuli horfnir sem stjórnsżslueining , žótt fįeinar sveitir beri enn hreppsnöfn, eins og til dęmis Skorradalshreppur og Akrahreppur. Žar meš er lķka horfiš viršingarheitiš hreppstjóri. Mér finnst aš góškunningi minn Davķš Pétursson į Grund ķ Skorradal ętti įfram aš vera hreppstjóri. Oddviti er miklu tilkomuminna starfsheiti.
Žaš var einkennilegt aš hlusta į vištal ķ fréttum Stöšvar tvö (01.07.2010) viš mann,sem talaši um aš veriš vęri traška į alžżšunni og sparka ķ verkalżšinn. Hann hafši aš eigin sögn brotist inn į geymslusvęši fjįrmögnunarfyrirtękis og tekiš žar bķl traustataki. Taldi fyrirtękiš skulda sér. Hann hafši tekiš lįn hjį žremur fjįrmögnunarfyrirtękjum. Er žaš hinn dęmigerši alžżšumašur og fulltrśi verkalżšsins,sem tekiš hefur žrjś slķk lįn til tękja- og bķlakaupa? Ég held ekki. Žetta var einkar ósannfęrandi. Žessi mašur vildi greinilega aš ašrir borgušu žau lįn,sem hann tók. Ekki hann, sem tók lįnin. Nś kannast ekkert fjįrmögnunarfyrirtęki viš aš frį žeim hafi horfiš bķll. Kannski var žetta bara óprśttinn nįungi aš plata Stöš tvö?
Bloggar | Slóš | Facebook | Athugasemdir (2)